Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1947, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 15.08.1947, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ 73 til embættisins. Allir, sem til þekkja, vita að sá dómur var byggður á faglegum forsend- um. Þar með er allur vafi tck- inn af um að Háskólinn Iiafi beýtt nokkurn umsækjendanna rangsleytni, og skyldi maður l)á ætla, að veitingarvaldið á Islandi fylgdi fordæmi ann- arra menningarþjóða og lilitli vilja æðstu menntastofnunar landsins. En sú varð ekki raun- in á, heldur er öðrum umsækj- enda veitt embættið, þótt hann, að dómi háskólakennaranna, væri talinn mun miður hæfur en dr. Oskar Þ. Þórðarson. Enginn mun halda þvi fram, að menntamálaráðherrann, hr. Eysteinn Jónsson, hafi betri skilyrði til þess að dæma um verðleika umsækjendanna en kennarar Káskólans, og skal bér engum getum að því leitt, livaða öfl bafa því valdið, að menntamálaráðherrann veitti ekki þeim umsækjenda em- bættið, sem samkvæmt hinum faglega dómi var lil ])ess hæf- astur. Það hefur lengi viljað brenna við að stjórnarvöld hérlendis, veittu háskólastöður þvert of- an i vilja Háskólans. Því miður hefur raunin orðið sú, að þcir sem náð hafa fundið fyrir aug- um veitingarvaldsins, hafa ekki haft þá háttvísi til að bera, að sætta sig við úrskurð Háskól- ans. Þess er tæpast að vænta, að frá hendi stjórnarvalda verði breytt hér um til batnað- ar, og úr hópi umsækjend# er eftir fyrri reyhslu lengi von á einum, sem tekur embættið fram vfir velsæmið. í slíku at- hæfi lýsir sér mikil lítilsvirð- ing á a'ðslu menntastofnun Iiins islenzka þjóðfélags, og er sú lítilsvirðing jöfn frá hálfu veitingarvaldsins og ])eirra manna, sem láta nota sig til þess að gerast leiksoppar ])ess. Fer ekki hjá því, að það valdi læknum sársauka, er það í fyrsta sinn hendir mann úr þeirra stétt. Með svipuðum veitingarhætti verða ekki liðin mörg ár, þar lil meiri hluti kennara við Há- skólann verður kominn að hon- um i óþökk Háskólans sjálfs. Er þá einsætt að virðing þjóð- arinnar fyrir Háskólanum hlýtur að skerðast. Ekki cr það lieldur líklegt,að ungir mennta- menn muni í framtíðinni leggja mikið i sölurnar til þcss að búa sig undir báskólastöður, er þeir sjá, að annað ræður meiru um val í stöðurnar en faglcg bæfni. Einnig er ])að bæpið að þeir, sem til háskólastarfa eru hæf- astir, vcrði óðfúsir að ganga i flokk þeirra manna, scm ])á verða við stofnunina. Úr því augljóst er hvert stefn- ir, cr bráð nauðsyn á því, að hafizt verði handa til þess, að stemma stigu fyrir slíkum vandræðum. Blaðaskrif og þvi- lík mótmæli duga ekki, enda

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.