Læknablaðið - 15.06.1952, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ
15.‘!
— Hún liefir ekki lagt af, enda
er matarlyst og melting i lagi.
Engin ógleði né uppsala.
Sjúkl. er „pirruð á taugum“
og þolir illa liávaða. Tíðir eru
reglulegar 5—6 daga á mánað-
ar fresti, en verkir eru þeim
samfara og þarf hún venjulega
að liggja 1—2 daga i byrjun
tíða.
Röntgenmynd af maga var
tekin % mánuði fyrir komu á
spítalann. „Mjög stór defekt
kemur fram í maganum og
reynist vera hægt að ýta hon-
um dálítið til við palpation.
Slímhimnufellingar umhverfis
eru eðlilegar, útlitið bendir á
corpus alienum í ventriculus og
mun það koma heim við anam-
nesis.
1. mynd.
Röntgenmynd af maga á undan að-
gerð.
Maginn er mjög víður, en
tæmist sæmilega.
Röntgen-diagnosis: C orpus
alienum ventriculi"
(sign.: G. Fr. Petersen).
Objectivt.
Við skoðun sést hraustieg
stúlka í meðalholdum. Stærð og
útlit svarar til aldurs.
Höfuðhár er vel þétt, en ekki
nema 5—6 cm. langt. Engir hár-
lausir blettir finnanlegir.
Tennur eru mjög skennndar.
Ekkert finnst athugavert við
gland. thyreoidea, hjarta eða
lungu. Otlimir eðlilegir.
Hæmoglobin, blóðþrýstingur
og þvag eðlilegt. Fullkomin
blóðrannsókn var ekki gerð.
1 kviðarholi finnst harður og
sléttur tumor á magastað, að
stærð og lögun eins og magi.
Tumor er töluvert hreyfanleg-
ur. Engin eymsli við palpation,
og ekkert annað athugavert að
finna í kviðarholi.
Daginn eftir koinu var i eth-
ersvæfingu gerð gastroiomia
gegnum miðlínuskurð ofan við
umhilicus og corpus alieiium
tekið. Eftir að skorinn hafði
verið 10 cm langskurður á
framvegg magans neðantil, tók
maður með hendi utan um
magann, og „fæddist“ þá trich-
ohezoar svo til af sjálfu sér.
Fyrst kom antrumhlutinn fram
í sárið, en síðan snerist bezoar-
inn, svo pylorus-endinn kom
út. Var þá auðvelt að draga
flykkið út í heilu lagi. Sárinu