Læknablaðið - 01.06.1956, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ
39
blæðing byrjar, má skipta í
tvö aðalskeið. Hið fyrra er
vaxtar- eða álunarskeið (sta-
dium proliferationis) og hið
síðara driftarskeið (stadium
secretionis). Það, sem markar
tímamót þ,essara tveggja
skeiða, er vitanlega egglosið
(ovulatio). Fyrra skeiðið
stendur venjulega 14 daga, en
lengd þess er þó mun óreglu-
legri ,en hins síðara og getur
orðið allt upp í 24—25 dagar
eða meir. Lengd síðara skeiðs-
ins er ekki eins breytileg og er
talin 14±2 dagar.
Yfirborð legholsins eftir tíð-
ir er alll eitt flakandi sár.
Fljótlega tej'gja sig þó þekju-
frumur frá kirtilbotnunum,
sem eftir lifa í stratum basalis
og klæða allt yfirborðið. Vaxt-
arskeiðinu er oft skipt í þrjú
bil, fyrsta-, mið- og siðasta bil
vaxtarskeiðs. Fyrsta bilið er
venjulega talið enda, þegar 7
dagar eru liðnir af cyclus. Á
þeim tíma er yfirborðsþekjan
lág, .einkum er fjær dregur
munnum slímhúðarkirtlanna.
Sjálfir kirtlarnir eru beinir og
þröngir. Kjarnarnir i þekju-
frumum þeirra rísa mishátt frá
undirlaginu (pseudo-strati-
fication), og kjarnaskiptingar
sjást víða í hinum vaxandi
kirtlum. í stoðvefsfrumunum
sjást kjarnaskiptingar einnig,
en frumur þessar eru á öllum
skeiðum cyclus, nema rétt fyr-
ir tíðir, stjörnulaga með hlut-
fallslega stórum kjarna, en
litlu frymi (mynd IA). Eftir
því sem líður á vaxtarskeiðið,
víkka kirtlarnir og verða
hlykkjóttir, en að öðru leyti
breytist útlSt slímhúðarinnar
lítið. Bjúgur i stoðvefnum,
sem venjulega sést fram eft-
ir vaxtarskeiðinu, hverfur
nokkru fyrir egglosið.
Fljótlega eftir egglosið koma
fram nýjar breytingar í þekju-
frumum kirtlanna fyrir áhrif
vaka, sem losna úr læðingi í
hinum sprungna folliculus.
Þessar br.eytingar eru fólgnar í
myndun vessabólna í frymi
kirtilfrumanna. — Bólurnar
koma fyrst fram undir kjörn-
unum og mynda samfellda
röð í hverjum kirtli, svo
nefnda zona lucida (mynd I
B). Smám saman ýtast þær
upp á við í frumunum, fram
hjá kjörnunúm, unz þær
springa úl í hol kirtlanna. Við
þetta breytist yfirborð frum-
anna, sem áður var slétt, en
verður nú tökkótt eða trosnað.
.1 af nf ram t vessabólumyndun-
inni breytist heildarútlit kirtl-
anna, sem verða hlykkjóttari,
því meir sem líður á driftar-
skeiðið, unz þeir verða sag-
tenntir í útliti, ef svo má að
orði kveða (mynd I C).
Séu athugaðar breytingar í
stoðvef slímhúðarinnar á drift-
arskeiðinu, kemur i ljós, að
kjarnaskiptingar i stoðvefs-
frumunum hverfa fljótlega