Fréttatíminn - 08.11.2013, Side 44
umhirða húðar Helgin 8.-10. nóvember 201344
EPISILK SERUMS™ NÁTTURULEGIR
HÚÐDROPAR UNGLEGRA ÚTLIT
• Aukin raki og mýkri húð
• Nærir og endurnýjar húðina
• Minnkar sýnileika öldrunar
• Gefur þéttari húð
• Fyrir allar húðgerðir
• Laust við Paraben
• Óerfðabreytt
Q10 Coenzyme
Q10
Hyaluronic og
hið öfluga
andoxunarefni Q10
sem gefur húðinni
djúpan raka,
næringu og
unglegra útlit.
PHA Pure
Hyaluronic acid
Hreint Hyaluronic,
dregur úr fínum
línum og hrukkum,
þéttir húðina og gefur
henni mýkt.
IFL Instant
Facelift
Hyaluronic og Pephta
Tight kraftur úr
grænþörungi, húðin
verður silkimjúk og
fínar línur hverfa.
Verndar gegn
skaðlegum
sindurefnum.
Nánar á www.heilsa.isFæst í Heilsuhúsinu og Lifandi markaði.
KYNNING
Nýtt krem fyrir mjög þurra húð
D ecubal Lipid Cream frá Actavis er þróað fyrir mjög þurra og viðkvæma húð og er fituríkt, milt og mýkjandi. Kremið er áhrifaríkt en er jafnframt
einstaklega milt svo allir aldurshópar geta notað það að
vild. Kremið inniheldur sjötíu prósent fitu og er án allra
ilm,- litar- og parabenefna og hentar vel á mjög þurr
svæði og sem viðbótar meðferð við exemi og psoriasis.
Decubal Lipid Cream er vottað af norrænum astma- og
ofnæmissamtökum og notað af sérfræðingum víða um
heim. Kremið er það fyrsta í nýrri vörulínu frá Decubal,
Treatment, fyrir mjög þurra og viðkvæma húð og er
þróað í náinni samvinnu við húðsérfræðinga á Norður-
löndum. Vörur Decubal hafa verið á markaðnum rúm
fjörutíu ár.
Þurr húð er algengt vandamál sem getur valdið ertingi,
kláða og flögnun. Húðin verður þurr þegar raka skortir
í lög hennar og getur þá ekki starfað eðlilega. Þurr húð
er oft viðkvæm fyrir utanaðkomandi efnum eins og bakt-
eríum og getur auðveldlega orðið fyrir ertingu. Decubal
Lipid Cream er sérstaklega þróað til að mæta þörfum
þeirra sem eru með mjög þurra og viðkvæma húð og má
bera á allan líkamann. Kremið hjálpar húðinni að við-
halda náttúrulegum raka sínum, heldur henni mjúkri
og eykur teygjanleika hennar. Það inniheldur mýkjandi
smyrsl eins og vaselín og paraffín sem varðveita nátt-
úrulegan raka húðarinnar og gera yfirborð hennar mjúkt
og jafnt. Smyrslin mynda filmu ofan á húðina svo hún tapi
síður raka en með því að minnka rakatap húðarinnar er
auðveldara fyrir húðþekjuna að halda áfram eðlilegri
starfsemi.
Decubal Lipid Cream er einungis selt í apótekum og
fæst í tveimur stærðum, 100 ml og 200 ml umbúðum.
Lipid Cream er fyrsta varan í nýrri Treatment
línu frá Decubal. Línan inniheldur vörur með
sérvöldum innihaldsefnum sem hafa róandi
áhrif á mjög þurra og erfiða húð.
Húð Næturkrem vaðveita og Næra
Næring á
nóttunni
Næturkrem eru nauðsynleg þegar aldurinn færist yfir. Á nótt-
unni er húðin í hvíld frá áreiti á borð við sól, kulda og mengun,
og getur notað alla orku í að endurnæra sig.
Á nóttunni endurnýjar húðin sig, líkt og afgangurinn af líkamanum. Það er á
nóttunni sem húðin byggir upp
eftir daginn og þess vegna er við
gerð næturkrema lögð áhersla
á að veita raka og endurnæra.
Næturkrem eru almennt þykkari
og feitari en dagkrem og inni-
halda efni sem vinna gegn öldrun
í meira magni en dagkrem, svo
sem hyaluronic-sýru, glycolic-
sýru og retínóli.
Sumum finnst nóg að nota dag-
krem og nota jafnvel dagkremið
líka sem næturkrem og það er ekk-
ert hættulegt við það. Eftir því sem
aldurinn færist yfir verður þörf
húðarinnar meiri fyrir betri og
meiri næringu á nóttunni og þá er
um að gera að nota sérstök nætur-
krem sem hafa það eina markmið
að bæta húðina, í stað þess að nota
dagkrem sem þurfa yfirleitt einnig
að verja húðina fyrir hvort heldur er
sól, kulda eða mengun. Dagkremin
eru hönnuð til að húðin verði ekki of
glansandi og til að henta vel undir
farða en næturkremin halda alltaf
sínu eina markmiði, að næra húð-
ina.
Þegar velja skal næturkrem þarf
að hafa í huga bæði húðgerð og ald-
ur; yngri konur velja léttari krem
og eldri konur nota næringarríkari
krem. Til að kremin virki sem best
er nauðsynlegt að hreinsa húðina
vel fyrst, hvort sem hún var þakin
farða yfir daginn eða ekki.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Á nóttunni byggir
húðin upp eftir dag-
inn og næturkremin
veita bæði raka og
endurnæra.
NordicPhotos/Getty
Decubal Lipid Cream
inniheldur sjötíu prósent
fitu og er án allra ilm-, litar-
og parabenefna. Kremið
hentar fólki á öllum aldri.
Actavis hefur sett á markað nýtt krem fyrir mjög
þurra og viðkvæma húð, Decubal Lipid Cream.
Kremið er áhrifaríkt en jafnframt einstaklega milt
og hentar fólki á öllum aldri. Vörur Decubal hafa
verið á markaðnum í rúm fjörutíu ár og eru not-
aðar af sérfræðingum jafnt sem almenningi víða
um heim.