SÍB-blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 17

SÍB-blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 17
Edda Björk Þorvaldsdóttir, þjónustufulltrúi hjá KB banka Allir hafa Edda Björk Þorvaldsdóttir, þjónustufulltrúi hjá KB banka hafði séð verkefn- ið Gildi starfa auglýst, en hafði ekki hugsað alvarlega um að taka þátt í námskeiðinu fyrr en Fræðsludeild bankans hvatti hana til að taka þátt í því: „Það var fyrst þegar fræðsludeildin, sem er mjög öflug innan bank- ans, hafði ýtt við mér að ég fór að hugsa í alvöru um að taka þátt í verkefninu sem ég lét svo verða af og sé ekki eftir því. ( raun erum við sem erum í þessu að fara yfir allt sem við höf- um gert í lífinu varðandi skóla- göngu, þátttöku í námskeið- um, tómstundir okkar og margt fleira. Allar þessar upplýsingar setjum við síðan niður á blað og förum í gegnum þær með leið- beinanda og má segja að verk- efnið sé innri könnun á okk- ur sjálfum, hvað við erum fær gott af að um að gera og hvað við viljum gera.“ Edda Björk segir leiðbeining- arnar hafa verið góðar og gert þeim auðveldara fyrir en ella: „Það hafa allir gott af því að taka sig í gegn á þennan hátt og ósjálfrátt fer maður að Ifta öðruvísi í kringum sig og hugur- inn fer á allskonar flug.“ Edda Björk er búinn að starfa í um fjórtán ár hjá KB banka, en þó ekki samfleytt, var heima að gæta bús og barna um tíma, en finnst henni ekki erfitt að hræra upp í sjálfri sér: „Ekki fannst mér það, erfiðast var að finna öll gögn um skóla- göngu og annað sem þurfti að tína saman. Þetta var töluverð leit sem samt var gaman að þar sem stundum kom eitthvað óvænt í Ijós. Við byrjuðum í þessu verk- efni í nóvember og höfum ver- meta sig ið í fjórum tímum að vinna í færnimöppu um okkur. ( hana skráum við okkar lífsferil, ef svo má að orði komast, og eft- ir að við vorum búin með færni- möppuna er tekinn tími í meta okkur sjálf vinnulega séð og sú vinna átti að skilast 20. des- ember, mitt í öllu jólaumstang- inu. Hefði kannski átt að tíma- setja námskeiðið aðeins fyrr, þar sem um margt er að hugsa á þessum tíma þegar maður er hluti af fjölskyldu og að reka heimili með vinnu, en ég er nú samt frekar róleg yfir þessu öllu og hef aðeins fengið væga rit- stíflu." Edda Björk telur að verkefnið eigi eftir að nýtast henni í starfi: „Ég hef lært mikið um sjálfa mig og kem kannski til með að líta öðruvísi augum á dagleg störf auk þess sem gott er að eiga færnimöppu upp á framtíðina. Mér skilst að námsefnið sem við erum með sé komið í ein- hverja skóla og ég er með ung- ling í heimili sem ég segi nú að safna öllu saman, námskeiðum og menntun og hafa á einum stað, það verður allt svo mikið auðveldara þegar þarf á því að halda síðar meir.“ Alls taka 24 þjónustufulltrú- ar þátt í verkefninu en Edda Björk telur það ekkert sérstak- lega hannað fyrir þjónustufull- trúa bankanna frekar en aðra starfsmenn: „Það er öllum hollt að taka þátt í sjálfskoðun. Þetta er lærdómsrfkt og skemmtilegt og hristir vel upp í mér.“ /hk Edda Þorsteinsdóttir, þjónustufulltrúi hjá Glitni: Sá strax að þarna var eitthvað sem mundi nýtast mér Einn af þátttakendum á nám- skeiðinu Gildi starfa er Edda Þorsteinsdóttir, þjónustu- fulltrúi hjá Glitni og er vinnu- staður hennar í Kringlunni. Edda er einnig í kvöldnámi í Menntaskólanum í Kópavogi, tveggja ára viðskipta- og fjár- málanámi sem er fyrir starfs- menn í fjármálafyrirtækjum. Hún segist hafa séð verkefnið Gildi starfa auglýst og hafi fundist það áhugavert og forvitnilegt en var lengi að hugsa hvort hún ætti að taka þátt í því.: „Það var ekki eins og að ég hefði ekki nóg að gera, er í kvöldnámi og þar að auki með sjö manna fjöl- skyldu, en ég ákvað að slá til og sé ekki eftir því. Ég hef allt- af verið á því að maður eigi að gera eins mikið í lífinu og hægt er og þegar í boði er námskeið sem getur aðeins leitt til góðs þá er ég alltaf til í að stökkva á það.“ Edda sem náði ekki að kom- ast í fyrsta tímann vegna kvöld- skólans segist samt strax hafa fundið sig á námskeiðinu: „Þeir tímar sem ég hef sótt hafa ver- ið fjölbreyttir og áhugaverð- ir. Við komum víða við og með- al þess sem sjálfsagt reynist mörgum erfitt er að fara í sjálf- skoðun en er nauðsynlegt til að árangur náist. Það getur ver- ið strembið að svara spurning- um um sig sjálfan og meta síð- an. Þetta er erfitt og krefjandi en í raun nauðsynlegt eigi góð- ur árangur að nást. Framhald verður á þessu eftir áramót en ég veit ekki alveg hvernig það verður.“ Edda er í engum vafa að þátttaka í þessu verkefni eigi eftir að duga henni vel í fram- tíðinni: „Ég er búinn að vera sex ár hjá Glitni og alltaf ver- ið í Kringlunni. Með þátttöku á námskeiðinu tel ég mig fá meiri yfirsýn yfir starf mitt og ef ég hef áhuga á að taka að mér eitt- hvert annað starf innan bank- ans eða skipta um vinnustað þá er þetta góður grunnur og und- irbúningur. Svo er annað mál að mér líður mjög vel í því starfi sem ég er í hjá Glitni.“ Þó að á námskeiðinu séu eingöngu þjónustufulltrúar þá telur Edda að það eigi einnig að geta nýst öðru starfsfólki bank- anna. „Þarna er verið að meta hæfileikana, hvar einstaklingur- inn er sterkastur og hvar hæfi- leikar hans nýtast best og það er enginn spurning að það á erindi til allra starfsmanna bank- anna.“ /hk 17

x

SÍB-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.