SÍB-blaðið - 01.12.1999, Page 12

SÍB-blaðið - 01.12.1999, Page 12
Starfsmenn banka og tryggingafélaga sameinast Á undanförnum árum hefur samstarf banka og tryggingafélaga um allan heim stóraukist og fjöldi fyrirtækja í þessum geira atvinnulífsins, fjármálageiranum, sameinast eða keypt upp starfsemi hvers annars. Nýju sameinuðu fjár- málafyrirtækin bjóða jöfnum höndum fjármála- og tryggingaþjónustu, þ.e. innlán, útlán, greiðsluþjónustu, fjár- málaráðgjöf, verðbréf, líftryggingar, all- ar almennar tryggingar og fl. Starfs- menn þeirra verða að kunna skil á öll- um þessum þáttum og eru því ekki lengur banka- eða tryggingamenn, held- ur hvort tveggja og allt í senn. Á hinum Norðurlöndunum hefur þessi þróun haft gríðarleg áhrif á starfsumhverfi, kjör og aðstöðu félagsmanna í stéttarfé- lögum banka- og tryggingamanna og hvatt þá til þess að snúa bökum saman í kjarabaráttunni. Sameining í Noregi í Noregi eru félagar okkar komnir lengst á leið því þann 11. nóvember sl. voru norska bankamannasambandið, Finansforbundet, og tvö félög trygg- ingamanna, Forsikringsfunk-sjonærer- ens landsforbund og Norske ass- urandörers forbund, sameinuð í eitt öfl- ugt stéttarfélag. í nýja félaginu eru nú 36 þúsund félagsmenn og nafn þeirra er Finansforbundet, þ.e. félag starfs- manna á fjármálamarkaði. Gömlu félögin þrjú voru stofnuð á ár- unum eftir síðustu aldamót og er það elsta nærri því 100 ára gamalt. Þau höfðu öll á stefnuskrá sinni og í lögum að vinna að réttindamálum félags- manna, faglegum, félagslegum og efna- legum og stóðu algjörlega utan við flokkspólitík, eins og hið nýja félag ætl- ar einnig að gera. Sameiningarferlið hófst fyrir alvöru árið 1996 og var fljót- lega skipaður viðræðuhópur, sem kanna skyldi möguleikann á samein- ingu félaganna. í júní 1998 var síðan gerður samningur milli félaganna þriggja, þar sem kveðið var á um ýmsa lagalega og efnahagslega þætti. Sá samningur var síðan lagður fyrir þing allra félaganna haustið 1998 og skilyrt að 3/4 hlutar félagsmanna samþykktu sameininguna. Sameiningin var alls staðar samþykkt og þann 10. nóvember sl. voru gömlu félögin lögð niður og nýja Finansforbundet stofnað þann 11. nóvember, eins og áður segir. Höfuðtilgangurinn með þessari sam- einingu er að tryggja réttindi félags- manna og áhrif þeirra á þróun þeirrar ört vaxandi þjónustugreinar, sem þeir vinna við. Vinnuréttur, atvinnuöryggi, efnahagsleg afkoma og félagsleg rétt- Sameiningarferlið er komið afslað. 12

x

SÍB-blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.