Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.11.2013, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 08.11.2013, Blaðsíða 34
Hollari jólabakstur! ∙ Burt með hveiti og sykur ∙ Sukrin bökunarvörur heilsunnar vegna ∙ LKL vænt ∙ Uppskriftir á Sukrin vörurnar fást í eftirfarandi verslunum: Krónan · Nóatún · Kjarval · Fjarðarkaup · Hagkaup · Nettó · Melabúðin og betri matvöruverslunum landsins. heilsunnar vegna sukrin.is A leqa Hammond, formaður grænlensku heimastjórnar-innar, telur að styttra sé í að Grænland öðlist efnahagslegt sjálf- stæði en marga grunar. Í lok október skrifaði grænlenska stjórnin undir samning við breska námufyrirtækið London Mining um nýtingarrétt á járni á svæði um 90 km frá höfuðborginni Nuuk. Verkefnið er hið stærsta í Græn- landi til þessa og mun skapa um þrjú þúsund störf. Ljóst er að flytja þarf inn vinnuafl en nýverið samþykkti grænlenska þingið lög sem tryggðu að réttindi erlendra verkamanna starf- andi í Grænlandi væru hin sömu og Grænlendinga. Flesta Grænlendinga dreymir um sjálfstæði. Flokkur Hammond, jafn- aðarmannaflokkurinn Siumut, vann stórsigur í kosningum til landsþingsins í vor, og steypti sitjandi stjórn undir forystu Kubik Kleist. Undir stjórn Hammond hefur landstjórnin tekið þýðingarmiklar ákvarðanir, svo sem að afnema bann við úranvinnslu í óþökk dönsku stjórnarinnar og að fresta frekari leyfisveitingum vegna olíuleitar við landið. Dreymir um sjálfstæði Hammond á sjálf sér þann draum að lifa þann dag að Grænland lýsi yfir sjálfstæði. „Ég gæti ekki ímyndað mér merkari dag en þann,“ segir Hammond. „Grænlendingar gáfu út skýra yfirlýs- ingu árið 2009 um að þeir vildu stjórna landi sínu sjálfir í æ meira mæli. Ég er fulltrúi sjálfstæðs Grænlands og verð því að taka sjálfstæðar ákvarðanir og leggja grunn að efnahagslegu öryggi landsins ásamt fólkinu í landinu í sátt við umhverfið,“ segir hún. Hammond sér fyrir sér að græn- lenskur efnahagur byggist á þremur stoðum: sjávarútvegi, ferðaiðnaði og námuvinnslu. „Við höfum þá þrjár stoðir til að byggja á samfélag okkar á næstu áratugum. Það mun breyta Grænlandi efnahagslega, en einnig hvað varðar sjálfsmynd okkar. Ég sé fram á æ meira fjárhagslegt sjálfstæði á næstu árum og að þjóðin muni krefjast meir af sjálfri sér til að öðlast þetta sjálfstæði,“ segir hún. Árlega fá Grænlendingar um 72 milljarða frá Danmörku, sem er tæpur helmingur fjárlaga Grænlands. „Til þess að öðlast efnahagslegt sjálfstæði þurfum við að nýta gæði landsins. 72 milljarðar hljómar sem há upp hæð en landið okkar er mjög gjöfult og ef við nýtum það af skynsemi er fjárhagslegt sjálfstæði nær en marga grunar,“ segir Hammond. Umræða hefur verið á Grænlandi um hvernig þjóð, sem telur einungis 57 þúsund íbúa, geti staðið uppi í hárinu á alþjóðlegum stórfyritækjum þegar kemur að samningagerð. Hammond hefur ekki áhyggjur af smæð landsins. „Grænlenska þjóðin er eigandi allra málma í Grænlandi. Ekkert stórfyrir- tæki getur komið hingað og gert það sem það vill. Þetta er lýðræðisríki með eigin stjórn og þing og eigin löggjöf sem tryggir hagsmuni Grænlendinga,“ segir hún. Tækifæri í hnattrænni hlýnun Hún segir að hnattræn hlýnun jarðar muni hafa, og hafi þegar haft, gríðar- leg áhrif á Grænlandi. Bráðnun Græn- landsjökuls hefur skapað tækifæri til námuvinnslu á svæðum sem áður voru hulin ís. „Við verðum að grípa þau tæki- færi og nýta þau til efnahagslegs ávinn- ings. Veiðihefðir okkar munu breytast af sömu sökum. Við sjáum breytingu á árstíðabundnum ferðum hvala og fugla og fiskistofnar hafa fært sit um set. Við verðum því að breyta áherslum okkar en einnig að nýta þau tækifæri sem bjóðast í staðinn,“ segir hún. Aðspurð segist Hammond sjá tæki- færi í auknum samskiptum við Ísland. „Við eigum meira sameiginlegt en skilur okkur að,“ segir hún. „Íslend- ingar eru fyrirmynd Grænlendinga í því hvernig þeir öðluðust sjálfstæði frá Dönum án ágreinings og á diplómatísk- an hátt. Við höfum líka horft á þjóðina eflast á mjög aðdáunarverðan hátt eftir að hún hlaut sjálfstæði. Það er okkur innblástur og hvatning og við munum nýta okkur reynslu Íslendinga og læra af henni á okkar vegferð til sjálfstæð- is,“ segir Hammond. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Íslendingar fyrirmynd okkar Aleqa Hammond, formaður grænlensku heimastjórnarinnar, á sér þann draum að upplifa þann dag að Grænlendingar verði sjálfstæð þjóð. Hún segir að grundvöllurinn fyrir sjálfstæði Grænlands sé að landið öðlist efnahagslegt sjálfstæði. Hnattræn hlýnun hafi skapað tækifæri til nýtingar mikilla verðmæta og því sé efnahagslegt sjálfstæði landsins í sjónmáli. Aleqa Hammond sér tækifæri í auknum samskiptum við Ísland. „Við eigum meira sameiginlegt en skilur okkur að,“ segir hún. „Íslendingar eru fyrir- mynd Grænlendinga í því hvernig þeir öðluðust sjálfstæði frá Dönum án ágreinings og á diplómatískan hátt.“ Ljósmynd/Hari 34 viðtal Helgin 8.-10. nóvember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.