Læknablaðið - 01.03.1952, Qupperneq 12
104
LÆKNABLAÐIÐ
senda héim til sín, en sumir hafa
þó farið að Amarholti og nokkr-
ir á Elliheimilið. Eftir að þeir
liafa farið af spítalanum, hafa
þeir fengið eftirmeðferð um
langan tíma hjá sérfræðingi í
geðsj úkdómum.
Aðalhætturnar við frontal
lobotomi eru þrjár:
1. Blæðing. Sé þess gætt, að
fara ekki of djúpt inn með
leucotominn, er lítil hætta á
blæðingu. Komið getur fvrir, að
maður hitti á fastan streng í
hinni mjúlcu, deigkenndu heila-
hvitu, og er það þá æð, sem
verður að varast að slíta sundur.
2. Opnun heilahliðarhols.
Jafnvel lítil hlæðing inn í lieila-
hol getur orðið hættuleg, og
verður því að gæta þess, aö
skurðurinn í heilahvítuna sé
fyrir framan framhorn beggja
heilahliðarhola.
3. Skurðurinn í heilahvítuna
of aftarlega. Verða þá sjúkling-
arnir sljóir og sinnulausir og
getur það endað í dái (coma)
og dauða.
Dánartala við frontal lobo-
tomi er frá 2—6%. Af 90 fyrstu
sjúklingunum, sem frontal lobo-
tomi varð gerð á á taugaskurð-
deild Ríkisspítalans í Kaup-
mannahöfn, dóu 5. Tveir dóu
vegna hlæðingar inn í heilahlið-
arhol, og þrír vegna þess að
skurðurinn í heilahvítuna var
lagður of aftarlega.
Eg hef gert 28 frontal loho-
tomíur á St. Jósefs spítalanum
í Reykjavík., af þeim hefir einn
dáið.
Það var 44 ára gömul kona,
sem hafði hal't schizofreni í 17
ár. Hún var við komuria á spít-
alann, mjög sljó og slöpp. Loho-
tomian gekk eðlilega, án blæð-
inga eða annara erfiðleika.
Fékk strax eftir aðgerðina
háan hita. Blóðþrýstingur og
púls var eðlilegur, og það voru
engin einkenni upp á blæðingu
í heila, en sjúklingurinn varð
sljórri með liverjum degi, og dó
á áttunda degi eftir aðgerðina.
Það var ekki gerð krufning á
sjúklingnum, en ég held að þessi
sjúklingur hafi dáið, vegna þess
að skurðurinn í heilahvítuna
hafi verið lagður of aftarlega.
Annars hafa aðgerðirnar
gengið vel, og það hafa ekki
verið aðrir fylgikvillar en þeir,
að einn sjúklingur, 31 árs
gömul kona með schizofrenia,
hafði í langan tima eftir aðgerð-
ina mikinn hnakkastirðleika og
dálitla stasepapillu, en þetta
lagaðist smátt og smátt.
A þessum sjúkling geri ég ráð
fyrir að ég hafi opnað heilahlið-
arhol, og að það hafi komið
dálítil hlæðing inn í það.
S júkrasögur.* *)
Skýrsla okkar er um i'yrstu
20 sjúklingana, sem dr. med.
Bjarni Oddsson hefur gert loho-
um er bönnuö.
*) Uppprentun úr sjúkrasögun-
i