Læknablaðið - 01.12.1946, Page 18
152
LÆKNABLAÐIÐ
vera tekin nógsamlega til greina
í þeim ritum, sem eg hefi sé'ð
um þessi efni.
Mínar rannsóknir verður auð-
vitað að dæma með varkárni,
og það fj7rst og fremst, vegna
þess að sjúklingafjöldinn er of
lítill til þess að unnt sé að
byggja á honum öruggar álykt-
anir. Eg þykist þó með vissu
geta sagt, að á 3. deild Land-
spítalans hefir ulcus ventriculi
á síðasta áratug verið miklu
tíðari en ulcus duodeni, þvert á
móti því, sem verið hefir ann-
arsstaðar, og ennfremur, að ár-
angurinn af meðferðinni hefir
ekki verið glæsilegur, en þó
ekki stórum lakari en annars-
staðar gerist á Norðurlöndum.
Þó sjúklingafjöldi minn sé
lítill, má sjá sömu stefnuna í
mínum töflum og i töflum
þeirra, sem unnið hafa úr stærri
sj úklingaf j ölda. Samkvæm t
þeim rannsóknum verður nið-
urstaðan um lyflæknismeðferð
á ulcus pepticum i fám orðum
þessi, þegar miðað er við minnst
5 ára athugunartíma: Bata-
horfurnar eru beztar hjá sjúkl-
ingum, sem hafa blæðandi ul-
cera. Af sjúkhngum með liæma-
temesis batnar ca. 40% og af
sjúklingum með melæna ca.
30% eftir eina meðferð. Horf-
urnar eru stórum alvarlegri hjá
sjúklingum sem hafa ekki blæð-
andi ulcera. Af sjúklingum, sein
hafa ulcus duodeni verða ca.
20% albata, en aðeins ca. 14%
af þeim, sem hafa ulcus ventri-
culi. Batahorfurnar eru að mjög
miklu leyli liáðar því, hve lengi
sjúklingurinn hefir haft ein-
kenni áður en hann fékk með-
ferð á sjúkrahúsi. Af þeim
sjúklingum, sem hafa haft ein-
kenni í */2 ár eða skemur, verð-
ur ca. lielmingurinn albata, af
þeim, sem liafa liaft einkenni í
ca. 1 ár, verða ca. 35% albata,
og af þeim, sem hafa liaft ein-
kenni í 1 ár eða lengur, geta að-
eins ca. 20% gert sér vonir um
algeran bata eftir medicinska
meðferð.
Því oftar sem sjúklingarnir
hafa orðið að fá lyflæknismeð-
ferð, því minni eru líkurnar til
þess, að þeir fái algeran hata,
þegar um er að ræða ulcera, sem
sjást við röntgenrannsókn. Af
sjúklingum, sem liafa ulcus
ventriculi eða ulcus duodeni
læknast aðeins 10 af hundraði
eftir að þeir hafa fengið lyf-
læknismeðferð tvisvar eða oft-
ar, en 30-—10% geta gert sér
vonir um að verða skárri.
Batahorfur karla og kvenna
eru svipaðar, og ekki er með
fullri vissu vitað, hvort þeim
sjúklingum vegnar betur, sem
veikjast ungir eða þeim, sem
veikjast á efri árum.
Iiundraðstala endurfalla eft-
ir lyflæknismeðferð er mjög há.
Hún er hæst hjá sjúklingum,
sem liafa ulcus ventriculi, þar
næst ulcus duodeni, en lægri hjá
þeim, sem hafa blæðandi ulcera.