Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.1932, Blaðsíða 19

Læknablaðið - 01.01.1932, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ 13 af þeim sýktu (fatality rate). — Samtimis bólunni gekk þar einnig hlaupa- bóla. — (Rapport épidémiologique mensuel. Societé des nations, Genéve 15. oct. 1931). Stgr. Matth. Úr útlendum læknaritum. Berklaveiki á ungbörnum. ViÖ eftirlit á börnum í Leningrad fundust 7 börn berklaveik og voru öll innan 3 mánaða. (Lancet 15./8. '31). G. H. Calmettes bólusetning vekur meiri athygli í Frakklandi en öll hin læknisfræðin til samans, segir fréttaritari „Lancets". 1. júlí f. á. höfðu verið alls bólusett 354.000 börn i Frakklandi einu. Síðustu skýrslur um bólusetninguna hefir þaulvanur skýrslufræðingur samið, og styðja þær mjög álit Calmettes. (Lancet I5-/8. ’3i). G. H. Abortus provocatus í Rússlandi. Tímatakmark 3 fyrstu mánuðirnir. — Endurtekning ekki fyr en eftir 6 mán. — Rúmlega í 3 daga. — Læknir getur neitað að gera abortus, ef hann telur það sérstaklega hættulegt fyrir heilsu sjúkl. Þrátt fyrir greiðan aðgang að læknishjálp og spitölum mikið um abort. criminalis. Þó ab. prov. sé leyfður, er barnkoman engu minni en fyr. 48% kvenna óska ab. vegna fátæktar, 22% vegna lasleika, 10% vilja ekki eiga börn, 0,5-—4% vilja ekki láta vitnast, að þær séu vanfærar. (J. A. H. 18./7. ’3i). G. H. Kandidatastöður í Danmörku. Með vaxandi kandidatafjölda eru gömlu kandidatastöðurnar hættar að hrökkva til. Þær voru aðeins 43, en nú útskrifast árlega um og yfir 100 kandidatar. Félag ungra lækna ræður því hverjir komast að og hvar. Þeir, sem afgangs verða, bíða til næsta árs. Þetta heíir leitt til þess, að biðin verður óhæfilega löng og kandidatar setja sig niður, án þess að vera 1 ár á spitala. Nú þykir það, með réttu, nauðsynlegt, að læknar hafi eitt „turnus“-ár. Til þess að ráða bót á þessu, er ráðgert, að fjölga föstum kandidatastöð- um að miklum mun, og hrökkvi það ekki til, að fjölga stöðunum eftir því sem þörfin krefur, svo allir komist að rétt eftir próf. Vitanlega kostar þetta nokkurt fé. Kandidatar í Danmörku fá 140 kr. á mánuði og alt frítt. (Ugeskr. f. L. 17./9. ’3i). G. H. Umferða-tannlækning. Tannlæknir einn í Stokkhólmi hefir keypt sér góðan vélbát og komið fyrir tannlækningastofu í honum. Hann fer svo í bátnum milli eyjanna í Skárgárden og gerir við tönnur eyjabúa. (Hyg. rev. 15./8. ’3i). G. H.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.