Læknablaðið - 15.04.1950, Qupperneq 18
8
L Æ K N A B L A Ð I Ð
samlag, Tryggingarstofnun
ríkisins, bæjarfélag, ríki eða
aðra hliðstæða aðila, getur
enginn félagi leyst sig undan
þeim skyldum, sem deilan legg-
ur félagsmönnum í L. R. á herð-
ar, með því að segja sig úr fé-
laginu.
6. gr.
Stjórn félagsins skipa þrír
menn, formaður, ritari og
gjaldkeri, og 9 meðstjórnendur.
Þeir skulu kosnir á aðalfundi,
til þriggja ára í senn og má
endurkjósa þá einu sinni, en
enginn skal gegna sama starfi
lengur en 6 ár samfleytt. Fé-
lagar eru að jafnaði skyldir að
taka við kosningu, en geta neit-
að endurkosningu, er kjörtíma-
bili lýkur.
Árlega víkja þeir þrír með-
stjórnendur, sem lengst hafa
setið. Eftir 1 ár frá gildistöku
þessara laga,víkja3 meðstjórn-
endur samkvæmt hlutkesti.
Eftir 2 ár aðrir 3 af þeim, sem
upprunalega voru kjörnir. For-
fallist maður úr stjórninni, til-
nefnir stjórn og meðstjórn-
endur mann í hans stað. Á
síðasta reglulegum fundi fyrir
aðalfund skal stinga upp á
mönnum í stjórn og einnig
meðstjórnendum. Stjórnin gæt-
ir þess, að stungið sé upp á eigi
færri mönnum en kjósa á, en
sérhver félagsmaður hefir til-
lögurétt. Þeir einir eru kjör-
gengir, sem tilnefndir hafa ver-
ið á þessum fundi.
7. gr.
Óski stjórnin eða einstakir
menn í henni að segja af
sér, skal hún tilkynna það
tveimur fundum fyrir aðal-
fund. Óski félagsmaður að
bera fram vantraust á stjórn-
ina, skal það gert skriflega og
undirritað af fjórðungi gjald-
skyldra félaga að minnsta
kosti. Stjórninni er skylt að
taka vantraustið fyrir á félags-
fundi innan þriggja vikna,
enda sé til hans boðað samkv.
ákvæðum 8. gr. um reglulega
félagsfundi.
8. gr.
Félagið heldur að jafnaði
reglulegan fund annan mið-
vikudag hvers mánaðar, frá
október til maí, og aukafund
þegar stjórnin telur þess þörf
eða 10 félagar krefjast þess,
samanber og 7. gr. Reglulega
fundi skal boða skriflega með
viku fyrirvara. í fundarboði
skal geta dagskrár. Fundur er
ályktunarfær um tilkynnt dag-
skráratriði, ef hann er löglega
boðaður og 14 gjaldskyldra fé-
laga er mættur. Nú reynist
fundur ekki ályktunarfær, og
má þá boða til aukafundar um
hin sömu mál. Þann fund má
eigi halda fyrr en að viku lið-
inni, nema alveg sérstaklega
standi á, og er hann ætíð álykt-