Læknablaðið - 01.03.1933, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ
33
þessum er því undanrenna, bætt mecS larosan eða nýju, ósúru skyri, sætt meÖ
saccharini. Næsta stigið er vel fleytt kjötseyði með eggjahvítu, hökkuðu
hænsnakjöti. Þriðja stigið horað kjöt og fiskur, bananar, tvíbökur, ristað
franskbrauð, þursteiktar kartöflur, skafin epli, hrísmjölsgrautur. Auk þessa
nægileg bætiefni.
Hin aðferðin, sem kend er við Fanconi, gengur í þveröfuga átt, hún hefir
að sögn reynst betur, batinn varanlegri, afturköstin ekki eins tíð. Fanconi
bannar alveg mjólk, mjöl og sykur. í stað mjólkur koma áfir. Kjöt, egg, og
fita eru mjög takmörkuð. Aðalfæðan eru ávextir og grænmeti, svo sem appel-
sínur og citrónusafi, neutraliserað með calc. carbon, bláberja-, hindberja- og
þrúgusaft til drykkjar. Átmaturinn eru banarar, skafin epli, spinat, gulræt-
ur, blómkál, tómatar, kartöflur, alt fínmulið, gufusoðið eða hrátt.
Lyf hafa reynst fánýt við cöliaki; af stemmandi lyf jum hafa dýrakol
einna helst komið að notum. Ferment-præparöt hafa verið reynd árang-
urslaust. Við anæmiuna hefir ferrum reductum þótt gefast einna best, lifur
aftur á móti gagnslitil. Oft sýnist blóðtransfusion intravenöst eða intra-
musculært bæta almennu líðanina að mun. Quartsljós hafa og reynst vel
við neuropathi hjá þessum börnum sem öðrum.
Hvað differential diagnosis við vikur, þá kemur varla annar sjúkdómur
til greina en tuberculosis, sem auðvelt er að útiloka með endurtekinni cutan,
intracutan eða subcutan tuberculin reaction.
Transplantatio a. m. Thiersch
er aðgerð, sem oft er og verður gripið til, þegar skinga þarf sárfleti.
Aðferðin er handhæg, — því þekjuflögurnar eru við hendina — á sjúk-
lingnum sjálfum, — og er það næstum ótakmarkað, hve mikið má taka,
smátt og smátt, því fleiðrin gróa jafnharðan upp og þekjuflögurnar eru
flvsjaðar af.
F.g hefi minst á transpl. a. m. Thiersch í Lbl. okt. '26, í sambandi við
lækningu á ulcus cruris. Stór ulcera cruris hefi eg oft skorið í burtu, á-
samt subcutan bandvef og fasciae, inn á bera vöðva, og transpl. svo með
flögum á nýja sárið. Enn verður stundum að grípa til þessa, þótt sjaldnar
sé nú, eftir að alment er orðið að stífla venæ varicosæ með injectio vari-
soni, sol. na. cl. eða öðrum þvílíkum meðölum. En injections-aðferðin er
miklu umsvifaminni og jafnframt öruggari til fullkominnar æðastíflu en
resectio venæ saph. (Trendelenburg eða Babcock).
Eg nota enn sömu meðferð á nýþöktu sári og lýst er í umræddri grein
og ætla eg að endurtaka lýsinguna hérna, því mér reynist aðferðin enn
jafnvel.
„Fyrst legg eg einfalda, sterila grisju á þekjuna, þvi næst margfalda
grisju vel undna úr hórvatni, og þrýsti henni að sárinu, síðan margfalda
grisju þurra, og loks þar utan yfir stóra, marggata gúmmíblöðku. Þessum
umbúðum er skift annanhvern dag, öllum, nema insta grisjulaginu; það
er látið vera allan tímann, þar til gróið er. Þessar umbúðir haldast rak-