Fréttatíminn - 09.03.2012, Síða 67
menning 63Helgin 9.-11. mars 2012
Nýi uppáhaldsstaðurinn þinn í Reykjavík!
Borðapantanir í síma 553 5323
AÐALSTRÆTI 2 - 101 REYKJAVÍK - WWW.RUB23.IS
Sýningar um helgina
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
SVARTUR Á LEIK ER ÁFRAM SÝND Í MIÐBÆNUM!
“MOVES LIKE A SNAKE ON SPEED” -TWITCHFILM
SVARTUR Á LEIK
(BLACK’S GAME) ENGLISH SUBTITLES
BLIKKIÐ
SAGA MELAVALLARINS
67%
... kvenna á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
Viðbrögð við
bankahruni
„Ég gat ekki annað en spurt sjálfan mig
að því á þessum tíma hrunsins, hvernig
og hvort ég gæti tekist á við ástandið
með mínum hætti, eða brugðist við því í
mínum miðli, ljósmyndinni,“ segir Einar
Falur Ingólfsson ljósmyndari, sem opnar
á laugardag sýningu á þremur tengdum
ljósmyndaröðum sem urðu til í fram-
haldi af vangaveltum hans. Sýningar-
staðurinn er Listasafn ASÍ við Freyjugötu
og myndraðirnar nefnir Einar Falur Skjól,
Griðastaðir og Svörður. Nafngiftirnar
útskýrir hann svona: „Svörður er röð
verka þar sem rýnt er jörð forfeðranna,
Skjól eru í senn táknmynd skjólsins sem
þjóðin leitaði haustið örlagaríka 2008, en
þau eru líka raunveruleg skjól, reist með
notagildi að leiðarljósi. Griðastaðir sýna
einmitt það; felustaði, afdrep, vinjar –
staðir þar sem maðurinn getur verið einn
með sjálfum sér og leitað skjóls.“
Sýningin í ASÍ er fyrsta umfangsmikla
ljósmyndaverkefni Einars Fals eftir að
hann lauk við verkefnið Sögustaði – Í
fótspor W.G. Collingwoods, en sýning
þeirra verka hlaut mikla athygli þegar
hún opnaði í Þjóðminjasafni Íslands á
Listahátíð vorið 2010, og hafa verkin
síðan meðal annars verið sýnd í Hofi
á Akureyri, Listasafninu á Ísafirði og
í Frankfurt Kunstverein í Þýskalandi.
Samnefnd bók Einars Fals var tilnefnd til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2010.
Sýningin opnar í Listasafni ASÍ laugar-
daginn 10. mars, klukkan 15.00.
Skjól Í Flóanum, 2010
Leitið upplýsinga á
auglýsingadeild Fréttatímans
í síma 531 3310 eða á
valdimar@frettatiminn.is
Fréttatímanum er dreift
á heimili á höfuðborgar-
svæðinu og Akureyri og
í lausadreifingu um allt
land. Dreifing á bækl-
ingum og fylgiblöðum
með Fréttatímanum
er hagkvæmur kostur.
Griðastaður Við Sandá, 2010. Ljósmyndir/Einar
Falur Ingólfsson
Skjól Í Flóanum, 2011