Læknablaðið - 01.12.1946, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ
151
einkennin hafa varað. Sam-
kvæmt rannsóknum Aage Niel-
sen’s og Krarup’s læknast eftir
eina meðferð á sjúkrahúsi ca.
helmingur sjúklinga, sem hafa
haft einkenni í 14 ár eða skem-
ur, en ef einkennin liafa varað
í 1 ár eða lengur, læknast að-
eins Vs hluti sjúklinganna. Það
varðar einnig mjög miklu, að
sjúklingarnir geti fylgt þeim
reglum, sem þeim eru settar við
brottför af sjúkrahúsinu.Fyrsta
árið eftir meðferð verður að
líta á sem einskonar afturbata-
skeið (reconvalecens). Sjúkl-
ingarnir verða að lifa rólegu,
reglusömu og áhyggjulausu lífi,
forðast alla áreynslu, bæði lík-
amlega og andlega, og fylgja
reglum um matarræði, sem
þeim eru settar.
A 7. töflu sést, að 33 af þeim
51 sjúklingi sem eg hefi fengið
upplýsingar um, hafa haft ein-
kenni lengur en 1 ár áður en
þeir fengu meðferð. Samkvæmt
upplýsingum sjúkraskránna um
stétt sjúklinganna, sést, að ca.
% þeirra unnu líkamlega erfið-
isvinnu; þar til teljast sjómenn,
bændur, verkamenn til sjávar
og sveita, konur þeirra og upp-
lcomin börn. Mér þykir senni-
legt, að þetta fólk hafi ekki átt
kost á þvi að fvlgja þeim lífs-
reglum, sem því voru settar við
brottför.
Öruggasta aðferðin við rann-
sóknir eftir á, slíkar sem þessar
skyldi maður ætla að væri sú,
að vista sjúklingana á spítala
meðan á rannsókninni stendur.
Þeir sem hafa reynt þá aðferð,
hal'a komizt að þeirri niður-
stöðu, að það, er mestu varðar
við þessar rannsóknir eru upp-
lýsingar um kvartanir sjúk-
linganna. Þeir geta haft sér-
kennileg ulcus-einkenni þó að
sýruinnihald í maga og rönt-
genrannsókn sé eðlileg og saur-
inn sé blóðlaus. Hinsvegar geta
sjúklingar haft miklar sýrur i
magainnihaldi og ákveðin „rönt-
genologisk“ ulcuseinkenni þó að
þeir séu óþægindalausir. Flestir
hafa því valið þann kostinn, að
leggja „súbjektív“ einkenni
sjúklinganna til grundvallar,
þegar þeir dæma um ástand
þeirra. En þá verður að dæma
árangur slíkra rannsókna með
hinni sömu varkárni og aðrar,
sem ekki eru byggðar á ákveðn-
um „objektív“ einkennum.
Einnig verður að hafa það i
huga, að þó sjúklingar hafi
haft ulcus pepticum fyrir 5 ár-
um og einkennin hafi horfið um
tíma, en svo byrjað aftur, þá er
ekki loku fyrir það skotið, að
þau einkenni geti stafað frá
öðrum líffærum en maga og
skeifugörn, t. d. frá gallrás,
þvagfærum, pancreas eða geni-
talia interna, né að einkennin
geti stafað af óhóflegri tóbaks-
nautn eða af sálrænum truflun-
um. Þessi atriði finnst mér ekki