Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.1952, Síða 8

Læknablaðið - 01.03.1952, Síða 8
100 LÆKNABLAÐIÐ dugar, nefnilega raflost- með- ferðin. — Við melankoli veitir hún bata í 80—90% til- fellanna. 1 einstöku tilfelli af klimakteriel og praesenil mel- ankoli reynist lostmeðferðin árangurslaus, enda gætir þá oftast paranoid einkenna. 1 þeim tilfellum langvinns þung- lyndis, kemur lobotomia ekki aðeins til greina, beldur er hún beinlínis indiceruð og gefur oft- ast góða raun. Er vert að minn- ast þess hér, að þunglyndi er bæði þjáningafullur og lífs- hættulegur sjúkdómur. Lobo- tomi kemur ekki oft til greina í sambandi við maniodepressiv geðveiki, en stundum eru köst- in í þeim sjúkdómi svo tíð eða svo langvinn, að til fullkominn- ar örorku leiði, og þá er lobo- tomia sú eina meðferð, sem veitir meiri eða minni bót. 3. Schizophrenia er sá sjúk- dómur, sem leikur geð'smuni harðást, án þess að snerta lík- amann verulega, og það er bún, sem fyllir geðveikrahælin. Hún lætur lítt undan meðferð enn sem komið er. Raflostið má heita gagnslaust. Insúlín-lost reynist nokkru betur, en þó hvergi nærri vel. Það er |)ví skiljanlegt, að lobotomia befir mikið verið reynd við þennan vonlausa sjúkdóm. Er þar skemmst af að segja, að þótt aðgerðin nái ekki fyrir rætur sjúkdómsins, færir bún oft sjúkl. mikla bót. Beztur er á- rangurinn þar sem ranghug- myndir og ofskynjanir valda geðrænni þjáningu, óróa og ofsa, og því betri sem grunn- persónuleiki sj úklingsins er minna skertur. Um einstaka tegundir sjúkdómsins er þetta að segja: Paranoid schizofreni lætur bezt undan aðgerðinni og þar næst katatónisk óró, mun verr aftur á móti bebefreni og schizophrenia simplex. Sem dæmi um árangur skal getið skýrslu tveggja Bandaríkja- lækna (Rotchild og Kaye í Worcester). Þeir segja þar frá 100 schizofreni tilfellum, sem gerð var lobotomia á. Eftir- grenslan fór fram allt að 20 mánuðum eftir aðgerðina. Þeirra árangur er þannig: — 10 urðu miklu betri, 32 betri, 42 lítið eitt betri, 14 óbreytt- ir og 2 verri, með öðrum orð- um fengu 84% einhverja bót á illkynja sjúkdómi, meiri eða minni. önnur skýrsla (Watts og Freeman) segir frá afdrif- um 178 schizofreni-sjúklinga 1—10 árum eftir aðgerðina. Þar er talinn góður árangur í 40% tilfellanna og nokkur bót í 30%. Svipaðar eru fjölmargar aðrar frásagnir um þetta efni. I einu ríkisgeðveikrahæla Bandaríkjanna voru valdir 53 allra erfiðustu sjúklingarnir til lobotomi, þeir sem mest voru ruglaðir, mesta skemmdar- og ofbeldishneigð sýndu og óhrein- legastir voru. Allir, að þrem

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.