Læknablaðið - 01.08.1951, Qupperneq 16
44
LÆKNABLAÐIÐ
t
RICHARD KRISTMUiADSSON
Þann 7. sept. þ. á. andaðist
Richard Kristmundsson að-
stoðarlæknir á Kristneshæli.
Hann var fæddur að Vígholts-
stöðum í Dölum 22. júlí 1900.
Foreldrar hans voru Krist-
mundur bóndi Guðmundsson
og Guðrún Jónsdóttir. Innan
fermingaraldurs fluttist hann
til Reykjavikur með móður
sinni, sem þá var orðin ekkja.
Byrjaði hann skömmu siðar
nám í Menntaskólanum og
varð stúdent 1921, en tók
kandidatspróf í læknadeild
háskólans 1927 með góðri I.
einkunn. Næstu tvö árin var
hann við framhaldsnám á ýms-
um spítölum og hælum í Dan-
mörku og settist síðan að á
Akranesi sem praktiserandi
læknir haustið 1929.
Að eðlisfari var Richard
heit. léttlyndur og kátur, vin-
sæll meðal skólabræðra sinna
og námsmaður góður. — Létu
honum læknisstörfin hið bezta,
enda stundaði hann þau með
samvizkusemi og hafði smiðs-
hendur til allra verka.
Sumarið 1933 kvæntist
liann Elísabetu Jónsdóttur
Gunnlaugssonar á Akranesi,
ágætri konu, og virtist þá
framtíðin hrosa við þessum
ungu hjónum. En hamingjan
reyndist hverful. Fám mánuð-
unnar, ef ekki á að vera of
nærri sjúklingnum gengið. —
Næsta framfarasporið verður
vafalaust fullkomnun á svæf-
ingartækjunum, og eru til-
raunir í þeim efnum vel á veg
komnar.
[Grein þessi er skrifuð fyrir til-
mæli og hvatningu Vilmundar Jóns-
sonar landlæknis. Hann liefir farið
yfir greinina með tilliti ti! orðfæris
og allviða vikið til islenzkulegra
máls. Hann er og höfundur nýyrða
þeirra, sem koma fyrir í greininni.
og eru sum þeirra beinlinis gerð
hennar vegna, en nokkur önnur
munu ekki áður hafa birzt á prenti.]
Elías Eyvindsson.