Læknablaðið - 01.05.1924, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ
75
+
Þórhallur Jóhannesson
héraðslæknir í Þistilfjarðarhéraði,
Þórhallur læknir fæddist aS Dalshúsum viö Bakkafjörö i Noröur-Múla-
sýslu j8. júní 1887. Foreldrar hans voru Jóhannes Bjarnason bóndi í Dals-
húsurn og Friöjóna Friöbjarnardóttir. Bjuggu þau hjón yfir 30 ár í Dals-
húsum. Efnahagur var þröngur og börnin 7, en eigi aö síöur var snemma
reynt aö veita Þórhalli nokkra tilsögn í bóklegum fræöum, því undir
eins á æskuárunum var hann meö allan hugann viö bækur, en hneigöist
minna aö búskap og daglegum störfum. Fyrst var honum komiö í kenslu
lil Guöm. Hjaltasonar, sem hélt uppi unglingaskóla á Þórshöfn, og féll
Guömundi svo vel viö piltinn, aö hann hvatti foreldra hans mjög til þess
að koma honum til menta. Fór hann síðan á gagnfræöaskólann á Akureyri
og þaðan á mentaskólann og tók stúdentspróf voriö 1910 (79 stig). Em-
bættisprófi i læknisfræði lauk hann 1915 meö I. einkunn (1723/3 st.).
Eftir ]raö dvaldi hann um árs tíma á sjúkrahúsum erlendis, og var veitt
Þistilfjarðarhéraö 2. ágúst 1917, er hann kom heim. Hafði hann gegnt
því embætti í 8 ár, er honum var veitt Flateyrarhérað. Hann var á leiö-
inni þangað, en komst ekki lengra en til ísafjaröar, og dó þar á sjúkra-
húsinu þ. 18. apríl þ. á., 37 ára gamall.
Mikinn hluta af námsárum sínum átti Þórhallur heitinn aö stríöa viö
fátækt og vanheilsu. Hann lá veikur heilan vetur á Akureyri í brjóst-
himnubólgu, og hefir þá eflaust verið búinn að fá berklav. í lungun. t