Læknablaðið - 01.08.1951, Qupperneq 20
48
L Æ K N A B L A Ð I í)
Hinn 18. des. 1950 gaf lieilbrigðis-
málaráðuneytið út leyfisbréf handa
Jónasi Bjarnasyni, cand. med., til
þess að mega stunda almennar
lækningar hér á landi. Jónas er
sonur Bjarna Snæbjörnssonar lækn-
is í Hafnarfirðil
Hinn 7. marz gaf heilbrigðismála-
ráðuneytið út leyfisbréf handa Ingu
Björnsdóttur, cand. med. og Ragn-
lieiði Guðmiindsdóttur, cand. med.,
til þess að mega stunda almennar
lækningar hér á landi.
Handhafar valds forseta Islands
veittu hinn 9. apríl 1951 Ólafi Ó.
Lárussyni, héraðslækni í Vest-
mannaeyjum, lausn frá embætti frá
1. júlí 1951 að telja.
Ólafur hafði þjónað Vestmanna-
eyjahéraði í 20 ár, en héraðslæknir
liefur hann verið í full 40 ár.
„Heilbrigðismálaráðuneytið hefur
hinn 21. aprí 1 1951 ráðið Elías
Eyvindsson, cand med., sem svæfing-
arlækni Landspítalans og jafnframt
sem starfsmann við Rannsóknar-
stofu Háskólans og síðan til að
veita forstöðu blóðbanka, ef til
kemur.“ Þetta er tekið orðrétt úr
Lögbirtingablaðinu 25. apríl 1951.
Orðalagið, „ef til kemur“, er mjög
varfærnislegt. Nú þegar kvað hafa
verið byggt hús fyrir blóðbanka, og
sennilega er það ekki reist af vangá,
né án þess að gera sér fyrst grein
fyrir til hvers átti að nota það. Er
ef til vil eitthvað nýtt í bigerð með
þetta hús?
Hinn 7. mai 1951 var dr. med.
Snorri Hallgrímsson skipaður pró-
fessor í handlæknisfræði við Há-
skóla íslands og jafnframt yfir-
læknir handlæknisdeildar Land-
spítalans frá 1. .sept. 1951 að telja.
Próf. Snorri mun dvelja í Banda-
ríkjunum vetrarlangt, en próf. Guð-
mundur Tlioroddsen gegnir áfram
embættinu á meðan.
Heilbrigðismálaráðuneytið liefir
hinn 28. maí 1951 gefið út leyfisbréf
handa Bergþóri Smára, lækni, til
þess að mega starfa sem sérfræðing-
ur í lyflækningum.
Inga Björnsdóttir var sett til þess
að gegna Bakkagerðishéraði frá 1.
júní 1951.
Á ríkisráðsl'undi 3. júli 1951 var
Baldri Johnsen veitt Vestmanna"
eyjahérað frá 1. júlí s. á. að telja.
Forseti íslands hefur hinn 20. júli
1951 veitt Snorra Ólafssyni, héraðs-
lækni, lausn frá héraðslæknisem-
bættinu í Breiðumýrarhéraði frá 1.
sept. 1951 að telja. (Lögbirtingabl.
25. ág. 1951).
Frá sama tíma hefur Snorri verið
ráðinn aðstoðarlæknir að Kristnes-
liæli.
Héraðslæknirinn í Stykkishólms-
liéraði, Ólafur P. Jónsson, var frá 1.
sept. 1951 settúr til þess að gegna
Flateyjarhéraði ásamt sínu héraði.
Heilbrigðismálaráðuneytið hefur
hinn 22. ágúst 1951 gefið út leyfis-
bréf handa Kjartani Ólafssyni, cand.
med., til þess að mega stunda al-
mennar lækningar hér á landi. —
(Lögb.bl. 1. sept. 1951). Kjartani var
veitt héraðslæknisembættið í Flat-
eyrarhéraði frá 17. sept. 1951.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.í.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 757.
Félagsprentsmiðjan h.f.