Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.06.1946, Qupperneq 13

Læknablaðið - 01.06.1946, Qupperneq 13
LÆKNABLAÐIÐ 87 að oft liafa 1—2 skeiðar af laxerolíu riðið mönnum að fullu, þótt þeir liefðu átt að hafa góðar batahorfur ella. f Pennsylvaniufylki í Banda- ríkjunum liefir i mörg ár verið haldið uppi áróðri og hrýnt fyr- ir mönnum að forðast hægða- lyf, ef þeir fá „verk í magann“. Árangurinn telja læknar koma fram í því, að 1930 dóu 1252 sjúklingar eftir appendecto- miu, 1940 886 og 1942 624. Strax þegar sjúklingar koma á deildina, er tekin afstaða til, hvort gera skuli óperation eða ekki, og er þá venjulega allt tilbúið til aðgerðar að klukku- slund liðinni. Sjúklingar, sem koma á deildina eftir miðnætti, eru alltaf ópereraðir strax, aldrei „geymdir“ til morguns. Annars er það hrein undan- tekning, að sjúklingur komi eftir miðnætti. I 122 sjúkra- sl:rám er þess getið, klukkan livað sjúklingurinn kom á deildina, og geri eg ráð fyrir, að sú mynd, sem þá kemur fram, gildi fyrir heildina, í að- aldráttum a. m. k. Það kemur þá í ljós, að 90% af sjúkling- unum koma á deildina frá há- degi til miðnætis, og 77% frá því kl. 18 til 24. Má af því sjá, að ekki er allt með felldu, því að sjúkdómurinn gerir engan mun á nóttu og degi, og ættu því sjúklingar að berast að jafnl á öllum tímum sólar- hringsins. En greinilegt er, að þeir sjúklingar, sem ekki koma fyrir miðnætti, mega lang- flestir lig'gja heima næstu 12 klukkustundir, eða til hádegis næsta dag. Það lítur helzt út fyrir, að læknarnir séu að átta sig' á sjúklingnum frain eftir degi og séu þá orðnir vissir um diagnósuna eða þori ekki að „salta“ sjúklinginn yfir nótt- ina og sendi hann því á spitala. 3. mynd sýnir á hvaða tíma sólarhringsins sjúklingarnir koma i spitalann.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.