SÍB-blaðið - 01.12.2006, Side 7

SÍB-blaðið - 01.12.2006, Side 7
KB, LÍ og Glitnir, hlutfall hvers um sig af samanlögðum starfsmannafjölda allra þriggja bankanna Ll 35% KB 42% Glitnir 23% Starfsmannafjöldi bankanna erlendis 1800 1600 1400 1200 1000 800 600 400 200 0 1600 1400 1200 1000 800 600 400 200 0 KB Ll Glitnir KB Ll Glitnir Starfsmannafjöldi bankanna á íslandi Útrás fjármálafyrirtækjanna Um 40% starfsmanna stóru bankana starfa utan íslands Samkvæmt skýrslum Fjármála- eftirlitsins er vöxtur, breyt- ingar og alþjóðavæðing orð sem segja má að hafi einkennt íslenskan fjármálamarkað síðustu misseri. Frá árslokum 2002 hafa íslensku viðskiptabankarnir flmm- faldast að stærð og á innan við tveimur árum hafa íslensku bank- arnir breyst í alþjóðleg fyrirtæki með höfuðstöðvar á íslandi. Dótturfélög, útibú og umboðsskrifstofur þeirra eru í fjórtán löndum. Um 60% af tekjum bankanna koma erlendis frá og um 40% starfsmanna starfa utan íslands. Sem dæmi um hraðann í þróuninni má nefna að fjöldi dótturfélaga eða útibúa erlendis hefur meira en tvö- faldast á einungis þremur árum og sama má segja um tekjur af erlendri starfsemi. F’essum fjárfestingum íslensku bankanna er fylgt eftir með mik- illi fjölgun á starfsfólki erlendis. Bæði eru það íslendingar sem fara til starfa í útibúum og dótturfyrirtækj- um erlendis og að bankarnir eru að ráða til sín erlenda starfsmenn. Þegar farið er í saumana á hversu stór hluti starfsfólks stóru bankanna, Glitnis, KB banka og Landsbankans starfa erlendis kem- ur í Ijós að langflestir eru hjá KB- banka og er hann eini bankinn sem er með fleiri starfsmenn erlendis heldur en hér á landi. KB banki Kaupþing banki er með starf- semi í níu löndum utan íslands. Löndin eru Danmörk, Svíþjóð, Lúxembourg, Finnland, Noregur, Færeyjar, New York, Swiss, England.. Höfuðstöðvar bank- ans eru í Reykjavík. Helstu dótt- urfélög bankans utan (slands eru FIH Erhvervsbank A/S í Danmörku, Kaupthing Bank Sverige, Kaupthing Bank Luxembourg, Kaupthing Bank Oyj og Norvestia Oyj í Finnlandi, Kaupthing Foroyar, Kaupthing New York, Kaupthing Switzerland, Kaupthing Ltd. í Englandi og Kaupthing Norge A.S. í Noregi. Heíldarfjöldi starfsmanna: 2689 Starfsmenn á íslandi: 1089 Starfsmenn erlendis: 1600 Landsbankinn Landsbankinn er með starfsemi í þrettán löndum utan íslands. Löndin eru Bretland, Frakkland, Fýskaland, írland, Ítalía, Luxembourg, Holland, Noregur, Spánn, Sviss, Færeyjar, Bandarikin og Kanada. Þau erlendu fyrirtæki sem Landsbankinn á meira en 50% í eru Heritable Bank Limited í London, Kepler Equities í Þan's, Landsbanki Guernsey í St Peter Port á Guernsey, Landsbanki Luxembourg S.A. í Luxembourg, Merrion Capital Group I Dublin og Teather & Greenwood Limited í London. Heildarfjöldi starfsmanna: 2246 Starfsmenn á íslandi: 1432 Starfsmenn erlendis: 814 Glitnir Glitnir varð nú fyrir stuttu fyrstur íslenskra banka til að stofna starfs- stöð í Kína og eru þrír starfsmenn bankans staðsettir þar. Bætist þar við sjöunda landið utan íslands sem Glitnir er með starfsemi í. Löndin eru Noregur, Luxembourg, England, Danmörk, Svíþjóð, Kanada og Kína. Langstærsti hluti eriendra starfs- manna Glitnis starfar í Noregi, einnig eru margir starfsmenn í Svíþjóð. Heildarfjöldi starfsmanna: 1475 Starfsmenn á íslandi: 1060 Starfsmenn erlendis: 415 /hk 7

x

SÍB-blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.