Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1929, Blaðsíða 8

Læknablaðið - 01.12.1929, Blaðsíða 8
LÆKNABLAÐIÐ 190 ferÖin reynist stundum vel vi<5 lítilsiglda andstæÖinga, og hefir J. J. talið þetta hæfilegt í viÖureign við svo lélega gefið og mentunárlítið fólk, sem hann álítur allan þorra lækna. Ýmsir hafa furöað sig á þvi, að ritstjóri „Timans“ hefir verið látinn neita form. Lf. ísl., próf. G. H., um rúm í blaðinu, til andmæla. En þetta er ofureðlilegt. Blaðinu er væntanlega annað kærara, en að hnekt sé mis- sögnum um læknana. Nokkrar þeirra skulu raktar hér, í þeirri röð, sem þær eru fram settar í greinum hr. J. J. 1. Mjög fer vel á því, að ráðherra kirkjumálanna skuli í upphafi máls síns koma fram sem rétttrúaður umboðsmaður hinnar lútersku-evangelisku trúar, og draga upp mynd af hinu skelfilega ástandi af völdum kaþólsku kirkjunnar á miðöldunum. Telur hr. J. J. samtök læknanna hliðstæð ógnarvaldi kaþólsku klerkastéttarinnar, er myndaði ríki í rikinu. Væntanlega er ráðherrann ekki í vafa um — fremur en Vilhjálmur 2. hérna á árunum, — að hann hafi guð með sér. Ráðherrann herjar því ótrauður á læknana, sem vilja rjúfa rikisheildina og veikja konungsvaldið (in casu dutlunga hr. J. J. við em- bættaveitingar). 2. Hr. J. J. telur, að í almæli hafi verið, siðan á sl. sumri, að læknar hafi ráðgert allsherjar verkfall, jafnvel þótt um „dauðveika menn og sængurkonur í lífshættu“ væri að ræða. Kynlegt má þykja, að ráðherra heilbrigðismál- anna skuli ekkert hafa aöhafst til að afstýra þeim voða, sem vofði yfir almenningi. Hversvegna? Ráðherrann hefir auðvitað aldrei lagt trúnað á slikar sögur, sem væntanlega eru til orðnar i hans eigin höfði. En yfir- manni læknastéttarinnar er ljúft að bera þennan uppspuna fram í blaði stjórnarinnar. 3. Ráðherrann fer háðulegum orðum um tillögur próf. Guðm. Hanncs- sonar og meðnefndarmanna hans í Landsspítalanefndinni, er á sínum tima lögðu til, að reistur yrði spítali, sem fullgerður hefði kostað 3 milj. króna. Tillögur þessar fengu ekki byr á Alþingi; hælist ráðherrann mjög af því, og segir: „Leikmenn á þingi tóku málið úr höndum óvitanna í félagsmál- um, létu byggja sjúkrahús, í hóf við fjárhagsmátt og þarfir landsmanna . . . .“ Ráðh. gefur hér alranga hugmynd um tillögur próf. G. H. og nefndar- innar (meðal „óvitanna“ í Landsspítalanefndinni voru próf. Guðm. Thor. og héraðslæknir Jón Hj. Sig.!). Skv. tillögum nefndarinnar átti ekki að reisa í byrjun nema helming fyrirhugaðrar byggingar; hefði þó orðið þar engu minna rúm fyrir sjúkl., en í spítala þeim, sem nú er verið að reisa. En verð hans verður væntanlega ekki mikið neðan við 11/2 milj. króna. Ráðherranum gefst í náinni framtíð kostur á að sýna í verki einlægan áhuga sinn á spítalamálinu. Eftir er að fullgera spítalahúsið að innan, og kaupa í það húsmuni alla og önnur áhöld. Óbygðar eru og ýmsar nauðsyn- legar byggingar, auk aðalhússins. Nóg verkefni fyrir ráðherrann á næst- unni, að koma á fót spítala með nýtísku sniði! Enginn læknir hefir sýnt eins mikinn áhuga á Landsspítalamálinu og próf. Guðm. Hannesson. Hann hefir árum saman unnið í Landsspítala- nefndinni, f. tilmæli ríkisstjórnarinnar, að undirbúningi og bygging spítal- ans. Allir nefndarmenn hafa unnið endurgjaldslr.ust. Þakkir landsstjórn- arinnar til próf. G. H. birtast svo frá hr. J. J. i stjórnarblaðinu! 4. Hr. J. J. furðar sig á því, að „heilbrigðisnefnd reykvískra lækna“ (hvaða stofnun er það?) skuli ekki hafa afstýrt misbeiting nokkurra lækna,

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.