Læknablaðið - 15.11.1951, Side 8
50
LÆKNABLAÐIÐ
blóðþrýstingsákvörðunar, og
yrði of langt mál aS telja það
upp hér, enda óþarft í þessu
erindi.
Nokkuð hefir verið á reiki
hvernig hæri að ákveða út-
þrýstimarkið (systol. þrýsting)
og aðþrýstimarkið (diastol.
þrýsting). í fyrstu var sam-
ræmd sú aðferð að þreyfa fyrir
púlsinum og finna þegar hann
hvarf við það að loftinu var
dælt inn í gúmhólkinn (manc-
hettuna), iile}rpa síðan loftinu
hægt og liægt af, þar til púls-
inn fannst á ný, og lesa þá á
mælinn. Þar var þá talinn út-
þrýstingur. Síðan var loftinu
hleypt af áfram og yfirhorð
Hg-mælisins athugað, eða, ef
loftmælir var notaður, fylgzl
með nálinni. Þegar kyrrð
varð á yfirborðinu, eða vísin-
um — eftir þvi hvor mælirinn
var notaður — var lesið af mæl-
inum, og var þar talið að að-
þrýstingur væri. Þannig var
sameinuð þreifi- og tifaðferð
(jialpatorisk og oscillatorisk
aðferð) til mælingar hlóðþrýst-
ingsins.
Síðar, eða um 1905, fann
Rússinn Korotkow upp að
hlusta eftir púlshylgjunni yfir
art. cuhiti og fann við það nýja
og nákvæmari mæliaðferð, er
síðan hefir rutt sér til rúms
eins og við þekkjum nú. Ef
lofti er dælt inn í armhringinn
á handleggnum, hverfur púls-
inn og ekkert heyrist handar
megin við hann, þegar svo
þrýstingurinn i armhringnum
er lækkaður smátt og smátt, y
má greina á milli fjögurra
hljóðhreytinga við hlustun:
1. Snöggra púlshljóða, en
greinilegra og skýrra,
þurfa ekki að vera hávær,
en fara hækkandi fyrstu
10 mm Hg, sem mælirinn
fellur.
2. Púlshljóðið verður dálítið
óskýrt næstu 15 mm Ilg,
sem mælirinn fellur.
3. Illjóðið verður að nýju
vaxandi og skýrara næstu
15 mm Hg, sem mælirinn
fellur.
4. Síðustu 5—6 mm Hg, sem
mælirinn fellur, verður
púlshljóðið óskýrt að nýju,
þar til öll hljóð hverfa að
fullu
Almennt er útþrýstingur tal-
inn við nr. 1, en aðþrýstingur
við nr. 4, um það bil, sem púls-
hljóðið hverfur. Margir ætla
þó nú réttara að telja aðþrýst-
inginn frá 3. Við lilustunarað-
ferðina er blóðþrýstingurinn
talinn 5—10 mm Hg hærri að
jafnaði borið saman við hina
aðferðina. Liggur það í því, að
púlsaldan finnst ekki fyrstu
5—10 mm Hg, þótt æðin sé
hins vegar það opnuð að púls-
bylgjuhljóðið heyrist á því
mælibili. V
Ég tel ekki ástæðu til að fara
að skýra hér þau atriði, er
koma til greina til skýringar á