SÍB-blaðið - 01.12.2006, Síða 18
yiÐTRL
Elín Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans:
Þekki ekki annað en að vinna
með körlum á jafnréttisgrundvelli
Ekki eru margar konur sem skipa æðstu
stjórnunarstöður hjá stóru bönkunum þremur,
frekar en almennt í öðrum stórum fyrirtækjum á
íslandi. í Landsbankanum, sem á 120 ára afmæli
á þessu ári og er eitt elsta fyrirtæki landsins,
hefur kynjaþróunin í stjórnunarstörfum ekki
verið konum í hag í gegnum tíðina. Ein kona
er í hópi æðstu stjórnenda bankans í dag, Elín
Sigfúsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Landsbankans. Okkur lék forvitni á að vita
hennar afstöðu til starfa kvenna í bönkum,
hvernig málum er háttað í Landsbankanum og
hvernig hún fór að því að komast í áhrifastöðu
innan banka
Starfsævi mín í banka-
geiranum er orðin æði
löng. Ég hóf störf í
Búnaðarbankanum um
leið og ég lauk prófi í viðskipta-
fræði árið 1979. Ég byrjaði í hag-
deild, var svo um tíma að flakka
á milli deilda, var í innri endur-
skoðunardeild, sem var nokk-
urs konar eftirlitsdeild, hagfræði-
deild, sem var í áætlanagerð, fór
síðan aftur í hagdeild og þá var
ég að nokkru leyti komin í það
starf sem ég hef verið í síðan, fór
að skoða lánsumsóknir fyrirtækja
með bankastjórum og fer ein-
göngu að vinna að fyrirtækjamál-
um. Ætli það séu ekki eitthvað
um tíu ár síðan.
Þegar svo bankarn-
ir hver af öðrum ákveða
að stofna fyrirtækjasvið þá
renna saman nokkrar deildir í
Búnaðarbankanum, sem hafa
unnið að fyrirtækjamálum og
þar á meðal hagdeildin sem var
fámenn og lítil, en var burðar-
ás í fyrirtækjastefnu bankans.
Ég varð fljótlega aðstoðarfram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðsins
og síðar framkvæmdastjóri og
sat í bankaráði Búnaðarbankans
í fjögur ár.
Málin æxluðust á þann veg
að ég var frekar stutt yfir fyrir-
tækjasviði Búnaðarbankans. Árið
2003 skipti ég um vinnustað,
fór yfir í Landsbankann þeg-
ar Búnaðarbankinn og Kaupþing
sameinast. Þá flutti nokkuð stór
hópur innan Búnaðarbankans
sig yfir í Landsbankann, með-
al annars Sigurjón Árnason,
sem varð bankastjóri, en ég
var náin samstarfsmaður hans í
Búnaðarbankanum og tók ég við
fyrirtækjasviði Landsbankans."
Starfsemi fyrirtækjasviðs
meira en tvöfaldast
Elín er spurð hvort ekki hafi
orðið mikil útþensla á fyrirtækja-
sviðinu: „Aukningin hefur orð-
ið mjög mikil og hefur meira en
tvöfaldast á stuttum tíma og
starfa nú um áttatíu manns á
sviðinu. Auk þess hefur starfs-
sviðið breyst og víkkað út á
þann veg að við styðjum nú við
útibúakerfið í sambandi við fyrir-
tækjamálin og einnig styðjum við
erlenda starfsemi bankans, sem
alltaf er að aukast, þar komum
við að útlánum til fyrirtækja eins
og við gerum hér heima. Stærsta
útlánastöð okkar í útlöndum er
London og við keyrum alla bak-
sviðsvinnslu fyrir þá. Þunginn í
starfsemi fyrirtækjasviðsins er
samt að sinna beint stærstu fyr-
irtækjum íslands og svo vinnum
við með útibúunum i millistór-
um fyrirtækjum og minni fyrir-
tækjum.“
Hvernig ætli það hafi svo ver-
ið fyrir Elínu að vinna sig upp í
áhrifastöðu í karlaveldi banka-
kerfisin? „Ekki get ég sagt að
ég hafi fundið fyrir því að það
væri erfiðara fyrir mig frekar en
aðra. Ég hef sjálfsagt verið rétta
manneskjan á réttum tíma til að
taka við stjórn fyrirtækjasviðs-
ins. Þegar ég byrja að vinna í
Búnaðarbankanum þá er ekki
verið að ráða mikið af háskóla-
menntuðu fólki í bankana. Ég
man að mér fannst ég hafa
mjög léleg laun miðað við koll-
ega mína sem störfuðu í einka-
geiranum. Ég var samt ekki á því
að hætta í bankanum, fann mig
ágætlega þar og tel kannski nú
að sú reynsla sem ég hef safn-
að í gegnum árin hafi komið mér
í þá stöðu sem ég er í dag, enda
er það mín skoðun að starfs-
reynslan sé einn dýrmætasti
kosturinn við góðan starfsmann.
Reynslumikill starfsmaður getur
nálgast hluti öðruvísi en starfs-
maður sem nýkominn er úr námi.
Það getur verið að sumum finn-
ist sá reynslumeiri ekki nálgast
hlutinn nógu markaðslega, en
varkárni er það sem gildir í útlán-
um og eitt stórt lán til fyrirtæk-
is sem ekki skilar sér skilur eftir
stórt skarð.“
Leitum uppi hæfasta
einstaklinginn
Samkvæmt könnun er hlut-
fall kvenna eitthvað um 70%
af starfsmönnum fjármálafyr-
irtækja, en konur eru í mikl-
um minnihluta þegar kemur að
áhrifastöðum. Hver skyldi skýr-
ingin vera: „Að mínu mati er
veigamesti þátturinn fram að
þessu fögin sem mennta upp
stjórnendur í bankakerfinu, við-
skiptafræði, verkfræði, lög-
fræði og hugsanlega stærðfræði,
fög sem voru framan af algjör-
ar karlagreinar. Það er ekki fyrr
en á síðustu árum að konur eru
að verða meira áberandi í verk-
fræði, þar sem þær sáust varla,
en verkfræðingar eru eftirsótt-
ur vinnukraftur fyrir bankana.
Þegar svo litið er til þess hvað-
an stjórnendur í bankageiran-
18