Læknablaðið - 01.05.1953, Qupperneq 20
144
LÆKNABLAÐlf)
stjórnarinnar og skulu þessar
breytingar bíða síðari tíma.
VI. Stjórnarkosning: Fráfar-
andi stjórn hafði endað kjör-
tímabil sitt og baðst öll undan
endurkosningu.
Formaður fyrir næstu þrjú
ár var kosinn Árni Pjetursson,
ritari Bergsveinn Ólafsson og
gjaldkeri Þórður Þórðarson,
báðir til sama tíma. Meðstjórn-
endur voru kosnir þeir Bjarni
Jónsson, Ófeigur .1. Ófeigsson
og Ólafur Bjarnas. Koma tveir
þeir síðarnefndu í stað Þórðar
Þórðarsonar, sem kosinn var
í aðalstjórn, og Jóliannesar
Björnssonar, sem verið hafði
meðstjórnandi síðasta kjör-
tímabil, en Bjarni Jónsson
hafði einnig verið meðstjórn-
andi og var hann nú end-
urkjörinn.
Stjórn Ekknasjóðs var end-
urkjörin til aðalfundar L. í., en
þá er fyrirhuguð sú breyting,
að L. í. verði beinn aðili að
Ekknasjóðnum og fái, ef úr
þeirri breytingu verður, rétl til
að kjósa einn mann í stjórn
sjóðsins.
Stj órn Heilsuf ræðisj óðsins
var öll endurkjörin. Stjórn hús-
byggingarsjóðs L. B. var áfram
falin félagsstjórninni.
Endurskoðendur reikninga
félagsins voru kosnir þeir Hall-
dór Hansen yfirlæknir og próf.
Jón Steffensen, til vara þeir
læknarnir Björgvin Finnsson
og Þórarinn Sveinsson.
VII. Akveðið árgjald félags-
ins fyrir næsta ár, kr. 600.00 er
skiptist svo: kr. 300.00 til L I.
og kr. 300.00 til L. B. Þetta er
þó gert með þeim fyrirvara, að
samþykkt verði fyrirhuguð
breyting á fyrirkomulagi L. T.
Bitstjórn Læknablaðsins var
endurkjörin, en hana skipa
þeir Ólafur Geirsson læknir,
próf. Júlíus Sigurjónsson og
Þórarinn Guðnason læknir.
/ útvarps- og blaðanefiul voru
kosnir læknarnir Elías Ey-
vindsson, Skúli Thoroddsen og
Þórarinn Guðnason.
/ gerðardóm voru kosnir eft-
irtaldir læknar:
Bjarni Snæbjörnsson, Eirík-
ur Björnsson og Sigurður Sig-
urðsson aðalmenn, og til vara
Jón Steffensen, Helgi Ingvars-
son og Kristinn Björnsson.
Fulltrúar til að mæta á aðal-
fundi Læknafélags íslands nú
í sumar voru kjörnir eftirtaldir
læknar:
Aðalfulltrúar: Bergsv. Ólafs-
son, Árni Pjetursson, Snorri
Hallgrímsson, Þórður Þórðar-
son, Valtýr Albersson, Júlíus
Sigurjónsson og Kristinn Slef-
ánsson.
Varafulltrúar: Kolb. Ivristó-
fersson, Ólafur Geirsson, Þór-
arinn Guðnason, Bjarni Jóns-
son, Óskar Þ. Þórðarson, Þór-
arinn Sveinsson og Guðmund-
ur Evjólfsson.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi
slitið.