SÍB-blaðið - 01.12.2006, Síða 2
LEIÐRRI
B■■ ■■■■■
Jafnrétti og tillitssemi
Friöbert Traustason,
formaður SÍB
Tölfræði er skemmtileg og
umfram allt nytsamleg við rann-
sóknir þar sem gerður er sam-
anburður af ýmsum toga, útreikning-
ar á meðaltali og miðgildi og frávik frá
útreiknuðum gildum. Allar niðurstöð-
ur úr tölfræðirannsóknum byggjast
á þeim forsendum sem rannsakend-
ur gefa sér í upphafi, frávikum, undan-
tekningum og aðferðum við úrvinnslu
rannsóknargagna. Tölfræðin á að vera
okkar hjálpartæki til að komast sem
næst staðreyndum, sem hjálpa okkur
meðal annars til að finna lausnir.
í launakönnun SÍB í apríl 2004 kom
enn og aftur fram mikill munur á laun-
um karla og kvenna meðal félags-
manna, í raun svipaður munur og var
fyrir átta árum. 77% svarenda í könn-
uninni eru konur og 23% karlar. Af
hverju gengur okkur illa að jafna þenn-
an mun? Er eitthvað í uppbyggingu
og hefðum, sem leiðir beint til þess að
launamunur helst, þrátt fyrir lög um
jafnrétti og jafnréttisáætlanir sem eiga
að tryggja jafna möguleika? Þegar rýnt
er betur í þessa könnun, sem allir geta
skoðað á www.sib.is/utgáfa/kannan-
ir, þá sér lesandi strax að karlar sem
svara þessari könnun, hafa almennt
lokið meiri skólagöngu og þeir sækja
helst í störf sérfræðinga, sem krefjast
háskólamenntunar, og einnig eru karlar
í meirihluta í stjórnunarstörfum. Karlar
eru ekki í hlutastörfum og þeir vinna
að meðaltali 5 stundum lengri vinnu-
viku en konur. Er ástæða lengri viðveru karla á vinnustað sú að kon-
urnar taka að mestu ábyrgð á heimili og fjölskyldu?
Tölfræðin talar sínu máli og þar er augljóst að skólaganga, val á
starfsvettvangi eða viðfangsefni, mannaforráð og vinnutími ræður
lang mestu um laun og launaþróun. Konur, sem sækja um þessi störf
og lokið hafa námi í framhaldsskóla og háskóla hafa að jafnaði sömu
laun og karlarnir fyrir sama vinnutíma. Getum við á einhvern hátt not-
að þessar staðreyndir til að jafna stöðu karla og kvenna?
í febrúar 2007 verður framkvæmd ný launakönnun fyrir SÍB. Það
er mikilvægt að ALLIR félagsmenn SÍB taki þátt í þeirri könnun.
Þannig fáum við raunhæfar og gagnlegar niðurstöður, sem félags-
menn SÍB geta notað til samanburðar við eigin stöðu og laun.
Lykilorðin í rekstri fjármálafyrirtækja eru þjónusta, árangur og
hagnaður. Til að ná þessum markmiðum þarf gott skipulag, sam-
vinnu starfsmanna og stjórnenda og tillitssemi. Þegar magnið er tek-
ið fram yfir gæðin og starfsmenn eru það útkeyrðir að þeir njóta ekki
eðlilegra frístunda þá hverfur vinnugleðin, þjónustan verður verri og
árangur minnkar. Þetta er rétt að hafa í huga núna þegar vinnuvik-
an virðist sífellt vera að lengjast. Stjórnendur fjármálafyrirtækja vilja
gjarnan gera svokallaða “fastlaunasamninga” við starfsmenn, þar
sem launamenn semja um ákveðin föst mánaðarlaun, sem greiðslu
fyrir dagvinnu og alla hugsanlega yfirvinnu einnig. Margir félags-
menn SÍB hafa sýnt mér þessa samninga og ítrekað kemur fram hjá
þeim að þeir vinni að jafnaði mun meiri yfirvinnu en þeir fá greitt fyr-
ir, vinni sem sagt að hluta til kauplaust. Þetta er mikil afturför sem
kemur fyrst og fremst niður á fjölskyldum félagsmanna, þar sem tími
til samveru fjölskyldunnar er skertur. Við verðum að hverfa frá þess-
ari óheillabraut og sýna þá tillitssemi sem nauðsynleg er til að allir
félagsmenn geti notið samvistum við fjölskyldu og vini.
Ég þakka öllum félagsmönnum og samstarfsaðilum SÍB ánægju-
legt og árangursríkt samstarf á árinu og óska ykkur gleðilegra jóla og
farsældar á komandi árum.
Friðbert Traustason, formaður SÍB.
SIB-blaðið
Málgagn starfsmanna fjármálafyrirtækja
Útgefandi: Samband íslenskra bankamanna SÍB.
Ábyrgðarmaður: Friðbert Traustason.
Ritstjórn: Sigurður Albert Ármannsson formaður, Friðbert Traustason og
Anna Karen Hauksdóttir.
Ljósmyndir: Sigurður Albert.
Prentun: Gutenberg.
Upplag: 6.000 eintök.
Skrifstofa SÍB er að Nethyl 2E
2. hæð, 110 Reykjavík.
Sími: 540 6100. Fax: 540 6108.
Heimasíða: http://www.sib.is, netfang sib@sib.is
Starfsmenn: Friðbert Traustason, formaður SÍB, Anna Finnbogadóttir, fjár-
málafulltrúi og Sigurður Albert Ármannsson, fræðslu- og kynningarfulltrúi.
Höfundar efnis: Hilmar Karlsson, Lára Ómarsdóttir, Hulda Styrmisdóttir
Blaðið fór í prentun: 15.12.2006.
Hönnun: Grafisk miðlun ehf/Ómar
Forsíðumynd: Félagar í starfsmannafélagi Spron á leið á toppinn
2