Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.11.2013, Side 24

Fréttatíminn - 08.11.2013, Side 24
www.bjortutgafa.is Æsispennandi! HVER SEGIR AÐ HINIR GÓÐU FARI ALLIR TIL HIMNA? BÓKIN HLAUT DÖNSKU ORLA-VERÐLAUNIN FYRIR BESTU BARNABÓKINA. Fyrsta bókin af órum um Djöflastríðið mikla eir einn vinsælasta barna- og unglingabókahöfund Dana. Krakkar sem aldrei lásu staf spæna þessa í sig. ,,Ef við eigum ekki það vonda þá eigum við heldur ekki það góða. Ef við aðskiljum andstæðurnar, er ekkert eftir. Ég skal sýna þér...“ É g leiddist eiginlega óvart út í fyrirtækjarekstur og nú rek ég þrjú fyrirtæki í tveimur löndum. Kannski á ég eftir að opna annan stað og kannski fer ég að gera eitt- hvað allt annað. Beint liggur við hjá mörgum hvað þeir fara að gera í lífinu en ég hef aldrei vitað hvað ég ætlaði að gera. Ég veit ekki enn hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór,“ segir Dóra Takefusa og brosir. Eftir smá umræður komumst við að þeirri niðurstöðu að nærtækast sé að titla hana athafnakonu. „Flestir titla mig þannig. Ef ein- hver á verslun er hann búðar- eigandi en þar sem ég er í hinu og þessu held ég að fólk kalli mig athafnakonu. Mér finnst það samt eiginlega of mikil upphefð. Jón Ásgeir er athafna- maður, ég veit ekki hvort það sé alveg hægt að setja mig í sama flokk og hann,“ segir hún hlæjandi. Dóra tekur á móti mér á nýja kaffihúsinu sínu, Bast við Hverfisgötu. Það lítur út eins og gróðurhús við hlið bílastæða- hússins á móti Þjóðleikhúsinu. Kaffihúsið lætur lítið yfir sér að utan en útsýnið lætur rýmið virðast mun stærra. Yfir kaffi- húsagestum flögra tveir þrestir sem listamaðurinn Örn Töns- berg spreyjaði á einn vegginn. „Annar þrösturinn er íslenskur en hinn er amerískur. Við Össi völdum þetta saman. Hann veit nákvæmlega hvað ég vil og ég veit hvað hann getur. Hann hafði fyrst hugsað páfagauka og svona „tropical“-þema en mér fannst það of litríkt. Þá ákvað hann að gera þresti sem mér finnst passa vel.“ Með japanska gullfiska Dóra hefur endurinnréttað staðinn en til 15 ára stóð þarna hiphop-verslunin Exodus. Hún þekkti eigandann, Nínu Sigríði Geirsdóttur, og hafði lengi langað að opna kaffihús einmitt þarna. „Ég held að það séu fimm ár síðan ég sagði við Nínu að ef hún myndi einhvern tímann hætta með verslunina þá myndi ég vilja opna hér kaffihús. Það eru í raun fimm ár síðan ég var búin að innrétta allt hér í huganum.“ Í einu horn- inu er fiskatjörn en Nína hafði alltaf koi-fiska í búðinni. „Það eru japanskir gullfiskar. Nína setti dömurnar sínar í fóstur í Húsdýragarðinum á meðan við vorum í framkvæmdum en svo ákváðum við að það væri best að leyfa þeim bara að vera þar og að ég fengi nýja litla koi- fiska. Þeir koma á morgun.“ Dóra nýtur þess líka að búa við Hverfisgötuna, í íbúð sem hún hefur átt í 13 ár. „Ég leigði hana bara út á meðan ég bjó í Danmörku. Sumir spyrja hvort ég sé ekki rosalega rík en ég er bara enn í sömu íbúðinni og fyrir þrettán árum. Það kostar sitt að setja upp veitingastaði og fara fyrstu árin í að borga upp startið og koma rekstrinum á gott ról. Eftir það hafa allir peningarnir mínir hafa farið í nýja staði en ég er auðvitað að fjárfesta í sjálfri mér.“ Áður en lengra er haldið krefst Dóra þess að ég fái mér einhverja af kökunum sem boðið er upp á en ég afþakka í þetta skiptið. Hún pantar sér gulrótarköku með rjóma. „Allt á kaffihúsinu er búið til á staðnum og þetta er einfaldlega besta gulrótarkaka í heimi.“ Dóttirin orðin betri í dönsku Sjö ár eru síðan Dóra opnaði skemmtistaðinn Jolene í Kaup- mannahöfn, ásamt vinkonu sinni Dóru Dúnu Sighvats- dóttur. „Við vorum báðar á þeim stað í lífinu að okkur langaði í tilbreytingu og vildum skipta um umhverfi. Ég átti þá lítið fyrirtæki sem vann meðal annars markaðs- og viðskipta- plön fyrir fyrirtæki og komst að þeirri niðurstöðu að ég ætti kannski að fara að gera það sama fyrir mig. Dóra Dúna hafði góða reynslu af barvinnu þannig að við ákváðum að fara til Danmerkur og opna bar. Ég þarf á áskorunum að halda, vera á fullu og vera að skapa og gera eitthvað nýtt. Það er líklega þessvegna sem ég held áfram að búa til nýja staði.“ Rekstur Jolene hefur blómstrað og flutti Dóra aftur heim fyrir tveimur árum. „Litla stelpan mín sem er 11 ára í dag var farin að tala betri dönsku en íslensku enda bara 5 ára þegar við fluttum út. Jolene var komin á þann stað að ég gat leyft mér að flytja aftur heim og þess vegna gerði ég það. Það kemur alltaf af því að maður þarf að taka ákvörðun varðandi börnin. Það er svo miklu erfiðara að koma aftur heim og aðlagast sínu landi og eignast sína bestu vini og vinkonur þegar hinir krakk- arnir hafa miklu meira forskot og hafa kannski verið saman í skóla síðan þeir voru 6 ára. Eftir því sem krakkar verða eldri verður erfiðara félagslega að koma inn í hópinn.“ Dóra á einnig 23 ára son. „Ég vonaðist til að hann færi í háskóla í Danmörku en hann fór í há- skóla hér. Ég hugsaði líka með mér að ef ég flytti heim þá næði ég með honum þessum síðustu árum áður en hann flytur að heiman og hefur enga þörf fyrir mömmu lengur. Ég var aðeins 19 ára þegar ég eignaðist Daní- el en hef búið út um allt og gert mjög margt síðan ég eignaðist börnin mín. Það verður samt allt aðeins erfiðara þó það hafi aldrei stoppað mig. Maður gerir hlutina bara á annan hátt og er skynsamari. Eins er líka gaman fyrir börnin að fá að upplifa fjölbreytilegt líf og kynnast öðrum lífsháttum og menn- ingu en gengur og gerist á Ís- landi. Ef þau hafa næga ást og öryggi þá þurfa þau ekki að lifa í ákveðnu boxi.“ Ég spyr Dóru hvort hún sé í sambandi en hún verður mjög til baka og niður- staðan verður: „No comment.“ Að öðru. Hún segir það alls ekki hafa verið planið að opna annan skemmtistað þegar hún kæmi til Íslands en sú varð nú raunin og hún opnaði Dolly í Hafnar- stræti. „Fjárfestar sem höfðu fest sér þennan stað höfðu samband við mig og buðu mér að ganga í fyrirtækið og opna stað. Mér var farið að leiðast og ákvað að slá til. Ég er að meðal- tali fjóra daga í mánuði í Kaup- mannahöfn að sinna Jolene. Annars held ég bara fundi á Skype og hef samskipti, borga reikninga og stjórna rekstr- inum í gegnum netið.“ Eftir að Leiddist óvart út í fyrirtækja­ rekstur Athafnakonan Dóra Takefusa hefur opnað þriðja fyrir- tækið sitt, kaffihúsið Bast við Hverfisgötu. Hún segist hafa óvart farið út í fyrir- tækjarekstur en komist að því að hún sé nokkuð góð í viðskiptum. Dóra leggur mikið upp úr andrúmsloftinu á stöð- unum sínum og lítur á starfs- mennina 70 sem börnin sín. Dóra Takefusa við annan þröstinn sem gestir á Bast njóta samvista við. Henni finnst bast fallegur efniviður þó hann hafi í gegn um tíðina ekki þótt mjög fínn. Ljósmynd/Hari 24 viðtal Helgin 8.-10. nóvember 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.