Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.11.2013, Blaðsíða 90

Fréttatíminn - 08.11.2013, Blaðsíða 90
— 10 — 8. nóvember 2013 Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir Í slendingar eru feitastir Norðurlandabúa sam-kvæmt rannsókn á vegum Norrænu ráðherra-nefndarinnar frá árinu 2011. Á Íslandi eru 57.1 prósent fullorðinna yfir kjörþyngd en 18.6 pró- sent barna. „Offitufaraldurinn er ein helsta ógnin við lýðheilsu í dag,“ segir Bolli Þórsson, læknir hjá Hjartavernd og sérfræðingur í innkirtlasjúkdómum. Hann telur að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir því hversu hættuleg offita geti verið. „Á undanförnum fjörutíu árum höfum við náð miklum árangri og minnkað tíðni hjarta- og æðasjúkdóma en með aukinni tíðni sykur- sýki vegna offitu gæti sú þróun snúist við á næstu árum ef offita verður áfram jafn almenn.“ Offita er skilgreind sem 30 eða meira á BMI stuðli og sýndi rannsókn Norrænu ráðherranefndarinnar að 17.8 prósent Íslendinga eru með offitu sem er hæsta hlutfallið á Norðurlöndum. Lægst er hlutfallið í Noregi eða 8.7 prósent. Rannsókn Hjartaverndar á aldurs- hópnum 35 til 44 ára sýndi að árið 1968 vógu konur á Íslandi 64,9 kíló að meðaltali en karlarnir 81,9 kíló. Árið 2007 var meðalþyngd kvenna komin upp í 74 kíló en karla 90 kíló. „Það ætti enginn að láta það eftir sér að þyngjast því það er mjög erfitt að léttast aftur. Fólk þyngist yfirleitt hægt og hugsar með sér að það ætli bara að létta sig seinna,“ segir Bolli. Hann bendir á að heilinn stjórni efnaskiptum líkamans og sé stilltur inn á það að léttast ekki heldur viðhalda jafnri þyngd. „Heilinn er með ýmis konar stjórntæki sem stuðla að því að við höldum þyngd og bremsar þegar við reynum að léttast og þess vegna getur verið erfitt fyrir fólk að létta sig,“ segir hann. Innleiðing hreyfiseðla í heilsugæsluna Á síðustu árum hefur staðið yfir tilraunaverkefni sem byggir á því að læknar geti ávísað fólki hreyfiseðlum sem hluta af meðferð við sjúkdómum tengdum lífsstíl eins og áunninni sykursýki og hjarta- og æðasjúk- dómum. Fólk fær þá tíma hjá sjúkraþjálfara sem gerir áætlun um hreyfingu fyrir viðkomandi og veitir eftir- fylgni. Sjúklingurinn mætir jafnframt áfram í tíma til síns læknis á heilsugæslunni. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra telur mikilvægt að innleiða hreyf- iseðla í heilsugæsluna til framtíðar. „Að mínu mati er þetta gríðarlega brýnt verkefni til að bæta heilsu og sporna við sjúkdómum. Ég tel að hreyfiseðlar geti orðið mikilvægur þáttur í meðferð fólks sem glímir við fylgikvilla offitu. Við höfum séð það gerast á síðustu árum að offita og hreyfingarleysi er vaxandi vandamál í íslensku samfélagi.“ Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar segir að bætt lýðheilsa og forvarnarstarf verði meðal forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar og telur Kristján brýnt að svo verði. Mikil aðsókn að meðferð á Reykjalundi Frá árinu 2001 hefur verið starfrækt sérstakt offitu- og næringarteymi á Reykjalundi sem veitt hefur Offitufaraldurinn er ógn við lýðheilsu Íslendingar eru feitastir Norðurlandaþjóða í öllum aldurshópum og neyta jafnframt mest af sykri. Á Reykjalundi er hundrað manns veitt meðferð við offitu á hverju ári og fer meðalaldur þeirra sem þangað leita lækkandi. Offita er hættuleg og getur leitt til sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma og aukið líkur á sumum tegundum krabbameina. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar segir að bætt lýðheilsa og forvarnarstarf verði forgangsverkefni og bindur heil- brigðisráðherra miklar vonir við notkun hreyfiseðla í heilsugæslunni. Leit að námskeið- um á Hreyfitorgi Gagnvirki vefurinn Hreyfitorg var opnaður í september síðastliðnum. Á vefnum er að finna upplýsingar um hin ýmsu námskeið, tengd hreyfingu. Hægt er að leita nám- skeiða eftir póstnúmerum og sér- stökum aldurshópum. Þá er einnig hægt að leita sérstaklega að léttri eða erfiðri hreyfingu. Markmið Hreyfitorgs er að auðvelda þeim sem leita eftir þjónustu fyrir sig eða aðra, til dæmis foreldrum og fagfólki að finna hreyfingu við hæfi hvers og eins. Embætti landlæknis hefur haft umsjón með uppbygg- ingu Hreyfitorgs en aðrir aðstand- endur vefjarins eru Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Félag sjúkraþjálfara, Íþróttakennara- félag Íslands, Læknafélag Íslands, Reykjalundur, Ungmennafélag Íslands og VIRK starfsendurhæf- ingarsjóður.  Of þung ungmenni Frumniðurstöður könnunarinnar Atgervi ungra Íslendinga voru kynntar á dögunum og sýndu þær meðal annars að fjöldi 17 og 23 ára ungmenna á Íslandi sem skil- greindir eru of þungir hefur aukist um 25 prósent og hreyfing og virkni minnkað um 50 prósent frá því sami hópur tók þátt í rannsókn fyrir tíu árum. Niðurstöðurnar voru bornar saman við mælingar á hreyfingu og virkni 80 ára Ís- lendinga og kom í ljós að hreyfing þessara tveggja hópa er jafn mikil. Erlingur Jóhannsson, prófessor og verkefnisstjóri rannsóknarinnar, segir niðurstöðurnar gefa mjög alvarlegar vísbendingar um að heilsufar og atgervi ungra Ís- lendinga sé að versna og því þurfi augljóslega að efla fræðslu meðal ungs fólks og auka meðvitund, þekkingu og skilning þess á eigin heilsu. Í rannsókninni tóku þátt ungmenni fædd árin 1988 og 1994. Mark- miðið var að rannsaka langtíma- og aldurshópabreytingar á holdafari, hreyfingu, þreki, andlegri líðan, félagslegum þáttum og lífsstíl í tveimur hópum ungmenna.  Offita vanmetin lýðheilsuógn að mati WHO Að mati Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar (WHO) er engin lýðheilsuógn jafn vanmetin um heiminn og offita. Ýmsir lífshættu- legir sjúkdómar geta fylgt offitu of haft veruleg áhrif á lífsgæði fólks og er það mat stofnunarinnar að mögulegt sé að fyrirbyggja áttatíu prósent allra tilfella af hjarta- og æðasjúkdómum, níutíu prósent af áunninni sykursýki og þrjátíu prósent allra krabbameina með hollu mataræði, nægri hreyfingu og reykleysi.  Kristján Þ. Júlíusson heilbrigðisráherra telur hreyfiseðla geta orðið mikilvægan þátt í meðferð við fylgikvillum offitu. „Við höfum séð það gerast á síðustu árum að offita og hreyfingarleysi er vaxandi vandamál í íslensku samfélagi.” Ljósmynd/Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.