Læknablaðið - 01.05.1953, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ
139
jafnframt sé sannað, að notað
liafi verið lióluefni, sem áður
liefur verið styrkleikamælt á
réttan hátt. Á námskeiðinu var
upplýst, að meðgöngutími
hundaæðis í liundum væri í
sumum tilfellum lengri en eitt
ár. Er þetta bending um að
gæta heri fyllstu varúðar við,
að erlendir hundar sleppi hér
á land, t. d. skipshundar. Eng-
in lækning er til, sem að haldi
kemur, eftir að sjúkdómurinn
liefur brotizt út.
Námskeiðið, sem stóð yfir
eina viku, fór fram í salakynn-
um heilsufræðideildar Háskól-
ans i Vín. Störfum var hagað
þannig, að fyrst fluttu færuslu
sérfræðingar erindi um þá
sjúkdóma, sem á dagskrá voru.
Síðan voru frjálsar umræður,
þar sem allir þátttakendur
gátu komið fram með sín eigin
sjónarmið, skýrt frá reynslu i
sínu heimalandi og borið fram
spurningar um sérstök vanda-
mál. Jafnframt var á rann-
sóknastofum læknaskólans
lögð mikil áherzla á að sýna
þær vinnustofuaðferðir, sem
nú eru taldar beztar við grein-
ingu sjúkdómanna og fram-
leiðslu bóluefnis. Sá þáttur
tók megintimann, enda flestar
sýninganna með ágætum. Þvk-
ir hins vegar ekki ástæða til
þess að rekja þá hlið málsins
hér.
Að lokum viljum við þakka Vil-
mundi Jónssyni, landlækni, aila fyr-
irgreiðslu og velvild við undirbún-
ing þátttöku okkar í námskeiði
þessu, sem var bæði fræðilega og
tæknilega hið fróðlegasta á allan
hátt.
P á 11 A. P á 1 s s o n
dýralæknir.
Arinbjörn K o 1 b e i n s so n
læknir.
Heimildarrit:
1. Björn Sigurðsson. Agglutinin
gegn Brucella abortus í blóði úr
íslenzkum kúm. Læknablaðið 32.
árg., bls. 30—33.
2. Björn Sigurðsson. Q-fever.
Læknablaðið 35. árg., bls. 158
—159.
3. Björn Sigurðsson, Páll Sigurðs-
son. Leptospira icteroliæmorr-
hagie í reykviskum rottum.
Læknablaðið 35. árg., bls 90—92.
4. Guðmundur Gíslason. Weilsgula.
Læknablaðið 29. árg., bls. 111—
117.
5. Vilmundur Jónsson. Heilbrigðis-
skýrslur 1947.
Námskeið í heilbrigðisfræðslu.
Námskeið i heilbrigðisfræðslu
(liealth education) verður lialdið i
Englandi, Royal Holloway College
nálægt Royal Castle of Windsor,
dagana 10.—20. ágúst 1953. Nám-
skeiðið er ætlað héraðs- eða embætt-
islæknum, hjúkrunarkonum, ljós-
mæðrum og ýmsum heilbrigðis-
starfsmönnum. Þátttökugjald og
dvalarkostnaður á námskeiðinu er
£16 16s. Od.
Bréf og bæklingur með nánari
upplýsingum er hjá ritstj. Lækna-
blaðsins.