SÍB-blaðið - 01.12.2006, Side 13
sé eftir þeim. Innleiöing gildanna
hefur tekist mjög vel en við viljum
vera fljót, snjöll og fagleg.“
- Hvað gerist ef þið komið auga á
efnilegan starfsmann innan bank-
ans?
„Viö notum ákveðnar aöferð-
ir og mælingar til aö fylgjast meö
gengi hvers starfsmanns og það
er farið reglulega yfir árangurinn,
m.a. í frammistöðusamtölum þar
sem yfirmaður og starfsmaður
ræðast við. Viðmiðin eru árangur,
áhugi og metnaður viðkomandi
starfsmanns til frekari vaxtar inn-
an bankans. Starfsmaðurinn þarf
að hafa áhuga á því að vaxa. Sé
sá áhugi til staðar mun bankinn
gera sitt til að koma til móts við
þennan áhuga og finna starfs-
manninum farveg sem veitir hon-
um tækifæri. Með þessu viljum
við tryggja fólki, sem er að vaxa í
starfi og vill meiri áskoranir, tæki-
færi til að ná markmiðum sínurn."
Þeir þremenningar leggja ríka
áherslu á hreinskiptin samskipti
við starfsfólkið þannig að það viti
hvar það stendur.
„Við erum með virka end-
urgjöf, bæði með formlegum
hætti, t.d. í frammistöðusamtöl-
um, og í dagsins önn þar sem
fólk fær hrós fyrir það sem vel
er gert og ábendingu um það
sem betur má fara. Þetta er sam-
starf þar sem við greinum tæki-
færin fyrir starfsmenn til að vaxa
í starfi. Skilyrði þess að bankinn
haldi áfram að vaxa og dafna er
að starfsfóikið vaxi með. Ef við
skoðum Glitni í dag og síðan fyr-
ir fjórum árum erum við ekki að
tala um sama fyrirtæki. Mörg af
þeim verkefnum sem við horf-
umst í augu við í dag voru ekki til
staðar áður.“
Aðspurðir segjast mannauðs-
stjórar Glitnis ekki vera í stóra-
bróðurshlutverki, þetta sé spurn-
ing um samvinnu.
„Þetta er alltaf spurning um
sameiginlega hagsmuni bankans
og hvers starfsmanns. Það hlýt-
ur að vera markmið starfsmanns-
ins að skapa sem mest verðmæti
því þannig er hann metinn, bæði
í launum og víðu samhengi. Við
viljum að starfsfólk blómstri, vilj-
um finna því réttan vettvang til að
vaxa og þroskast í starfi og eflast
í því starfsumhverfi sem við blasir
á hverjum tíma. Okkar keppikefli
er að skapa umhverfi þar sem
hagsmunir beggja aðila eru hafð-
ir að leiðarljósi. Starfsmaðurinn
er að ná því besta fram, honum
líður vel í starfi og áorkar miklu
og bankinn er tilbúinn að borga í
samræmi við það.“
Áherslan á uppbyggingu
leiðtoga
Þungamiðjan í mannauðs-
stefnu Glitnis er að byggja upp
sterkt leiðtogateymi innan bank-
ans.
„Þetta teymi þarf að halda
áfram að byggja upp framtíðar-
leiðtoga bankans. Þau erlendu
fyrirtæki sem við viljum helst bera
okkur saman við eru mjög góð í
að „búa til“ leiðtoga. Stjórnendur
og leiðtogar sem vinna í þessum
fyrirtækjum eru mjög eftirsóttir
af öðrum fyrirtækjum einfaldlega
vegna þess að þar er staðið vel
að ráðningum og öllum mæling-
um og umhverfi sem fólkið vinn-
ur í styður uppbyggingu mann-
auðsins. Það er okkar markmið
að byggja upp mannauð þann-
ig að við séum með sjálfbært ferli
sem geti af sér nýja leiðtoga. Við
getum nefnt sem dæmi að við
leggjum mikla áherslu á að efla
útibússtjóra og viðskiptastjóra í
útibúum okkar um allt land sem
leiðtoga. Þannig fara viðskipta-
stjórarnir í sérstaka leiðtogaþjálf-
un á nýju ári. En þegar við erum
að tala um leiðtoga erum við ekki
aðeins að tala um æðstu stjórn-
endur bankans heldur þurfa
leiðtogar að vera virkir á öllum
starfssviðum bankans."
- En ekki eru allir leiðtogar? Hvað
með þá sem eru góðir starfs-
menn samkvæmt öllum hefð-
bundnum viðmiðum en eru
kannski ekki að sækjast eftir leið-
togahlutverki?
„Ef við erum með sterkan
leiðtoga, t.d. á einhverri starfs-
stöð okkar, þá erum við að tala
um manneskju sem fær ann-
að fólk í lið með sér og laðar
fram það besta í samstarfsfólk-
inu. Sterkur leiðtogi á vinnu-
stað skapar umhverfi fyrir starfs-
menn þar sem þeim líður vel
og eru sáttir hvort sem þeir hafa
áhuga á því að komast í leið-
togahlutverk eða ekki. Það kem-
ur hverjum starfsmanni til góða
að vinna með sterkum leiðtoga
því leiðtoginn skapar umhverfi
sem starfsmanninum líður vel í.
Þetta er beggja hagur. Leiðtoginn
býr til vinnuumhverfi þar sem þú
hlakkar til að mæta í vinnuna og
líður vel og verk þín eru metin að
verðleikum."
Mikil starfsánægja
Mannauðsstjórar Glitnis segja
að kjarninn í mannauðsstefnu
bankans sé að
skapa vinnuumhverfi í bank-
anum sem sé aðlaðandi og
skemmtilegt og laði fram það
besta í hverjum og einum.
„Við trúum því að þessu
markmiði verði best náð með
því að byggja upp leiðtoga. Gott
vinnuumhverfi og góður starfs-
andi verða ekki til af sjálfu sér,
það þarf einhver að búa hvort
tveggja til og hlúa að því. Sterkir
leiðtogar gera einmitt þetta en
vel að merkja í samstarfi við fólk-
ið á vinnustaðnum. Hlutverk leið-
toganna í hnotskurn er að byggja
upp góðan liðsanda eins og í
góðu íþróttaliði þar sem mark-
miðið er að ná því besta út úr
hverjum og einum. Glitnir stát-
ar af metnaðarfullri mannauðs-
stefnu og við erum stolt af því að
mælast með eina hæstu starfs-
ánægju á íslandi ár eftir ár. Það
gerist ekki nema með virkri og lif-
andi mannauðsstefnu."
13