Læknablaðið - 15.11.1951, Side 10
52
LÆKNABLAÐIÐ
þó ber því ekki að neita, að
einn og einn einstaklingur hafi
sýnt óróa og púlshraða of
háan.
Því verður ekki mótmælt, að
æskilegt hefði verið að meiri
timi hefði verið lagður í mæl-
ingarnar. T.d., að mæling liefði
verið gjörð strax í byrjun
skoðunar og svo aftur í lok
hennar og gerður samanburð-
ur á jjessum tveim mælingum.
Þetta reyndist ekki unnt að
framkvæma við þær aðstæður,
er fyrir hendi voru, varð því
að binda sig við eina einstaka
mælingu, og þótti þá lientug-
ast að haga mælingunni sem
fyrr greinir.
Nokkuð eru skiptar skoðanir
á því, livort réttara sé að mæla
fólkið liggjandi eða sitjandi.
American Heart Association
mælir með því að mælingin
fari fram á fólki sitjandi, en
Cardiac Society of Great Bri-
tain and Ireland mælir með
hinni aðferðinni. Þeir fáu ein-
staklingar, er ég prófaði þetta
hvort tveggja á, sýndu engan
greinilegan mun og get ég því
ekkert dæmt um hvort réttara
kunni að vera.
Breiddin á armliringnum er
talin þurfa að vera 12—13 cm.
Á mæli þeim, sem fyrr greinir
og notaður var, var breiddin
12,5 cm utanmál. Mjög er það
talið áriðandi að þessi breidd
armhringa sé notuð hjá full-
orðnu fólki. Of mjór armhring-
ur gefur mun hærri blóðþrýst-
ingsmælitölu. Shilling gerði
tilraunir með þrenns konar
armhringi, er voru 14 cm, 11,2
cm og 8 cm breiðir. Mismunur-
inn á mjósta og breiðasta arm-
hringnum var 7—17 mm Hg
til hækkunar hjá þeim
grennstu. Mjög er áríðandi að
armhringurinn sé lofttómur,
þegar hann er lagður á hand-
legginn og falli slétt að húð-
inni.
Ekki er það að efa, að sam-
ræmi þarf að vera milli gild-
leika handleggsins og breiddar
armhringsins. Það atriði hefir
komið ljósast fram við blóð-
þrýstingsmælingar á börn-
um. Robinow og samstarfs-
menn hans gerðu mjög ná-
kvæmar blóðþrýstingsmæling-
ar á börnum. Þeir komust að
þeirri niðurstöðu, að 2,5 crn
lireiður armhringur væri hæfi-
legastur fvrir nýfædd börn,
5 cm brejður armhringur væri
hæfilegur fjrrir 1 árs börn og
eitthvað eldri, eftir gildleika
handleggsins, og að lokum 9
cm armhringur fyrir stálpuð
börn. —
Mælingar þær, sem gerðar
eru hér að umtalsefni, fóru
tiðast fram kl. 3—4 á daginn,
þ. e. a. s. fólkið er þá ekki
að fullu mett á þeim tíma. Það
atriði, að maginn sé fullur af
mat, er talið geta valdið 6—8
mm Hg hækkun á blóðþrýst-
ing. — Komið gat fyrir, að