Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.1924, Síða 16

Læknablaðið - 01.01.1924, Síða 16
10 LÆKN ABLAÐIÐ fische Leistungssteigerung, Ubcrs. v. L. Böhmc, Berlin 1923. Matthes, Klin. Woch. 1922, nr. 44. Zimmer, A., Ergebn. d. ges. Med. IV. 1923. Bier, Heilentziind. u. Heil- fieber, Munch. m. Woch. 1921, nr. 6. Weichhardt, Múnch. med. Woch. 1921. nr. 16. Autor, Ther. d. Geg. 1923 H. 7. + Magnús E. Jóhannsson. 27—7—1874 — 21—12—1923. Reynslan sýnir að læknar verða skammlífir menn. Mun það eigi of mælt, að því er íslenska lækna snertir. Dauðinn hefir höggt'ið allstórt skarð í læknastétt vora á örstuttum tíma, því fimm læknar hafa fallið í valinn á fáum mánuðum. Allir menn á besta aldri. Engan þarf að furöa, þó íslenskir héraðslæknar í erfiðum útkjálkahér- uðum kembi ekki hærurnar, því þeirra hlutskifti er oft hið ömurleg- asta. Launin löngum lítil, praxis rýr, ferðalög á nóttu og degi, oft gang- andi yfir fjöll og firnindi; óvíða þæg- indi, svo sem sjúkraskýli eða iæknis- bústaður; mikil einangrun og fáir komast í betri héruð; þeir eru grafn- ir lifandi á þessum útkjálkutn. Landið er strjálbygt og fátækt, svo þetta ástand er ekki óeölilegt. Einn þessara héraðslækna, Magnús Jóhannsson, er nú dáinn á besta aldri. Hann fæddist í Arabæ í Reykjavík 1874 og ólst upp hjá fátækum for- eldrum. Hann gekk í latí'nuskólann og útskrifaðist þaðan 1894, fór sið- an á læknaskólann og útskrifaðist 1898. Sama ár var hann settur læknir i Skagafirði, en hafði árið áður um tima gegnt héraðslæknisstörfum á Eskifirði. Sigldi til Kaupmannahafnar, á fæðingarstofnunina. Fékk árið 1900 hið nýstofnaða Hofsóshérað, ])ar sem hann reisti sér læknisbústað á Hofsósbökkum og sat þar til dauðadags. Eg kyntist Magnúsi heitnum bæði í latínuskólanum og á læknaskólan- um. Hann var góður drengur. Sjaldan hefi eg kynst jafnlyndari manni, hann brá mjög sjaldan skapi, og lagði ávalt gott til allra mála, sem hann var við riðinn. Hann var mesta prúðmenni í allri framgöngu. Sem lækn- ir, mun hann hafa verið í góðu meðallagi, natinn og samviskusamur með afbrigðum. Góðmenska hans og viljinn til þess að hjálpa gerði sjúkling- ana að vinum hans.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.