SÍB-blaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 10
í vinnunni á aðventunni
Aðventan er skemmtilegur anna-
tími. Á þcssum síðustu vikum fyrir jól
gerist eitthvað sem erfitt er að út-
skýra. Fólk verður einfaldlega glaðara
í sinni, ungt í annað sinn. Á þessum
tíma gefa margir sér tíma til þess, frá
öllum skemmtilegu verkunum heima,
og gera sér glaðan dag með scunstarfs-
fólkinu. Vinnuumhverfið tekur
einnig miklum breytingum. Jóla-
skrautið setur svip sinn á umhverfið
og marglit jólaljósin lýsa upp skamm-
degisdrungann.
Fallegasta húsið á Siglufirði.
Blaðið hafði samband við banka-
menn víða um land og forvitnaðist um
aðventuna og aðventusiðina í bankaúti-
búum landsins.
Hlusta á útvarpið
á Egilsstöðum.
Starfsfólk Búnaðarbankans á Egils-
stöðum kann svo sannarlega að gera
sér glaðan dag og aðventan er engin
untantekning þar á. Ásthildur Jónas-
dóttir þjónusturáðgjafi, segir aðvent-
una vera sérlega skemmtilegan tíma hjá
þeim í bankanum. „Á hverri aðventu
förum við saman á jólahlaðborð og tök-
um makana að sjálfsögðu með.”
Ásthildur segir Búnaðarbankafólkið á
Egilsstöðum gjarnan hafa maka þeirra
með þegar farið er út að skemmta sér.
„Á hverju ári förum við til Reykjavíkur á
árshátíð bankans og þá koma makarnir
með, einnig í haustfagnaðinn þegar við
erum að kveðja sumarstarfsfólkið og
stilla saman strengina fyrir veturinn.”
Fyrir jólin sameinast starfsfólkið við
að koma útibúinu í jólabúninginn. „Við
fáum rafvirkja til þess að setja jólaljós á
trén fyrir utan útibúið. Það eru keyptar
jólastjörnur og settar á afgreiðsluborð-
in, við skreytum í bak og fyrir og bjóð-
um viðskiptavinunum upp á jól-
anammi. En það skemmtilegasta er að
fyrir jólin megum við hlusta á útvarpið
í vinnunni. Alla jafna er það illa séð ef
starfsfólkið er með útvarp í gangi en
um jólin þykir það sjálfsagt, því fátt er
betra til að skapa jólastemninguna en
jólalögin og jólakveðjurnar.”
Góður andi á Húsavík
Hún Jóna Matthíasdóttir í íslands-
banka á Húsavík segir jólasiðum heldur
hafa fækkað hjá þeim á liðnum árum,
“enda höfum við þroskast og dafnað á
liðnum árum.”
Jólasiðirnir sem heyra nú sögunni til
eru jólaglöggið og matarveislan mikla.
„Það sá enginn eftir því þótt hætt
yrði við jólaglöggið, því við vorum ein-
faldlega sammála um að tímanum á að-
ventunni væri betur varið í jólaundir-
búning og föndur með fjölskyldunni en
að sitja að sötra misjaflega görótta
drykki.
Matarveislan er reyndar ekki horfin
heldur höfum við einfaldlega fært hana
til og núna heitir hún Þorrablót. Veislan
var verulega íburðarmikil matarveisla
sem haldin var í kringum jólin en fólki
þótti nægilega borðað þessa daga og
því var veislan flutt yfir á þorrann sem
byrjar fyrr hér á Húsavík en gengur og
gerist, Kvennfélagskonur þjófstarta og
halda sitt þorrablót viku fyrir Þorra.
Gamla góða jólaveislan okkar er því
ansi nálægt jólunum þegar allt kemur
til alls.”
Jóna segir starfsfólkið skreyta útibú-
ið saman „og skreytingarnar eru ansi
hefðbundnar og íhaldssamar frá ári til
árs. Það er engu breytt, heldur bætt við
ef eitthvað er. Og þar sem við erum upp
til hópa ósköp góðar konur bjóðum við
upp á kúnnakaffi í desember, ilmandi
nýtt kaffi og smákökur.
Kúnnakaffið verður til þess að það
skapast annar andi í útibúinu en venju-
lega. Fólk gefur sér lengri tíma í bank-
anum, er ekkert endilega að stressast
upp þótt biðröðin sé í lengra lagi og
það er til í dæminu að fólk komi inn af
götunni til þess eins að fá sér kaffi og
kökur. Ég er ekki frá því að kaffið okkar
og kökurnar hjálpi fólki að brjóta upp
erilsaman hversdaginn og aðventu-
stressið.”
Þegar nær dregur jólum verður enn
jólalegra hjá Jónu og félögum hennar í
bankanum „því þá setjum við friðarljós
fyrir framan útibúið og bjóðum súkku-
laði með kaffinu, og það kann fólk að
meta.”
Fallegasta húsið á Siglufirði
Hörður Júlíusson þjónustufulltrúi ís-
landsbanka á Siglufirði var kominn í
jólaskap síðustu helgina í nóvember
sem reyndar var sú fyrsta í aðventu.
„Þá var bankinn skreyttur í hólf og gólf
og það er ekkert sparað við skreyting-
arnar. Einhver segði mig montinn ef ég
fullyrti að bankinn væri með fegurstu
skreyttu húsum bæjarins en það er ekki
montinu fyrir að fara, þetta er einföld
staðreynd. Bankinn fékk verðlaun fyrir
fegurstu jólaskreytinguna í fyrra og
húsið er ekki síðra í ár.”
Það er mikil samkennd hjá starfsfólki
bankans fyrir jólin. „Við hittumst alltaf
einu sinni á aðventunni, ekki bara
starfsfólkið heldur taka allir maka sína
og börn með í selskapinn og þá er fönd-
rað. Sjálfkjörnir föndurleiðtogar eru þá
búnir að ákveða hvað á að föndra og