Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.1952, Page 6

Læknablaðið - 01.03.1952, Page 6
98 L Æ K N A B L A Ð I Ð hóf hina djarflegu aðgerð sína. Síðan hefir hún að sjálfsögðu orðið til þess að auka þekk- inguna á starfsemi ennishluta heilans, þótt margt sé enn óráð- ið í því efni. Svo virðist sem afstaða persónunnar til framtíðarinnar sé sérstaklega tengd lobus frontalis. Fyrirhyggja, ímynd- un og hugarflug eiga sér að- setur þar, en einnig sjólfsmat persónunnar og sjálfsgagnrýni. Þessir þættir heilastarfsins eru, sem kunnugt er, öðrum fremur tengdir tilfinningum, enda er sambandið náið milli ennislobi og thalamus-hypothalamus svæðisins, aðalstöðva geðslirær- inganna. Hins vegar virðist al- menn greind ekki nátengd lobus frontalis. Með lobotomi er rofið sam- bandið milli cortex og thalamus, með öðrum orðuin tengslin milli fyrirhyggju og sjálfsgagn- rýni annars vegar og sterkra, frumstæðra kennda og hvata hins vegar. I geðsjúkdómum ber einmitt mikið á óeðlilegu, sjúklegu samblandi þessara geð- rænu þátta. Þannig er kvíði þunglynds sjúklings óeðlilegur ótti við það, sem koma skal. Hugmyndir, er snerta sjálfsmat og eigið öryggi, magnast á öfga- fullan hátt frumstæðum kennd- um, svo sem hræðslu og hatri. Af þessu skapast geðræn of- þensla, og eru mörg erfiðustu einkenni sturlunar einmitt út- rás þeirrar þenslu, — einkenni eins og sjálfsmörðs- árásar- og eyðileggingarhneigð, geðofsi, stupor og fóbiur. Slík ofþenslu- einkenni koma fyrir í nólega öllum tegundum geðsjúkdóma. Þegar um lobotomi er að ræða, miðast því aðgerðin frekar við syndrom en sjúkdóm. I þeim tilfellum, þar sem mest gætir kvíða og angistar, ofsafenginna geðsmuna og þvingandi rang- hugmynda, er vænlegast um árangur af lobotomi. Þessi og svipuð einkenni má, með fyrir- vara J)ó, telja jákvæðar indica- tiones til aðgerðarinnar, en fyrirvarinn er sá, að öll önnur hugsanleg meðferð liafi reynzt árangurslaus og að batahorfur séu hinar verstu. Þannig hefir lohotomi til þessa verið þrauta- lending, aðeins notuð þegar önnur sund virtust lokuð. Reynsla sú, sem þegar er fengin af lobotomi, bendir ein- dregið til þess, að hún sé merk og mikilsverð viðhót í meðferð geðsjúkdóma. Hún, ásamt lost- meðferðinni hefir stórum aukið á hjartsýni geðlæknanna og örvað þá til dáða. Hitt er ljóst, að þessi meðferð er ekki ágalla- laus. Hún er nánast palliativ. Það er ekki ráðist á sjúkdóminn frá grunni, heldur á svæsnustu einkenni hans. Það eitt gefur til kynna, að sjaldnast muni um albata vera að ræða. Þar við hætist, að sú geðheilsubót, sem fæst með aðgerðinni, kostar

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.