Læknablaðið - 15.04.1950, Qupperneq 22
12
LÆKNABLAÐIÐ
skyldum, sem honum ber a5
inna af hendi samkv. samningi
L. R. við einhvern aðila t. d.
sjúkrasamlag eða tryggingar-
stofnun, eða brýtur lög félags-
ins eða codex ethicus, og veitir
stjórnin honum þá áminningu
eða gerir honum að greiða sekt,
er nemi 100—1000 kr. til
Ekknasjóðs, sé um ítrekað brot
að ræða. Sama máli gegnir ef
félagsmaður aðhefst eitthvað
það, er stjórninni þykir félag-
inu ósamboðið, þótt ekki sé
skýlaust brot á lögum félagsins
eða codex ethicus. Slíkum úr-
skurðum stjórnarinnar má
skjóta til gerðardóms L. R.
enda sé það gert innan tveggja
vikna.
Stjórnin getur vikið félags-
manni úr félaginu fyrir alvar-
lega vanrækslu skyldustarfs
eða velsæmisbrot eða fyr-
ir margítrekuð brot, þótt hvert
um sig varði aðeins sektum,
ennfremur ef hann neitar að
greiða sektir. Úrskurð stjórn-
arinnar um brottvikning skal
taka fyrir á næsta reglulegum
fundi til staðfestingar eða
synjunar. Staðfesti fundurinn
úrskurð stjórnarinnar, getur
sakborningur skotið máli sínu
til gerðardóms L. R.
19. gr.
Félagsmenn mega ekki taka
að sér læknisstörf fyrir minna
endurgjald en ákveðiö er í
gjaldskrá félagsins og sam-
þykktum, en gefa mega þeir
vinnu sína, ef sérstaklega
stendur á.
Félagsmenn mega ekki sækja
um eða taka við embætti eða
stöðu, nema stjórn L. R. hafi
viðurkennt launakjör, starfs-
skilyrði og starfssvið, enda hafi
staðan verið auglýst með
minnst 4 vikna fyrirvara í
Læknablaðinu, eða á annan
fullnægjandi hátt.
20. gr.
Á aðalfundi skal kjósa
skriflega 3 menn og 3 varamenn
í gerðardóm til þriggja ára.
Stjórn og meðstjórnendur eru
ekki kjörgengir. Gerðardóms-
menn velja formann úr sínum
hópi fyrir kjörtímabiiið.
Til gerðardóms má skjóta
ágreiningsmálum milli ein-
stakra félagsmanna, svo og
málum samkv. 18. gr. Kærur
til gerðardóms skulu skriflegar
og sendar formanni.
Hvor málsaðili getur krafizt
þess, aö einn dómari víki sæti,
og skal hann þá senda dómn-
um skriflega kröfu um það.
Tekur þá varamaður sæti hans
í dómnum. Gerðardómur get-
ur vísað máli frá, en að öðrum
kosti skal hann stefna málsað-
ilum eða fulltrúum þeirra fyrir
sig innan 10 daga. Hann getur
yfirheyrt málsaöila, leitað upp-
lýsinga og leitt vitni eftir þörf-
um. Rétt er og skylt að leita