Læknablaðið - 15.08.1947, Síða 9
LÆKNABLAÐIÐ
71
rannsóknum og á fleiri svi'ð-
um en hinir umsækjendurnir,
eins og rilgerðir hans bera
ljósan vott.
Að þessu athuguðu mælir
deildin með því að dr. Óskari
Þ. Þórðarsyni verði veitt pró-
fessorsembættið i lyflæknis-
fræði.
Júl. Sigurjónsson.
Jón Steffensen
Ivristinn Stefánsson
Bergsv. Ólafsson
Björn Sigurðsson
Jón Ilj. Sigurðsson
ÓI. Þorsteinsson
Hannes Guðmundsson
Guðm. Thoroddsen.“
(sign.).
Þann 8. júlí er eftirfarandi
tilkvnning hirt í útvarpinu:
„Á ríkisráðsfundi höldnum 8.
júlí, sem var 100. fundur frá
stofnun lýðveldisins, veitti for-
seti íslands .Tóhanni Sæmunds-
syni prófessorsembættið í Ivf-
læknisfræði i læknadeild Há-
skóla íslands.“
Þann 11. júh er haldinn
fundur í læknadeild Háskól-
ans og er fundargerðiií þannie:
„Fundur í læknadeild 11. júli
1047.
í tilefni af veitingu prófess-
orsembættisins i Ivflæknis-
fræði, var þctta bókað og sam-
þykkt með samhljóða atkvæð-
um:
Læknadeildin óskar eftir að
háskólaráð átelji harðlega
meðferð menntamálaráðherra
á tillögu læknadeildar um veit-
ingu prófessorsembættisius í
Ivflæknisfræði við Háskólann.
Læknadeildin hafði mælt
með því að dr. med. Óskari Þ.
Þórðarsyni yrði veitt embætti
þetta, með því að auðsætt þólti
að hann hefði aflað. sér mestr-
ar og víðtækastrar reynslu í
scrgrein þeirri er hér ræðir um
(lvflækningum). Auk þess að
hann liefur tvímælalaust unnið
meira að vísindalegum rann-
sóknum en hinir umsækjend-
urnir, eins og rit hans bera vott
um. Telur deildin illa farið að
slíkur undirbúningur sé ekki
meira metinn við skipun í em-
hætti við Háskólann, enda
muni það ekki vænlegt til að
efla áhuga fyrir visindastarf-
semi.
Júl. Sigurjónsson.
Jón Sleffensen
Jón Hj. Sigurðsson
Niels Dungal
ÓI. Þorsteinsson
Hclgi Tómasson
Guðm. Thoroddsen
Jón Sigtryggsson
Hannes Guðmundsson.“
(sign.).
Þann 1. ágúst er eftirfarandi
skráð í gjörðabók háskólaráðs:
Ur gjörðábók háskólaráðs 1.
ágúst L9//7.
...........................
2. Veiting prófessorsembætt-
is i lyflælcnisfræði ....