SÍB-blaðið - 01.12.2006, Síða 11
Samningaviðræður
við aðildarfyrirtæki
Hlutfallsdeildar LB
Á seinni hluta árs 2003 var
rætt við stjórnendur aðildarfyrir-
tækjanna (sem eru Landsbanki,
Seðlabanki, RB, VISA og FME)
um aðkomu þeirra að því að
bæta stöðu Hlutfallsdeildar.
Sérstaklega var rætt um
launahækkanir umfram forsend-
ur (vísitala + 0,5%) og einn-
ig umfram gerða kjarasamninga,
þar sem ákvörðun um þess-
ar hækkanir væru alfarið í hönd-
um stjórnenda, en Hlutfallsdeild
væri ætlað að taka á sig kostn-
að þeirra. Þessar viðræður skil-
uðu því miður engum árangri og
því var næsta skref að lögfræð-
ingur LB sendi formlegt bréf til
allra aðildarfyrirtækja og ráð-
herra bankamála, Valgerðar
Sverrisdóttur, með kröfu um inn-
greiðslur í sjóðinn. í bréfinu stóð
m.a:
„Lífeyrissjóður bankamanna
hefur falið mér undirrituðum
(Sveinn Sveinsson hrl) að gera
athugun á því, hver ábyrgð beri
á því að forsendur þær sem not-
aðar voru við uppgjör aðildar-
félaganna á áföllnum skuldbind-
ingum gagnvart sjóðnum hafi
ekki staðist í framhaldi af þeim
breytingum sem áttu sér stað
á reglum sjóðsins um áramótin
1997 og 1998.
Þá hefur lífeyrissjóðurinn fal-
ið mér að gera kröfur á hend-
ur þeim sem ábyrgð þessa bera
og/eða hafa skyldur til að bæta
sjóðnum þær fjárhæðir sem
upp á vantar að réttar forsend-
ur hafi verið notaðar við uppgjör-
ið. Flefur mér verið uppálagt að
þingfesta stefnu fyrir héraðsdómi
eigi síðar en í desembermánuði
2004, hafi leiðrétting þá ekki náð
fram að ganga.
Eins og fram kemur hafa
margvíslegir uppgjörsliðir orðið
öðruvísi en aðilar þeir sem stóðu
að uppgjörinu gerðu ráð fyrir. Lífeyrissjóðurinn er
ákveðið þeirrar skoðunar að hann verði að fá bætt
það sem aflaga hefur farið. Báðir aðilar gengu til
uppgjörsins á sínum tíma gangandi út frá því að for-
sendur uppgjörsins yrðu að vera réttar og að þær
yrðu að vera virtar í framtíðinni af báðum aðilum.
Að öðrum kosti væru forsendurnar markleysa."
Samkomulag gert í júlí 2006
Framangreint bréf, sem var mjög ítarlegt sam-
tals 6 blaðsíður með skýringum í 28 málslið-
um, skilaði heldur ekki árangri og því var mál
gegn Landsbanka íslands h/f og Ríkinu komið fyr-
ir Fléraðsdóm Reykjavíkur í uþphafi árs 2005. Um
áramótin samþykktu ráðamenn Landsbankans að
W Ef félagsmaðurinn greið-
ir 8% þá greiðir atvinnurekandinn
15% mótframlag. Þetta eru rétt-
indi sem ekkert annað stéttar-
félag á landinu getur tryggt sín-
um félagsmönnum og því er mik-
ilvægt að allir félagsmenn SÍB
fylgist vel með framkvæmd launa-
greiðslna og nýti þessi mikilvægu
réttindi. íí
ræða við stjórnarmenn LB um hugsanlega lausn á
vanda Hlutfallsdeildar. Það var öllum aðilum mjög í
hag að finna lausn, þannig að ekki þyrfti að reka erf-
itt dómsmál, líklega í nokkur ár, fyrir héraðsdómi og
síðar Hæstarétti.
Tryggingafræðingur sjóðsins reiknaði nákvæm-
lega þá upphæð sem launahækkanir umfram for-
sendur og kjarasamninga þýddu í auknum skuld-
bindingum fyrir Hlutfallsdeildina. Aðildarfyrirtækin
munu greiða þessa upphæð inn til sjóðsins og
einnig munu þau greiða hluta af rekstrarkostnaði
Hlutfallsdeildar næstu árin. Stjórn LB og stjórnend-
ur aðildarfyrritækjanna fimm skrifuðu undir yfirlýs-
ingu, sem innihélt framangreinda lausn í júlí/ágúst í
sumar, og endanlega verður gengið frá greiðslunum
til sjóðsins núna í desember. Með þessum aðgerð-
um næst að koma sjóðnum á viðunandi rekstar-
grundvöll og forða því um sinn að skerða verði rétt-
indi sjóðfélaga.
Rekstur hlutfallsdeildar, hjá hvaða lífeyrissjóði
sem er, sem ekki nýtur bakábyrgðar launagreiðanda,
verður hins vegar alltaf erfiðari heldur en rekst-
ur hefðbundinna lífeyrissjóða sem byggja á stiga-
söfnun eða tryggja lífeyri í samræmi við ávöxtun-
artíma iðgjalda, það er með svokallað aldurstengt
réttindakerfi. Þess vegna er það mikilvægt að for-
sendur útreikninga standist sem allra best. Ef sjóð-
félagar í Hlutfallsdeildum sjóðanna fá verulegar
launahækkanir umfram gerða kjarasamninga þá
verður að tryggja þeim lífeyri af þeirri umfram hækk-
un í öðrum lífeyrissjóði en Hlutfallsdeildinni. Það má
til dæmis gera með því að greiða inn til Stigadeildar
Lífeyrissjóðs bankamanna eða til almennra laga-
bundinna lífeyrissjóða, sem eru í vörslu og rekstri
hjá bönkunum.
Bestu Iífeyrisréttindi á vinnumarkaði
í lokin vil ég minna á að lífeyrisréttindi félags-
manna SÍB eru þau bestu, sem þekkjast á almenn-
um vinnumarkaði hérlendis. Fyrir alla nýja félags-
menn SÍB, sem ráðnir verða og voru ráðnir til
starfa síðast liðin 12-15 ár, er greitt 10% iðgjald
í lögbundinn samtryggingasjóð. Starfsmenn
Landsbanka, KBbanka, Seðlabanka, Reiknistofu,
Visa, Sparisjóðs Hafnarfjarðar, FME og SÍB greiða
þetta iðgjald til Stigadeildar Lífeyrissjóðs banka-
manna, en starfsmenn Glitnis og flestra sparisjóða
greiða í aðra stigasjóði, sem staðsettir eru vítt og
breitt um landið. Samkvæmt lögum um lífeyrissjóði
skal samtryggingasjóður tryggja sjóðfélögum eftir-
laun, sem nema a.m.k. 56% af þeim meðallaunum
sem greitt er af inn til sjóðsins á 40 árum, eða 1,4%
fyrir hvert ár inngreiðslu (1,4 x 40 = 56). Allir nýir
félagsmenn SÍB geta strax við ráðningu hafið sér-
eignarsöfnun og greitt 2 - 4% af launum sínum til
séreignarsjóðs og fá þá 2% mótframlag frá atvinnu-
rekanda. Séreignarsöfnunin er þannig 4 - 6% strax
í upphafi. Þegar félagsmaður SlB hefur greitt félags-
gjöld til SÍB í samtals 36 mánuði (allir vinnu mánuðir
meðtaldir, sumarstörf o.s.frv.) þá greiðir atvinnurek-
andi 7% iðgjald til séreignarsjóðs félagsmannsins,
til viðbótar þeim greiðslum, sem áður eru upp tald-
ar. Þannig geta félagsmenn SÍB varið allt að 23%
af öllum launum til söfnunar lífeyris, það er 10% í
samtryggingarsjóð og allt að 13% í séreignarsjóð.
Ef félagsmaðurinn greiðir 8% þá greiðir atvinnurek-
andinn 15% mótframlag. Þetta eru réttindi sem ekk-
ert annað stéttarfélag á landinu getur tryggt sín-
um félagsmönnum og því er mikilvægt að allir
félagsmenn SÍB fylgist vel með framkvæmd launa-
greiðslna og nýti þessi mikilvægu réttindi.
Friðbert Traustason, formaður SÍB og LB.
11