Læknablaðið - 15.11.1951, Blaðsíða 13
læknablaðið
55
flokkum í töflu I, en þó ekki
svo, að neitt mark sé takandi á
þvi, nema e. t. v. i fyrsta aldurs-
flokknum (15—19 ára). Sem
skýringu á þvi, að um raun-
verulegan mun kunni að vera
að ræða í þessum aldursflokki,
hefi ég látið mér koma til hug-
ar: I fyrsta lagi er hér um
konur að ræða, sem sennilega
eru vanfærar að fyrsta barni.
Iíviðveggurinn er þá miður eft-
irgefanlegur og heldur þá
fóstrinu klemmdu upp að stofn-
seðum baksins og dregur þann-
ig úr þensluhæfni þeirra. I
öðru lagi er hugsanlegt að ung-
ar konur, e. t. v. ógiftar, á þessu
árabili, séu feimnar að mæta
þannig til skoðunar og tauga-
spenna valdi því nokkurri
hækkun.
Til fróðleiks má geta athug-
ana, er Dill og samverkamenn
lians gerðu á 1800 konurn. 900
höfðu ekki alið börn, en 900
höfðu alið eitt eða fleiri börn.
Enginn munur fannst á blóð-
þrýstingi þeirra.
Þá er enn að geta þess, að í
töflu I voru látnir fljóta með 90
manns, er voru með, eða höfðu
haft lungnaberkla. Má e. t. v.
um það deila,hvort réttara hafi
verið að telja þá með eða að
sleppa þeim. Til yfirlits hefi ég
sett þá í sértöflu, svo að séður
yrði meðalþrýstingur þeirra.
Ef tafla III. er athuguð og
borin saman við töflu I, sést
að nokkurrar hækkunar gætir í
Tafla III.
Blóðþrýstingur berklasjúklinga.
Aldur Karlar Konur
2 12. LL. O L XL «o < ■ö :0 iiT L JX ** O L _CL « <
15—19 6 133.3 80.0 7 127.1 79.3
20—29 10 131.0 79.4 15 123.7 76.6
30—39 14 128.5 79.0 17 130.6 82.0
40—49 6 141.6 84.2 9 137.7 82.2
50—59 3 128.3 81.6 3 138.3 84.3
Samt. 39 51
fyrsta aldursflokknum hæði
hjá konum og körlum og i öðr-
um aldursflokki hjá karlmönn-
um. I öllum hinum flokkunum
gætir lækkunar. Munu þvi þess-
ar heildartölur sízt verða til
hækkunar í töflu I.
Ég hefi gert samanburð á
blóðþrýstingi nokkurra starfs-
stétta, þótt það muni e. t. v.
gefa litlar upplýsingar. í fyrsta
flokki er að ræða um konur og
karla, er stunda almenn störf,
svo sem verkamannavinnu og
almenna erfiðisvinnu, svo og
vinnu húsmæðra. í þeim flokki
urðu 439 karlar og 707 konur.
í öðrum flokk eru þeir, er iðn-
að og verksmiðjuvinnu hafa
slundað. 1 þessum hópi voru
261 karlmenn og 86 konur. í
þriðja flokki er fólk, er stund-
aði verzlunarstörf. Heildartala
í þeim flolcki var 125 karl-
menn og 151 konur. Konur í
þessum flokki eru mjög fá-
ar í síðustu aldursflokkun-