Læknablaðið - 01.02.1952, Blaðsíða 16
94
LÆKNABLAÐlf)
ins með svofelldri rökstuddri
dagskrá:
„Aðalfundur L. í. haldinn í
Háskólanum 23.—25. ágúst
1951 harmar, að Magnús Pét-
ursson fvrrverandi formaður
félagsins, skuli ekki geta mætt
á fundinum sökum lasleika.
Viðvíkjandi bréfi fyrrv. for-
manns til fundarins:
1. Ctaf deilum vegna breyt-
inga á skipun heilbrigðismála
í Revkjavík, lítur fundurinn
svo á að það mál hafi þegar
verið afgreitt frá hendi aðal-
fundarins 1948 og svo frá
hendi stjórnarinnar.
Þess vegna sér fundurinn
ekki ástæðu til þess, að taka
málið upp að nýju, þegar svo
langt er um liðið og málið að
öðru leyti fvrir löngu til lykta
leitt.
2. Útaf uppástungu fyrrv.
formanns, um stofnun sérfé-
lags héraðslækna, lítur fundur-
inn svo á, að það mál sé fyrst
og fremsl sérmál héraðslækna
sjálfra, sem afgreiðast verði á
fundi svæðafélaganna. Auk
þess liggur nú fyrir fundi þess-
um brevting á lögum Læknafé-
lags íslands, sem reynslan á
eftir að sýna hvernig gefst.
Þess vegna telur fundurinn
þetta mál ekki taka til sín nú,
og sér ekki ástæðu til að ræða
það, að svo komnu, og tekur
því fyrir næsta mál á dag-
skrá.“
Tillagan samþykkt samhlj.
Næstur tók Baldur Johnsen
til máls og ræddi um af-
greiðslu reikninga ekknasjóðs.
Ataldi að hækur sjóðsins höfðu
ekki verið til staðar á fundin-
um í fyrradag. Bæturnar eru
orðnar hlægilega litlar. Það er
því nauðsynlegt að finna nýtt
form fyrir ekkna-sjóðinn og
reyna að efla hann. L. R. hefir
komið þessu máli i rétt horf
með því að kaupa líftrvggingu
á læknana. Taldi rétt að stjórn
L. í. beitti sér fyrir svipuðu
fyrirkomulagi. Lagði síðan
fram svofellda tillögu:
„Legg til að kosin verði
þriggja manna nefnd lil að at-
huga og gera tillögur um trygg-
ingarmál lækna, og hafi hún
skilað áliti fvrir næsta fund.“
Samþvkkl samhljóða.
Kosnir voru í nefnd þessa:
Dr. Helgi Tómasson,
Rergsveinn Ólafsson,
Magnús Ágústsson.
Kristinn Stefánsson o. fl-
báru fram þessa tillögu:
„Læknaþing 1951 felur stjórn
L. í. að vinna að því, að lækn-
um gefist kostur að endurnýja
hifreiðir sínar hæfilega oft, og
leita samvinnu við stjórn L. R-
í þessu máli. Læknaþing telm'-
að héraðslæknar þurfi jafnan
að endurnýja bifreiðir sínar á
4 ára fresti."
Samþykkt samhljóða.
Valtýr Alhertsson har fram
þessa tillögu: