Bændablaðið - 19.09.2013, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. september 2013 7
étt eins og í síðasta
v ísnaþætt i er
vettvangur þessa
þáttar í Austur-
Húnavatnssýslu. Afmæli Einars
Kolbeinssonar er að vísu afstaðið
en göngur og réttir haustsins í
algleymi.
Umsjónarmaður fékk í hendur
fágætt hefti ritað af Rósberg G.
Snædal sem hann nefnir Stafnsrétt
í stökum og myndum og var útgefið
og prentað í Prentsmiðju Björns
Jónssonar hf. á Akureyri árið
1961. Höfundur var fastagestur á
Stafnsrétt og þekkti því vel til bæði
bænda og réttarvenja. Fyrsta vísa
heftisins er að gefnu tilefni og ort
af Símoni Dalaskáldi:
Hér ég skal til skemmtunar
skálda fjörug ljóðin,
meðan daladrósirnar
dansa á bala Stafnsréttar.
Á þeim tíma sem heftið greinir
voru aðal réttardagarnir á mörkum
22.-23. viku sumars. Safnið rennur
saman í Lækjarhlíðinni, tungu
milli Svartár og Fossár. Rósberg
yrkir:
Haustið bíður allra oss,
úti er blíða og friður.
Safnið líður líkt og foss
Lækjarhlíðar niður.
Að jafnaði telur safnið 12–15
þúsund fjár auk fjölda hrossa sem
smalast einnig til réttar. Grúi fólks
sækir jafnan á Stafnsrétt bæði til
gagns og gleði. Jónas Tryggvason
Ártúnum orti:
Gott er að hafa glaða lund,
geta af fátækt sinni
dags frá önnum einni stund
offrað Stafnsréttinni.
Það liggur líka vel á fólki. Smalar
örþreyttir þiggja áfenga umbun
fyrir erfiði langra gangna. Rósberg
dreifir hringhendum fyrirhafnar-
lítið:
Bliknar margt og bleik er grund,
blómaskart í valnum,
á þó hjartað óskastund
innst í Svartárdalnum.
Fyrri réttardaginn er stóðréttin.
Stóðið er gengið úr safninu í
Lækjarhlíð og rekið til réttar við
mikinn jódyn. Rósberg yrkir:
Fótanettan fák má sjá,
– flýgur um þetta staka.
Sléttum réttareyrum á
ýmsir spretti taka.
Hávaðinn er aldrei meiri en þegar
stóðið er réttað. Rósberg fangar
stemninguna í hringhendur:
Hér er líf og líka fjör,
lagleg víf og jeppar,
heyrast gífuryrði ör,
óðir rífast seppar.
Léttist þungur þanki minn,
því skal sungið vinurinn.
Verð ég ungur annað sinn,
er ég Tungubræður finn.
Ef stund gefst frá réttarragi taka
menn tal saman, staupa sig, sumir
án hófs. Rósberg þekkir þorstann:
Svona bras er siður forn;
sumir hrasa og slaga,
taka í nasir tóbakskorn,
tappa úr glasi draga.
Vísum frá Stafnsrétt verður svo
framhaldið í næsta þætti.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
R
Séra Eiríkur Jóhannesson í Hruna vígði formlega endurbyggðar Hrunaréttir á réttardaginn, föstudaginn 13. september, en réttað var í fyrsta sinn í nýju
réttunum árið 2011. Fjárbændur í Hrunamannahreppi hófu endurbyggingu á réttinni árið 2010 en sauðfjárræktarfélagið stóð að byggingunni í samstarfi við
sveitarfélagið og búnaðarfélagið. Hér sést þegar búið var að reka féð í almenninginn og fyrir miðri mynd er Bjarni Valur Guðmundsson bóndi í Skipholti.
Mynd / Sigurður Guðmundsson
Réttardagar
Úr Tungnaréttum. Það er spurning hvor er meira ekta Guðni Ágústsson, Guðni sjálfur eða eftirherman Jóhannes
Kristjánsson. Svipmyndir úr Tungnaréttum / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Þessi var alveg með
það á hreinu
hvernig ætti að stan
da að drætt-
inum í Skeiðarétt.
Mynd / MHH
Það skein gleði úr hverju andliti þegar réttað var í Tungunum.
Og það er sannarlega tekið hraust-lega til við sönginn.