Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.1920, Síða 16

Læknablaðið - 01.01.1920, Síða 16
10 LÆKNABLAÐIÐ Læknisleysið i fámennu héruðunum. Frá næsta nýári aö telja, komast. lélegustu héruöin í hæsta launaflokk. Læknar munu yfirleitt hlyntir ])eirri stefnu, sem tekin hefir veriö af lög- gjafarvaldinu, þó a'ö ýmislegt sé athugavert viö flokkunina sjálfa, þvi hún bvggist á fólksfjölcla og tekjum o. fl., sem mjög getur verið breyti- iegur á stuttum tíma og þaö árlega. Aö launa best smáu héruöin, mun aöallega gert, til að tryggja þeim lækna, og til aö gera þau lifvænleg fyrir læknana. Liggur því nær aö halda, að sum þeirra standi eigi árurn saman auð framvegis, eins og veriö hefir undanfarandi. En þeir sem álíta, aö þaö eitt sé nóg til að tryggja fámennari héruöunum lækna, aö launa þeirn sæmi- lega, þeim skjöplast illa sýn. Læknar láta ekki ginna sig eins og þursa meö peningum. Ungir læknar hugsa mest urn frama sinn og framtíðargengi. Þaö er efalaust stor þáttur í aö gera þessi fámennari héruö vistleg fyrir læknana, aö launa þau sómasamlega, svo læknirinn lendi þar eigi í fjár- hagslegum vandræöum. En meira þarf, ef duga skal. Sérstaklega þurfa læknar aö eiga vist húsnæði í þessum héruðum, — vísa bústaöi, sem hér- uðin eigi, og þeir geti gengið aö gegn hæfilegri leigu. Ennfremur þurfa keknarnir. sem lenda i þessum héruöum — og þaö tel eg hvaö þýöingar- mest, — að eiga það víst, aö komast úr þeim í betri héruðin, eftir því sem þau losna. Áöur fyrri fóru ungu læknarnir í fámennari héruðin, meö þeirri óbifan- legu von og vissu, aö fá Letri héruð, eöa standa betur aö vígi með aö fá betri héruö, eftir að hafa þjónað þeim en ella. Á síðari árum hefir brugðiö skugga vfir þessa von læknanna, og þaö ekki aö ástæöulausu. Ungu læknarnir forðast nú orðið lélegri héruðin, eins og heitan eldinn. Mun það stafa af því, aö minna er þar að gera en i þéttbýlli héruðunum, iæknis vitjaö litiö heima fyrir; löng og erfið feröalög taka rnestan tíma þeirra sem þar eru. Þetta mun þó eigi út af fyrir sig fæla læknana frá héruðum þessum, heldur einkum það, aö veitingavaldiö virðist vera þeirrar skoðunar, að þessi héruö séu svo rýr, aö læknar geti eigi lært þar; frekar tínt þar niður fræðum sinum, en aukiö þau. Og þar af leiðandi viröast svo læknarnir stundum vera látnir gjalda þess, en eigi njóta, að þeir hafa ient í þessum héruöum. Sé þessi skoðun veitingavaldsins á rökum bvgö, þá er hún í mesta máta holl fyrir ungu læknana, því eðlilega er hér sem annarstaöar ,,prævention better than cure“. Gagnvart heilbrigðismálum landsins er hún á hinn bóginn mjög varhugaverð, því hún eykur læknis- leysið i héruöunum, gerir þaö að verkum, að læknarnir forðast þau, eins og heitan eldinn. Er þessi skoðun veitingavaldsins á rökurn bygð? Þaö er alvarlegt mál, að þjóðin skuli gera kröfu til 12 ára undirbúnings starfi læknanna, ef allur þeirra lærdómur á svo að fara út i veður og vind, Jjegar starfið er hafiö, þó í lélegri héruðunum sé, þegar reynslan. og æfingin kemur til greina. Að minsta kosti er það augsýnn þjóðarhagur, að einskis sé ófreistað, bæöi af hálfu veitingavaldsins og læknastéttarinnar, til þess aö fyrirbyggja jafn- hraklega útkomu og þetta virðist vera. Eg fyrir mitt leyti er sanniærður

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.