Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 4

Bændablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 20134 Fréttir Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð segir að ástandið hafi verið ljótt á kolóttri á sem hann fann lifandi nýlega nærri Þverárdal í Austur- Húnavatsnsýslu. Hún var þá illa bitin eftir ref. Ærin var tveggja vetra og orðin grindhoruð og mjög máttfarin þegar hún fannst. Eigandi hennar var Bjarni Bragason á Halldórsstöðum í Skagafirði. „Það er ljóst að tófunni fer ört fjölgandi vegna batnandi skilyrða og minnkandi aðgerða við að halda henni í skefjum. Það er veruleg aukn- ing í stofninum og enginn veit hvað hann er orðinn stór,“ segir Einar. Hann segir að bændur séu að missa töluvert af fé á hverju ári af ýmsum orsökum og ljóst að tófan drepi þar hluta. Erfitt sé þó að fullyrða hvað tófan taki mikið en það geti verið talsvert. Þá séu ómæld áhrifin sem tófan hefur á fuglastofna um allt land. Hann segir dapurlegt hvað fjármagn frá ríkinu til grenjavinnslu sé takmarkað því sveitarfélögin ráði ekki við þetta. Það verði að fara að taka af alvöru á þessum málum. Refir voru alfriðaðir í Hornstranda friðlandi og öðrum friðlýstum svæðum frá 1. júlí 1994. Það var gert þrátt fyrir vitneskju um að þeir myndu breiða út búsvæði sín í leit að fæðu fyrir stækkandi stofn. Í árslok 1978 var útreiknuð lágmarksstærð stofnsins áætluð um 1.300 dýr en rúm 7.500 dýr haustið 2001. Það var samkvæmt mati Páls Hersteinssonar frá 2004 sem byggði á upplýsingum um refaveiði. Engar nýjar haldbærar tölur eru til í dag, aðrar en þær sem byggja á þessu mati Páls. Þó er vitað að tófum hefur fjölgað mjög frá 2001. Þá berast sífellt fregnir af tófum á stöðum þar sem fólk hefur ekki verið vant að sjá þessi dýr áður, t.d. við þéttbýlisstaði á suðvesturhorni landsins. /HKr. Kollótt kind fannst illa bitin eftir tófu – tófunni fjölgar stöðugt en enginn veit hvað stofninn er orðinn stór Engin lífræn drykkjarmjólk Meðfylgjandi myndir eru af dýrbitinni kollóttri á sem Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð fann nýlega nærri Þverárdal í Austur-Húnavatnssýslu. Ærin var tveggja vetra og orðin grindhoruð og mjög máttfarin þegar hún fannst. Eigandi Myndir / Einar Kolbeinsson Þetta er sannarlega mjög ljótt að sjá. Mjólkurverð hækkar og meiri sala heimiluð innanlands Verðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. október um 3,1 prósent. Afurðastöðvaverð til bænda hækkar um 2,49 kr. á lítra mjólkur, úr 80,43 kr. í 82,92 kr. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um 2,85 kr. Samanlögð hækkun heildsöluverðs er því 5,34 kr. á hvern lítra mjólkur. Hækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana á aðföngum og rekstri undanfarinna 15 mánaða, en mjólk og mjólkurafurðir voru hækkaðar síðast 1. júlí 2012, að því er kemur fram hjá nefndinni. Heimila aukna markaðssetningu innanlands Þá hefur Framkvæmdanefnd búvara tekið ákvörðun um að heimila sölu á allt að þremur milljónum lítra mjólkur á innanlandsmarkaði, umfram það greiðslumark sem í gildi er á yfirstandandi verðlagsári. Ákvörðunin er tekin vegna mun meiri sölu en áætluð var á mjólkurafurðum, sem og eilitlum samdrætti í framleiðslu. Með umrædda heimild verður farið eins og greiðslumarkið sjálft hafi verið hækkað, þ.e. takist einhverjum framleiðendum ekki að nýta sinn hluta viðbótarinnar verður því sem út af stendur jafnað á aðra framleiðendur. Áður höfðu afurðafyrirtækin gefið það út að þau hygðust greiða fullt afurðastöðvaverð fyrir þrjár milljónir lítra umframmjólkur vegna hugsanlegrar vöntunar. Til umræðu hefur komið að borga fullt afurðastöðvaverð fyrir alla umframmjólk en ekki hefur verið tekin ákvörðun um það að svo komnu máli. Ákvörðunin er tekin á grundvelli 29. greinar laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum en þar segir: „Taki mjólkursamlag við mjólk umfram greiðslumark framleiðanda sem verður utan heildargreiðslumarks við lokauppgjör skal samsvarandi magn mjólkurafurða markaðsfært erlendis á ábyrgð mjólkursamlags og framleiðanda. [Framkvæmdanefnd búvöru samninga] getur þó heimilað sölu þeirra innan lands ef gengið hefur á birgðir og skortur á mjólkurvörum er því fyrirsjáanlegur.“ Samkvæmt heimildum Bænda- blaðsins munu Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði gera tillögu um að greiðslumark fyrir næsta verðlagsár verði aukið um 2,5 til 3 milljónir lítra. Á yfirstandandi verðlagsári er það 116 milljónir lítra. Ákvörðunar í þeim efnum er að vænta í næsta mánuði. /fr Mjólkursamsalan hefur neyðst til að hætta framleiðslu á lífrænni drykkjarmjólk, í það minnsta tímabundið. Ástæðan er sú að einn þeirra þriggja mjólkur- framleiðenda sem hefur haft lífræna vottun missti þá vottun fyrir skemmstu. Með því minnkaði framleiðsla á lífrænni mjólk um rúmlega þriðjung. Mannleg mistök ollu því að vottunin var afturkölluð. Umræddur framleiðandi er búið Finnastaðir í Eyjafirði. Gunnbjörn Rúnar Ketilsson bóndi á Finnastöðum segir að mannleg mistök hafi valdið því að mjólk úr kúm sem verið var að meðhöndla með penisillíni lenti saman við mjólk sem send var frá búinu. „Það var verið að meðhöndla kýr við júgurbólgu og því miður virðist ég hafa gleymt að taka slönguna upp úr mjólkurtanknum þegar ég mjólkaði þær. Mjólkin var svo flutt í sérhólfi með mjólkurbílnum inn á Akureyri þar sem starfsmenn MS mældu hana. Þegar þetta kom í ljós var mjólkinni að sjálfsögðu fargað þannig að hún kom aldrei inn í mjólkurbúið og blandaðist ekki annarri mjólk. Ég fékk síðan heimsókn frá mjólkureftirlitsmanni sem mældi mjólkina næstu daga og þá mældust engar lyfjaleifar í henni, enda þetta óhapp sem ekki endurtekur sig. Hins vegar fékk ég tilkynningu frá Vottunarstofunni Túni um að búið væri að afturkalla vottunina hjá mér vegna þessa. Ég er núna að afla þeirra gagna sem Tún bað um frá mér en á meðan legg ég mjólkina inn hjá MS þar sem hún er nýtt.“ Óljóst um framhaldið Gunnbjörn segir í raun sé ekki neinn bilbugur á honum að afla sér aftur vottunar til að geta sent frá sér lífræna mjólk. „Það eru hins vegar ákveðnar persónulegar aðstæður hjá mér sem eru með þeim hætti að ég þarf að taka ákvörðun um það hvort ég haldi áfram í búskap yfirhöfuð. Það snýst ekki um hvort ég framleiði lífræna mjólk eða ekki. Þetta er bara óljóst.“ Heldur harkalegar aðgerðir Gunnbirni þykir heldur harkalega staðið að því hvernig búið var svipt vottuninni. „Sjálfsagt hefði niðurstaðan alltaf verið þessi en hefðu menn kynnt sér málið aðeins betur með því að tala við mig hefði ferlið kannski orðið öðruvísi. Það að svipta menn vottun inni þegar verða svona mannleg mistök, einu sinni, finnst mér dálítið harkalegt þar eð mjólkin fór aldrei í umferð.“ Mikilvægara að verja stöðu Bio Bús Einar Sigurðsson forstjóri MS segir að þegar þessi staða hafi komið upp hafi fyrirtækið neyðst til að taka ákvörðun um að hætta framleiðslu á lífrænni drykkjarmjólk. „Þetta er mjög lítið magn sem er til skiptanna og við tókum ákvörðun um að mikilvægara væri að sjá Bio Bú fyrir lífrænni mjólk í framleiðslu sína en að halda áfram framleiðslu á drykkjarmjólk.“ Bio Bú er stærsti framleiðandi lífrænna mjólkurvara á landinu og framleiðir meðal annars jógúrt, skyr og ís úr lífrænni mjólk. „Á meðan þetta ástand varir er ekki til mjólk í alla framleiðsluna. Ég held að allir skilji þessa ákvörðun okkar. Ef við myndum ekki tryggja Bio Bú mjólk til sinnar framleiðslu mynda það hafa mjög vond áhrif á þeirra rekstur. Þetta er auðvitað leiðinlegt, að þurfa að klippa út vörulínur vegna svona aðstæðna. Þetta er auðvitað bara áfall sem vonandi tekst að vinna úr,“ segir Einar. Gunnar Gunnarsson, fram- kvæmda stjóri Vottunarstofunnar Túns, segist ekki geta tjáð sig um einstök mál en almennt missi framleiðendur vottun ef frávik komi fram í framleiðslunni. „Það er síðan undir framleiðendum komið, að jafnaði, hvort og hvenær þeir uppfylla reglurnar á nýjan leik. Við fylgjumst bara með framvindu mála og gerum úttektir og eftir tilfellum aukaúttektir til að votta að þeim vandamálum sem upp hafa komð hafi verið kippt í liðinn.“ Gunnar segir ekkert hægt að segja um hversu langan tíma muni taka að veita vottun að nýju. Áfall fyrri neytendur Arndís Thorarensen, framkvæmda- stjóri Lifandi markaðar, sem selur lífrænar og vistvænar afurðir, segir að sú staða sem uppi er sé áfall fyrir sína viðskiptavini. „Þetta kemur mjög illa við okkur og okkar viðskiptavini. Þessi mjólk er með algjöra sérstöðu á íslenskum markaði. Við fengum síðast lífræna drykkjarmjólk fyrir síðustu helgi og gátum dreift henni á verslanir okkar en hún kláraðist um helgina. Þetta er því ekki farið að segja til sín að fullu en mun hitta fólk fyrir nú á næstu dögum.“ Arndís segist vonast til þess að takist að leysa málið á næstunni en jafnframt sé mikilvægt að fleiri framleiðendur hefji framleiðslu á lífrænni mjólk. /fr

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.