Læknablaðið - 15.04.1950, Side 24
14
LÆKNABLAÐIÐ
á það, eftir aö ég hafSi kynnt
mér málavöxtu, en áskildi mér
þó rétt til að skýra frá því,
hvernig þátttaka mín í bók
þessari væri til komin. Kvaðst
útgefandi og mundu tala við
aðra þá lækna, er líkt kynni að
vera ástatt um, en hve margir
þeir hafa verið veit ég ekki.
Þannig er þá til útgáfunnar
stofnað, að tíndar eru saman
ritgerðir, er birzt hafa á víð og
dreif í dagblöðum eða tímarit-
um og ekki hirt um þaö, hvort
höfundunum líkar betur eða
ver. Þess er ekki einu sinni get-
ið, hvar og hvenær ritgerðirnar
hafa verið birtar áður, og gætu
því þeir, sem ekki þekkja til,
ætlað að greinar núlifandi höf-
unda væru beinlínis skrifaðar
til birtingar í þessari bók. Svo
má virðast, að upphafsmaður
að þessu fyrirtæki og safnari
hafi undir niðri ekki haft sem
bezta samvizku, því hvergi er
hans getið á titilblaði bókar-
innar.
Það skal tekið fram, að út-
gefandi kvaðst engan þátt hafa
átt í söfnun efnisins né hafa
átt frumkvæði að útgáfunni og
hefði sig ekki grunað, að þarna
væri ekki allt með felldu. Hefi
ég enga ástæðu til að vefengja
þetta, en eigi aö síður hlýtur á-
byrgðin að lenda á honum,
enda var hann ekki að skorast
undan henni.
í áður nefndri auglýsingu
virtist gefið í skyn, aö Guð-
mundur Hannesson prófessor
hefði verið frumkvöðull aö út-
gáfu bókarinnar eða a. m. k.
safnað efninu. Reyndar munu
fáir þeirra, sem vita hvernig
sumt af efninu er fengið, trúa
því, að hann hafi verið þar að
verki, en auk þess afsannar
hann það rækilega í formálan-
um. Þar segir m. a. svo: ,,Ný-
lega kom til mín einn af lækn-
um borgarinnar með stóran
böggul undir hendinni og varp-
aði honum á borðið .. . sagði
komumaöur mér, að hér væri
urn allmikla bók að ræða, úr-
val af ýmsum ritgerðum eftir
íslenzka lækna um allt milli
himins og jarðar — og gott
betur. Hann fór þess á leit við
mig, að ég skrifaði stuttan for-
mála að bók þessari . . . Lækn-
irinn sagði eitthvað í þá átt, að
mér myndi ekki verða skota-
skuld úr því, kvaddi í snatri og
hvarf inn í bílinn sinn“.
Nú kann einhverjum að finn-
ast, að meinlaust sé og ekki á-
stæöa til að gera veður af, þó
að ritgerðir, sem áður hafa
birzt séu prentaðar á ný án
leyfis höfunda. í bezta falli ber
þó slíkt háttalag, sem hér ræð-
ir um, vitni um fádæma skort á
háttvísi og er sízt til eftir-
breytni.
Úr því, sem komið var, gat ég
fellt mig við samkomulag það
við útgefanda, sem Helgi Tóm-
asson stofnaði til, er gott til
þess að vita, að Ekknasjóður