Læknablaðið - 15.11.1951, Síða 12
54
LÆKNABLAÐIÐ
fólk kæmi beint úr vinnu, og
fór þá eftir atvikum, hvort það
hafði tíma til að kasta mæð-
inni í biðstofunni áður en skoð-
un fór fram. Þetta var á hinn
bóginn svo snemma dags, að
þreyta og lúi eru ekki verulega
farin að láta til sín taka, en
áhrif næturlinkunnar horfin.
Almennt er talið að blóðþrýst-
ingurinn sé iægstur að morgn-
inum, en fari síðan hækkandi
með dagsins önn og umstangi.
Ef athugaðar eru tölur þær,
sem sýndar eru á töflu I, sést
að blóðþrýstingur hefir verið
mældur á 1207 körlum og
1336 konum, samtals 2543. Ekki
ber að skilja þetta svo, að
þarna sé heildartala allra, er
mældir voru. Allir, sem vitað
var að haldnir væru hjarta-
sjúkdómum eða nýrnasjúk-
dómum voru dregnir frá. Einn-
ig voru nokkrir tíndir úr töl-
unni sökum þess að augljóst
var, að þ'eir voru vanheilir
vegna háþrýstings.
Ég get einnig búizt við, að í
þessari töflu (I) séu nokkrir,
sem telja mætti að hefðu há-
þrýsting. Um það má nokkuð
deila. Ég hefi ekki tekið þessa
einstaklinga frá, vegna þess að
þeir hafa samkvæmt upplýs-
ingum sínum gengið til allra
starfa í daglegu lífi, án þess að
finna nokkuð til sjúkleika.
Af töflunni má sjá að konur
hafa lægri blóðþrýsting, þ. e.
a. s. útþrýsting en karlmenn
fram yfir þrítugt. Um fertugs-
aldurinn breytist viðhorfið. Þá
stíga þær upp fyrir karlmenn-
ina. Liggur næst að álíta að þar
sé um álirif blóðbreytinga að
ræða hjá konunum. Rétt er þó
að minnast þess að aðþrýsting-
urinn er í öllum aldursflokk-
unum hærri lijá lconunum en
körlunum. Vegna þess hve fá-
ir eru í síðustu aldursflokkun-
um, verður að fara varlega í að
draga endanlegar ályktanir af
þeim tölum.
Ég vil geta þess, að í þessari
heildartöflu eru meðtaldar 79
lconur, er voru vanfærar og all-
langt komnar á leið. Gera má
ráð fyrir, að fleiri vanfærar
konur hafi verið í hópnum, en
svo stutt komnar á meðgöngu-
tímann, að með einfaldri skoð-
un hafi ekki verið unnt að
greina það. Til fróðleiks liefi
ég sett blóðþrýsting þessara
vanfæru kvenna í töflu II. Kon-
ur þessar voru á aldrinum 15
—39 ára.
TAFLA II.
Blóðþrýstingur vanfærra kvenna.
Aldur Fjöldl Útþrýst. Aðþrýst.
15—19 15 131.0 81.0
20—29 51 129.3 79.2
30—39 13 135.7 80.4
15—39 79 130.7 79.7
Á töflunni sést, að blóð-
þrýstingur þeirra er lítið eitt
hærri en í tilsvarandi aldurs-