Læknablaðið - 01.02.1952, Blaðsíða 14
92
LÆKNABLAÐH)
taxti. 1933 er einungis um
breytingu á taxta að ræða.
Dr Helga Tómassyni fannst
sjálfsagt að félagið ætti að
standa að málshöfðun, þar eð
liinn siðferðilegi styrkur, sem í
því fælist, væri mikilsvirði.
Hins vegar ætti félagið að á-
skilja sér rétt til þess að velja
lögfræðing. Ef félagið stæði
ekki 100% með þessu, gæti það
ekki heitið stétlarfélag. (Lófa-
tak).
Páll Kolka sagði að trygging-
arstofnunin hefði sjálf samið
við sérstaka lækna í kaupstöð-
um, en náð sér niðri á héraðs-
læknum í sveitum, þar sem
langsamlega lægsti taxti gild-
ir á öllu landinu.
Esra Pétursson taldi að þar
eð tryggingastofnunin hefði
sjálf sýnt fordæmið og samið
um taxtahækkun við L. R. og
ýmsa lækna í kaupstöðunum,
þá gæti hún varla staðið sig við
það að höfða mál út af sama
athæfi.
Kristinn Stefánsson sagði að
þegar L. R. hefði samþvkkt
sinn taxta, hefði liann verið
viðurkenndur fyrst af samlag-
inu, en ekki af ríkinu.
Tillagan var siðan samþykkt
samhljóða.
Fulltrúar svæðafélaganna
báru fram svohljóðandi til-
lögu:
„Læknaþing 1951 átelur
harðlega tregðu gjaldeyrisyfir-
valda við það, að veita nauð-
svnleg leyfi til heilbrigðisstofn-
ana svo sem byg'gingu nýrra
sjúkrahúsa, heilsuverndar-
stöðva o. s. frv.“
Samþykkt samliljóða.
Sömu aðilar báru fram þessa
tillögu:
„Læknaþing 1951 skorar á
stjórn L. í. að vinna að því, í
samstarfi við landlækni. að
samræma liúsaleigu læknisbú-
staða með hbðsjón af þeirri
leigu, sem greidd er eftir em-
bættishústaði annarra stétta.“
Samþykkt samhljóða.
Páll Kolka bar fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Læknaþing 1951 felur stjórn
L. í. að taka upp almennings-
fræðslu, um heilbrigðismál,
um samvinnu við heilbrigðis-
stjórn, tryggingarstofnun rik-
isins og almenning um ýmsar
nauðsynlegar framkvæmdir á
sviði heilbrigðismálanna og
um almenna fræðslu um sam-
skipti lækna og sjúklinga.“
Valtýr Albertsson fór fram
á það, að fá yfirlýsingu fund-
arins um það, að félagsmenn
fylktu sér allir mjög fast um
tillögur sínar, þannig, að t. d.
héraðslæknar myndu jafnvel
ganga svo langt að segja af sér
til þess að knýja fram leiðrétt-
ingu á taxtamálinu.
Dr. Helgi Tómasson bar fram
svohlj. dagskrártillögu:
„í trausti þess að stjórnin
hagnýti sér þær ábendingar
sem í tillögunni felast, eftir því