Læknablaðið - 01.02.1915, Blaðsíða 16
30
LÆKNABLAÐIÐ
Glycerin og Phenolu m, en af þessum lyfjum eru víst til næg-
ar birgöir til eins árs.
O p i u m og o p i u m p r æ p a r ö t hækka stöðugt í veröi og sömuleiöis
Bómull og gase hækkaöi þegar í byrjuti ófriðarins um 50 pct. og
20 pct. Gase er nú ekki dýrara en áöur, en bómullin er enn 33 pct.
dýrari.
Rvik, 10. febrúar 1915. p Q CHRISTENSEN.
íslenzk læknafélög.
Þegar nú er veriö að koma á fót íslenzku læknablaði, og jafnframt
stofnað til meiri samvinnu en áöur meðal ísl. lækna, þykir vel til fallið,
að geta stuttlega um þær tilraunir, sem áður hafa veriö geröar til þess
að koma á fót félagsskap meðal lækna. Eftirfarandi yfirlit hefir J ó n
R o s e n k r a n z háskólaritari samiö fyrir Lbl. Til viðbótar má geta
þess, að á árunum 1902—4 höfðu læknar norðan og austanlands félag
með sér og gáfu út dálítið fjölritað blað, sem nefnt var „Læknablaðið".
Ritstjóri þess var Gu ð m. Ii a n n e s s o n. Þeir reyndu og aö koma á
lestrarfélagi fyrir lækna og læknabindindi. Erfiöur reyndist hann þessi
félagsskapur og féll um koll eftir 3 ár.
*
* *
Fyrsti læknafundur hér á landi var haldinn dagana 27.—30. júli 1896.
Voru þá 12 læknar samankonmir víðsvegar að af landinu. Formaður
fundarins var dr. J. Jónassen en skrifarar Þórður Thoroddsen og Jón
Jónsson.
Þessi mál voru rædd á fundinum:
1. Breyting á skipun læknahéraða.
2. Kjör lækna.
3. Landspítali.
4. Læknaskólinn.
5. Holdsveikismálið.
6. Sóttvarnarhús.
7. Bólusetning.
8. Stofnun ísl. læknafélags.
9. Sjúkrahús út um landið.
10. Berklaveikisrannsóknir.
11. Hagskýrslur og bókfærsla
lækna.
12. Ferðastyrkur til lækna.
13. Sjúkrasjóðir.
14. Heilbrigðisnefndir.
15. Vitfirringastofnun.
16. Lyfsölumál og lyfjaskrá.
17. Yfirsetukvennamál.
Næsti læknafundur var haldinn 29. júlí 1898. Voru þar 9 læknar, er
stofnuðu hiö fyrsta ísl. læknafélag og samþyktu lagafrum-
varp og létu prenta, en ekki verður séð að þaö félag hafi haldið áfram
störfum.
2. ágúst 1909 komu 9 læknar saman í Hótel ísland til að ræða um
Sjúkrasamlag Reykjavíkur, sem þá var verið að koma á fót. Var kosin
nefnd til að athuga það mál, og upp úr því var Læknafélag Reykjavíkur
stofnað 18. okt. 1909 og lög samþykt fyrir félagið, en fastur rekspölur