Læknablaðið - 15.08.1947, Blaðsíða 16
78
LÆKNABLAÐIÐ
og aðeins dælt inn í sjúkling-
inn, um pípuna, nægilegu súr-
efni. Þá liggur sjúklingurinn
þarna algjörlega hreyfingar-
laus, pulsinn slær reglulega og'
litarháttur er eðlilegur, en
liann dregur andann ekki sjá-
anlega. Þegar sjúld. á að vakna
er súrefnisgjöfin aukin og gef-
ið auk þess N20, til þess að
flýta fyrir að cyclopropanið
útskiljist.
Þetla eru ómetanleg þægindi
fvrir skurðlækninn, við ýmsar
aðgjörðir og gjörir þær auð-
veldari og jafnvel framkvæm-
anlegar aðgjörðir, sem annars
væri trauðla liægt að gjöra.
Af því að búast má við, að
það dragist eitthvað enn, að
við fánm sérmenntaða íslenzka
svæfingalækna, væri tilvalið
að bjóða nú liingað enskum
svæfingalækni, til að starfa
hér, á vegum Háskólans, nm
3—6 mánaða skeið. Hann yrði
eins konar aukakennari. Héldi
fyrirlestra við Iláskólann.
Framkvæmdi og sýndi lækna-
stúdentum svæfingar, í einu eða
fleirum af sjúkrahúsum hæj-
arins. í Englandi er það mjög
algengt, að sami svæfinga-
læknir starfi við fleiri en eilt
sjúkrahús. Ég hygg, að nú i
svip væri tiltölulega auðvett að
fá svæfingalækni til að koma
hingað, um stnltan tíma, og
væri þetta tilvalin byrjun að
því að fá hingað erlenda lækna,
til fyrirlestralialds við Háskól-
>
Ur erl. læknaritum
Utdráttur úr grein, sem birtist
í Acta Pædiatrica 33, 1—144, 1945,
Stockholm, eftir S. Ranström. Þýtt
úr J.A.M.A.
Orsakir Erythroblastosis foetalis:
Ranström segir að síðan kenning-
in um þátt Rh eiginleikans i mynd-
un erythroblastösis foetalis liafi
verið sett fram, sé þessi sjúkdómur
venjulega nefndur blóðlitarlos í ung-
börnum (hæmolytic disease of tlie
new born). Kenningin um Rh ó-
næmið veki spurningar, sem ekki sé
unnt að svara. Á grundvelli þessar-
ar kenningar verða eftirfarandi
fyrirbrigði ekki skýrð: (1) að merki
um Rh ónæmi koma ekki fram í
mörgum tilfellum af erythroblastosis
foetalis, (2) að Rh ónæmi getur verið
fyrir hendi án þess að um erythro-
blastosis sé að ræða, (3) að gangur
sjúkdómsins verður ekki fyllilega
skýrður með Rh ónæmiskenning-
unni einni saman. Höfundur telur
að ónæmi geti ekki myndazt, nema
fylgjan sé sködduð, og bendir á
að áður en Rh kenningin kom fram
liafi af ýmsum verið bent á sjúk-
ann. En á þvi er nú frekar
kostur en áður, vegna bættra
samgangna. Flugferð, frá Eng-
landi hingað, tekur einar 4
klst., og ég hitti lækna, sem
töldu tilvinnandi að skreppa
hingað í „weekend“, þólt þeir
niættu ekki vera að, að dvelja
hér neitt að ráði, kannske
skreppa kvöldstund á laxveið-
ar.
p. t. Reykjavík, 2. júní ’47.
Kjartcin J. Jóhannsson.