Læknablaðið - 01.05.1953, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: JÚLÍUS
SIGURJÓNSSON og ÞÓRARINN GUÐNASON.
37. árg. Reykjavík 1953 9. tbl. ~
Um blódrannsóknii* í nýfæddum
börnum
Blóðmælingar. Talning rauðra blóðkorna. Talning livítra blóðfruma
og flokkun þeirra.
Eftir Haldu Sveinsson.
Þessar rannsóknir voru gerð-
ar á Fæðingardeild Landsspít-
alans og voru alls rannsökuð
21 barn, eins til átta daga göm-
ul. Til rannsóknarinnar voru
valin hraust, fullburða börn,
10 stúlkur og 11 drengir. Fæð-
ingarþvngd þeirra var 3100
—3900 grömm. — Mæður
þessara barna kenndu sér
einskis meins, hvorki um
meðgöngutimann né eftir fæð-
ingu, samkvæmt skýrslum
Fæðingardeildarinnar. Fæðing-
ar voru eðlilegar. Var bundið
fyrir naflastreng tafarlaust, að
jafnaði ekki seinna en 2—3
mínútum eftir fæðingu. Blóð
var tekið úr hverju barni á 1.,
2., 3., 5. og 8. degi, ávallt á sama
tíma dags, kl. 9—12 fyrir há-
degi, og rannsakað strax á eft-
ir. Fyrsta blóðtakan fór fram
6—8 klst. eftir fæðingu. Blóðið
var tekið á þann hátt að skor-
ið var í hæl á barninu með vel-
beittum hníf, eftir að fætinum
liafði verið haldið niðri í heitu
vatni litla stund. Á þann hátt
rann blóðið greitt og óhindrað.
Mótstorknunarefni (anticoagu-
lantia) var ekki notað. Mælt
var hæmoglobinmagn blóðsins,
gerð talning á rauðum blóð-
kornum, hvítar blóðfrumur
taldar og flokkaðar.
Blóðmælingar voru gerðar
með Hellige blóðmæli, sem
leiðréttur var á Rannsóknar-
stofu Háskólans Iijá próf. J.
Steffensen, og var miðað við
Haldanesstandard, 100% Hb
= 13,8 g% = 18,5 vol. % 02.
Rauðu og hvítu blóðkornin
voru talin á „Bright-Line im-
proved Neubauer“ talninga-
gleri, og var talið i 10 litlum
reitum (0,4 mm2) af þeim