Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1946, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 01.06.1946, Blaðsíða 20
94 LÆKNAliLAÐIÐ tionar, ef með þarf. Sama máli gegnir auðvitað um aðra sjúk- dóma, bæði cliirurgiska og me- dicinska. Krafa lækna hlýtur þvi að vera: fleiri sjúkrarúm og það hið bráðasta. Vitanlega má á það benda, að ef bætt verði að taka botn- langann úr sjúklingum, sem aldrei liafa fengið botnlanga- bólgu, mundi losna talsvert af rúmum; en verulegur hluti þeirra sjúklinga þarfnast samt spítalavistar til rannsóknar, sem oft er miklú tímafrekari en einföld appendectomia. Tvennt er eftirtektarvert í samhandi við perfórativ appcn- dicitis: 1.) 68% af sjúklingun- um voru karlar, en aðeins 32% konur. Eru þetta svipuð hlut- föll og annars staðar getur, en ekki kunna menn neina ein- lilíta skýringu á því. 2.) 18 börn alls, 5 ára og yngri, komu með appendicitis acula, og voru öll með perforalion, ekki eitt ein- asta með ósprunginn bolnlang- ann. Stafar þetta vafalaust af því, bve erfitt er að greina ap- pendicitis bjá börnum. Er það þcim mun alvarlegra.sem varn- ir barnanna gegn diffús peri- tónitis eru fátæklegri frá nátt- úrunnar hendi en fullorðinna. Appendix er tiltölulega lengri og coecum meira mobil hjá börnum en fullorðnum. Auk þess er ómentið stutt og óveru- legt fyrstu árin, svo að lítil vörn er í því gegn því, að in- fection breiðist út frá appen- dix. Að lokum nokkur orð um þá dánu, en það voru alls 8 sjúk- lingar, og er það 3,05% mort- alitet af öllum hópnum. Allir þeir, sem dóu, voru með sprunginn botnlanga, og er dánartalan í þeim hópi tæp- lega 10%. 1. Eins árs gamall drengur. Hafði legið lieima í 4 sólar- liringa, áður en hann kom, var opereraður strax og bann kom á deildina og lagður keri í sárið. Hafði þá 39,6° liita og púls um 160. Dó eftir 2Yz sólarhring. Var ekki krufinn. 2. 42 ára gamall karlmaður, sjúklingur á Nýja Kleppi. Ekki verður séð, live lengi hann liafði verið veikur fyr- ir aðgerðina. Dó eftir 7 daga. Sectionsdiagnosis: Periton- itis diffúsa. 3. 16 ára gamall piltur. Hafði legið heima í 3 sólarhringa. Hiti við komuna 39,0°, púls 120. Óperationin gekk greið- lega. Dó eftir 6 daga. Sec- tionsdiagnosis: Ileus stran- gularis intestini tenuis. 4. 70 ára gamall karlmaður. Hafði legið heima í 7 daga. Diffús peritonitis. Við óper- ationina var tæmt út ca. 1 1. af serópúrúlent, illa lvkt- andi vökva. Dó á þriðja degi. Sectio: Peritonitis.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.