Læknablaðið - 01.08.1951, Qupperneq 9
læknablaðið
37
með því að fara með legg
(catheter) niður í gegnum
smeyginn.
6. Ef sjúklingurinn þarf að
vera á grúfu á aðgerðar-
borðinu, er mikið örvggi
í því að hafa hann smeyg-
aðan.
7. Oft er hægt að sjá fyrir,
að öndunin muni lamast
eða verða mjög slök í
svæfingu, sérstaklega ef
curare er notað í stórum
skammti með cyclopróp-
ani, etri eða pentóþali. —
Hafi sjúklingurinn verið
smevgaður, er auðvelt að
lijálpa önduninni eða jafn-
vel anda algjörlega fyrir
sjúklinginn, þar til hann
kemst j^fir lömunina.
8. Smeygun tryggir fullt vald
vfir þrýstingi innan lungna
við aðgerðir, er krefjast
þess, að fleiðruhol (fleiðra:
pleura) sé opnað og lung-
að fellt (collaberað).
9. Það er mjög æskilegt að
smeyga sjúklinga, sem
koma til aðgerðar vegna
sjúkdóma, er valda aukn-
um þrýstingi innan höfuð-
kúpu, vegna þess að önd-
unarörðugleikar i svæf-
ingu geta aukið þann
þrýsting enn meira og
jafnvel hættulega. Auk
þess á hér við það, sem áð-
ur var sagt um aðgerðir á
höfði.
Þar sem sjiiklingurinn er
svæfður, áður en hann er
smeygaður og smeygurinn tek-
inn út, áður en hann vaknar
til fulls, hefir hann að jafnaði
enga vitneskju um smevgun-
ina. Örsjaldan hafa sjúklingar
lítils háttar liæsi eða særindi i
hálsi í 24—48 klst. eftir smeyg-
svæfingu. Sjúklingurinn verð-
ur að vera vel sofandi, þegar
smeygunin er framkvæmd, til
þess að hún verði auðveldari
og forðast megi betur að særa
varirnar, tunguna, hálsinn eða
brjóta tennur, sem kemur þó
mjög sjaldan fyrir, eftir að
fengin er nokkur æfing í þvi
að fara með barkasmeyg.
Vöðvaslekjun.
Eins og getið var i upphafi,
má telja notkun curare annað
veigamesta framfaraspor sið-
ustu ára i svæfingum. Þangað
til þurfti að ná nauðsynlegri
vöðvaslekju með mjög djúpri
svæfingu, en nú má hafa svæf-
inguna létta og þar með draga
mjög verulega úr notkun svæf-
ingarlyfsins, en slekja vöðv-
ana með curare. Þar sem cur-
are er mjög skjótvirkt og áhrif
þess fremur skammvinn, er
tiltölulega auðvelt að koma
því við að slekja vöðvana ein-
göngu á því stigi aðgerðar, sem
þess er sérstök þörf.
Ný lyf eða ný notkun lyfja
fer venjulega geyst af stað, og
svo var um curare. Notkun
þess má ennþá teljast á byrj-