Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.11.2013, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 08.11.2013, Blaðsíða 2
LÉTT OG LAKTÓSAFRÍ SÚRMJÓLK H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Fleiri í nefndum Sigmundar en búa í Súðavík A lls eru hátt í tvö hundruð manns starfandi í þeim 14 nefndum sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis- ráðherra hefur stofnað til að leysa skuldavanda heimilanna. Það eru fleiri en allir íbúar Súðavíkur. For- sætisráðherra fór yfir tíu liði að- gerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar um skuldavandann á Alþingi í gær. Þar kom fram að frumvörp til laga hafa verið lögð fram, samþykkt eða eru rétt óútkomin, í fjórum liðum. Sex liðir eru enn óleystir og starfa alls 14 nefndir að því að finna lausnir á þeim. „Eins og sést á þessari yfirferð gengur framkvæmd þingsályktun- arinnar samkvæmt áætlun,“ sagði Sigmundur Davíð á Alþingi í gær. „Það er mjög gleðilegt og það er von mín að góð samstaða myndist á Alþingi um þau mál sem enn eiga eftir að koma til kasta Alþingis vegna þessarar þingsályktunar. Íslensk heimili eiga það skilið,“ segir hann. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Fleiri sitja í nefndum Sigmundar Davíðs um skuldavanda heimilanna en búa í Súðavík. Alls eru 14 nefndir starfandi sem ætlað er að leysa úr þeim sex liðum sem enn eru óleystir af áætlun ríkisstjórnar til að leysa skuldavanda heimilanna. Í fjórum liðum eru frumvörp tilbúin og/eða samþykkt. Nefndir um aðgerðir ríkisstjórnar vegna skuldavanda heimilanna: 1 Höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðislána = 1 sérfræðingahópur og 4 undirhópar + sérfræðingar (7+ekki uppgefið=?) Einn sérfræðingahópur skipaður í ágúst og fjórir undirhópar (fjöldi sérfræðinga í hverjum undirhópi fékkst ekki uppgefinn hjá forsætisráðuneytinu) Mun hópurinn skila niðurstöðum sínum fyrir lok þessa mánaðar. 2Sérstakur leiðréttingasjóður vegna húsnæðislána = 1 undirhópur (úr lið 1) 3Tímabundin aðgerð vegna yfirveðsettra eigna = 1 vinnuhópur (7) 4Verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála = 2 hópar + 4 teymi= 6 nefndir (7+32+4x32-32=155) Sjö manna verkefnisstjórn og 32 manna samvinnuhópur auk fjögurra teyma sem í geta setið allt að 32 (fulltrúar í verkefnastjórn sitja sjálfir í einu teymi og mega tilefna einn í hvert af hinum þremur teymum sem eftir eru). 5Flýtimeðferð dómsmála vegna myntkörfulána-Frumvarp samþykkt 6Afnám verðtryggingar af neytendalánum = 1 sérfræðingahópur (7) Sérfræðingahópur skipaður í ágúst. Áætluð skil eru upp úr miðjum desember. 7Kostnaður eignalausra einstaklinga vegna gjaldþrotaskipta Unnið að frumvarpi sem áætlað er að lagt verði fram á Alþingi í lok nóvember 2013. 8Gjald á fjármálafyrirtæki vegna umtalsverðra tafa á endurútreikningi lána = 1 nefnd (5) 9Endurskoðun stimpilgjalda vegna húsnæðiskaupa Frumvarp komið fram. 10Hagstofa Íslands fái skýrar heimildir til að afla upp-lýsinga frá fjármálafyrirtækjum um fjárhagsstöðu heimila og fyrirtækja. Frumvarp samþykkt í september  Stjórnmál 14 nefndir StArfAndi um SkuldAvAndAnn Skimun gegn ristilkrabbameini er hafin í mörgum löndum Evrópu og hefur gefið góða raun. Niðurstöður nýrrar evrópskrar rannsóknar sýna að með skimun gegn ristil- krabbameini er hægt að minnka dánartíðni af þess völdum meðal kvenna að meðal- tali um 82 prósent en um 73 prósent meðal karla. Rannsóknin var framkvæmd í ellefu löndum yfir tólf ára tímabil. Að mati Ásgeirs Theódórs, sérfræðings í meltingarsjúkdómum, hafa Íslendingar dregist verulega aftur úr öðrum þegar kemur að forvörnum gegn ristilkrabbameini. Árlega deyja að meðaltali 55 Íslendingar af völdum þess. Skimun gæti því bjargað um fjörutíu mannslífum á hverju ári. Um- talsverðir fjármunir myndu sparast með skimun því árlega ver ríkið einum og hálfum milljarði í meðferðir við ristilkrabbameini. Til samanburðar myndi kosta um hundrað milljónir að framkvæma skimun hjá þeim aldurshópi sem í mestri áhættu er. „Nær öll ristilkrabbamein hafa góðkynja forstig sem er svokallaður ristilsepi. Með því að finna sepann og fjarlægja hann getum við forðað því að krabbamein nái að myndast. Forstigs- separ gefa yfirleitt engin einkenni og því veit fólk ekki af þeim. Þegar einkennin koma fram er sjúkdómurinn oft orðinn útbreidd- ur og mun erfiðara að beita meðferð sem læknar meinið,“ segir Ásgeir í nýju blaði, Líf- tímanum. Líftíminn fjallar um heilbrigðismál og verður gefinn út mánaðarlega hér eftir. Með- al annars efnis í blaðinu í dag er umfjöllun um offituvandann hér á landi, talað er við hjúkrunarfræðinga sem komast ekki á sal- ernið á vöktum á Landsspítalanum og rætt við aðstandendur nýsköpunarfyrirtækisins Kerecis sem hafa þróað lækningavörur úr þorskroði. Líftíminn fylgir Fréttatímanum og er dreift í 82.000 eintökum.  HeilbrigðiSmál líftíminn kemur út í fyrStA Sinn í dAg Skimun myndi bjarga fjörutíu mannslífum árlega Komast eKKi á Klósettið Álag á hjúkrunarfræðinga er slíkt að þeir komast ekki á salernið heilu vaktirnar né geta tekið sér matarhlé. Síða 2 Getum bjarGað 40 mannslífum á ári Læknir segir að skimun eftir ristilkrabbameini getið lækkað dánartíðni um 70-80%. Síða 4 Græða sár með þorsKroði Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis nær eftirtektarverðum árangri við þróun lækningavara. Síða 6 nýtt líf á reyKjalundi Gróa Axelsdóttir var 120 kíló og með áunna sykursýki. Hún umbylti lífi sínu og varð í kjölfarið ólétt. Síða 12 1. tölublað 1. árgangur 8. nóvember 2013 Íslendingar eru feitastir Norðurlanda- þjóða og neyta óhóflegs magns af sykri. Hundrað manns fara í offitumeðferð á Reykjalundi á ári hverju og sjúkling- arnir verða sífellt yngri og yngri. Tíðni sykursýki 2 hefur aukist um helming hjá körlum og rúma tvo þriðju hjá konum undanfarna áratugi og á sama tíma hef- ur meðalþyngd þjóðarinnar rokið upp. 57 prósent fullorðinna og 18,6 prósent barna eru yfir kjörþyngd. Íslendingar borða 60 kíló af sætindum á ári. Síða 10 Sykuróð þjóð að springa úr spiki Allir verði skráðir líffæragjafar Velferðarnefnd er nú með til umfjöllunar frumvarp sem þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um brottnám líffæra. Frumvarpið felur það í sér grundvallarbreytingu á lögum um líffæragjöf þar sem með lögunum muni allir verða skráðir líffæragjafar en þess í stað skuli þeir sem ekki kjósa að gefa líffæri sín eftir dauða sinn óska eftir skráningu á þar til gerða skrá. Silja Dögg Gunn- arsdóttir, fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, segir að gengið sé út frá ætluðu samþykki í nágrannalöndum okkar enda sé það mun eðlilegra að gera ráð fyrir að fólk vilji gefa líffæri en að það vilji það ekki. „Ég er bjartsýn að það takist að koma þessu máli í gegnum þingið enda hafa margir hags- munahópar bent á nauðsyn þess að breyta lögum í þessa veru,“ segir hún. Silja bendir á að einn líkami geti hjálpað sjö manns, ýmist með því að bæta lífsgæði eða hreinlega bjarga mannslífum. „Það er síðan útfærsluatriði hvernig fólk skráir sig á lista vilji það ekki gefa líffæri eftir lát sitt,“ segir hún. -sda Á þriðja hundrað prjónaðar brjóstahúfur Í október komu hátt í hundrað prjónakonur saman og prjónuðu á þriðja hundrað léttlopahúfur. Brjóst af öllum stærðum og gerðum eru fyrirmyndin og byggðist þetta verkefni á samstarfi Göngum saman og Fjallaverksmiðju Íslands. Afraksturinn gefur að líta á Prjónabrjóstahátíð Göngum saman sem haldin verður á laugardaginn í Hannesarholti, Grundarstíg 10, milli klukkan 15-17. Þar verða húfurnar til sýnis og sölu. Húfurnar hannaði Kristín Helga Gunnars- dóttir sem þekktust er fyrir barnabækur sínar. Prjónakonurnar fengu uppskrift Kristínar Helgu og léttlopa af ýmsum litum frá Ístex og þar sem handbragð og litir eru ólíkir endurspegla húfurnar alla þá fjölbreytni sem býr í brjóstum kvenna. Treysta vel Matvælastofnun Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands framkvæmdi viðhorfskönnun fyrir Matvælastofnun í október um traust almennings til stofnunarinnar. Niður- stöður könnunarinnar sýna að 39% svarenda bera „frekar / mjög mikið“ traust til Matvælastofnunar og 15% bera „frekar / mjög lítið“ traust til stofnunarinnar. Í Þjóðmálakönnun Félagsvísind- astofnunar Háskóla Íslands sem framkvæmd var í október voru þátt- takendur meðal annars beðnir um að svara spurningu um traust til Mat- vælastofnunar (MAST). Alls svöruðu 979 og er svarhlutfall 65%. 46% svarenda sögðust hvorki bera mikið né lítið traust til stofnunarinnar. Í tilkynningu frá MAST segir að kön- nunin hafi verið gerð með svipuðum hætti og könnun MMR um traust til helstu stofnana samfélagsins, og samanburður á niðurstöðunum sýni að MAST flokkist með efstu stofnunum þegar kemur að trausti almennings. Aðeins Lögreglan, Háskóli Íslands, Ríkisútvarpið og Háskólinn í Reykjavík eru ofar. -eh 2 fréttir Helgin 8.-10. nóvember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.